03.12.1943
Neðri deild: 58. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 145 í C-deild Alþingistíðinda. (2152)
110. mál, jarðræktarlög
Páll Zóphóníasson:
Herra forseti. Í fyrsta lagi vildi ég segja hv. 2. þm. Rang. það, — en hann er hér ekki viðstaddur, — að þegar ég bauð mig fram árið 1934 í Norður-Múlasýslu, þá sagði ég á hverjum einasta fundi, að ég vildi berjast fyrir því, að hætt væri að láta þær umbætur, er framkvæmdar væru bæði til sjós og lands með opinberu fé, vera seldar, og þar með sú umbót, sem gerð var „kapitalistisk“, og orsakaði því hærri og minni rekstrarkostnað og hærra vöruverð, meiri dýrtíð. Umbætur þær, er sú kynslóð gerði, ættu að ganga til næstu kynslóðar, án þess að hún þyrfti sérstaklega að kaupa þær þeirra, sem gerðar hefðu verið af opinberu fé. Kjósendur mínir vissu því vel, að ég mundi hugsa til einhverra ákvæða sams konar og í 17. gr. jarðræktarl. er, og þurftu ekki að renna neitt blint í sjóinn með það. Að öðru leyti þarf ég ekki að svara honum.
Þá skilst mér, að hv. þm. A.-.Húnv. hafi ekki haft neina hugmynd um það, hvað það var, sem hann samþ. í gær varðandi Siglufjörð. Hann talaði nú um það, að það hefði verið annað mál og óskylt, sem ég hefði verið að tala um, þegar það snerti hafnir, sem það opinbera ætti og ríkið væri að styrkja, þó að verðhækkun væri ekki látin koma þar fram. En á Siglufirði var verið að taka lóðir, sem einstakir menn áttu, og ákvæðin, sem samþ. voru þá í líkingu við 17. gr. jarðræktarl., voru um það, að þessar lóðir mættu ekki hækka í verði vegna þeirra framkvæmda á þessum stað, sem það opinbera styddi að, ef bærinn keypti. Svo talar hann um hafnarl. yfirleitt í sambandi við þetta. Ég held, að hv. þm. hafi ekki lesið þetta. Það var ekki verið að tala um land, sem bærinn átti, heldur það, sem einstakir menn áttu, og er það hliðstætt þessu ákvæði 17. gr. jarðræktarl.
Nei, það er ákaflega gleðilegt, hvernig þessir menn, án þess sjálfir að vita, eru komnir inn á sömu hugsun og er í 17. gr. jarðræktarl. og hvernig þessi hugsun er búin að gagnsýra þá, þannig að þegar það bara heitir ekki 17. gr. jarðræktarl., — „veskú“, — þá kemur hendin upp við atkvgr. Og ég er nærri viss um það líka, að ef þessi 17. gr. væri færð til í jarðræktarl. sett þar t. d., sem 27. gr. er, — þá mundu margir, kannske allir, vera með henni.