17.04.1943
Sameinað þing: 3. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 189 í C-deild Alþingistíðinda. (2204)
1. mál, fjárlög 1944
forseti (GSv):
Áður en gengið er til dagskrár, vildi ég tilkynna þm., að svo er til ætlazt, að 1. umr. fjárl. fyrir 1944 verði háð á þriðjudaginn kemur á venjulegum fundartíma. Þess skal getið, að fjárlfrv. er að verða tilbúið frá ríkisstj., þótt ekki ynnist tími til að útbýta því í dag, en því verður útbýtt á mánudaginn. Á fundinum á þriðjudaginn flytur fjmrh. fjárlagaræðu sína, og verður þeirri umr. útvarpað samkvæmt þingsköpum. Hver þingflokkur hefur hálfa klukkustund til umráða til þess að gera athugasemdir, en ráðh. hefur ¼ klst. til andsvara, ef þurfa þykir.
Þetta vildi ég, að þm. fengju þegar vitneskju um, til þess að vera við því búnir.
Á deildafundum 19. apríl var útbýtt frá Sþ.: Frv. til fjárlaga fyrir árið 1944 (stjfrv., A. 1).