03.12.1943
Neðri deild: 58. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 137 í C-deild Alþingistíðinda. (2142)

110. mál, jarðræktarlög

Frsm. meiri hl. (Bjarni Ásgeirsson) :

Herra forseti. Ég skal ekki þreyta hv. þm. með löngu máli um þessa rökst. dagskrá, sem meiri hl. landbn. ber fram á þskj. 394, en vegna þess að þetta mál eða ákvæði 17. gr. jarðræktarl. og önnur svipuð ákvæði í öðrum l., sem eru l. um byggingarstyrk ríkisins, eru nú til meðferðar í mþn., sem kosin var á síðasta búnaðarþ., m. a. til þess að fara með þessi mál, þá teljum við í meiri hl. enga ástæðu til þess að taka eitt þessara ákvæða út af fyrir sig til meðferðar og afgreiðslu á Alþ., en skilja svo önnur eftir órannsökuð eða óröskuð, sem eru miklu harðari gagnvart bændum en þetta ákvæði 17. gr. jarðræktarl. Við teljum sjálfsagt, að öll þessi sömu ákvæði fylgist að, en það er einmitt það, sem þessi mþn. hefur fengið til meðferðar. Ég skal geta þess til skýringar, að fylgifé samkv. 17. gr. er viss hluti af því verðmati, sem ríkisstyrk hefur verið varið til, til viðkomandi jarðabóta, og er það metið fasteignamati og bændum því reiknað út frá fasteignamati. Sams konar styrkur er í nýbýlal., en ákvæðin í þeim l. eru miklu strangari en 17. gr., svo að mér virðist sízt ástæða til þess að byrja á ákvæðum, sem eru vægari, en sleppa þeim, sem strangari eru, og þess vegna leggjum við til, að málinu verði vísað frá með svo hljóðandi rökst. dagskrá:

Þar sem ákvæði 17. gr. jarðræktarlaganna og önnur hliðstæð lagaákvæði eru nú til athugunar og endurskoðunar í mþn., er skipuð var á síðasta búnaðarþingi, telur deildin ástæðulaust að taka eitt þessara ákvæða til meðferðar, áður en tillögur milliþn. liggja fyrir, og tekur því fyrir næsta mál á dagskrá.