13.12.1943
Efri deild: 65. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 182 í C-deild Alþingistíðinda. (2188)
68. mál, jarðræktarlög
Frsm. meiri hl. (Eiríkur Einarsson):
Ég skal reyna að vera stuttorður. Það, sem um er að ræða, má skipta í tvo kafla. Annars vegar er sú mikla nauðsyn, sem er á því að hefjast handa um stóraðgerðir með fullkomnum vélum, svo að eitthvað vinnist, sem um munar. Þó að rætt væri um það í alla nótt, er jafnmikið búið að gera fyrir því. Það eru allir á einu máli um það, að nauðsynlegt sé að hafa fullkomin tæki með nýtízku sniði. Það getur enginn heilvita Íslendingur verið á öðru máli um það.
Hinn þátturinn er sá, hvort þetta frv. er hin eina óbrigðula leið til að hrinda slíkum átökum í framkvæmd. Um það er deilt. Svo er að heyra sem forsvarsmenn frv. sjái miklar hillingar, og ég skal ekki lá þeim það. Ég hef áður sagt, að ég sé ekki fremur bundinn við þessa aðferð en það að nota þeim mun betur augnablik hverrar líðandi stundar. Við eigum vísari í hendi okkar möguleika þessa árs en hinna komandi.
Um það, sem hefur verið sagt um útvegun véla, vil ég segja, að ég tók eftir því hjá hv. þm. Str., hvað hann er vantrúaður á, að eftir dagskránni verði nokkur möguleiki til slíkrar útvegunar. Ég sé ekki annað en að það komi vilji fram í þáltill., samrýmanlegur við þarfirnar. Og hvatningin í dagskránni er spor í rétta átt.