21.09.1943
Efri deild: 22. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 39 í D-deild Alþingistíðinda. (2214)
6. mál, ákvæðisvinna
Steingrímur Aðalsteinsson:
Herra forseti. Ég hef í sjálfu sér ekkert að athuga við þá þáltill., sem hér liggur fyrir. Ég álít, að það væri vel farið, ef hæstv. ríkisstj. gæti aflað sér upplýsinga um, hvernig skipulagning ákvæðisvinnu væri í Bandaríkjunum og Sovétríkjunum.
Í grg. þessarar till. eru þó nokkur atriði, sem ég kann ekki vel við, að komi fram í skjölum Alþ., án þess að mótmælt sé.
Það mætti e. t. v. þykja að sumu leyti dálítið einkennilegt, að hv. þm. S.-Þ. skuli flytja till. eins og þessa, sem hér liggur fyrir. Það væri kannske hægt að álíta, að hún væri flutt í þeim tilgangi meðal annars að reyna að koma því til leiðar, að verkafólk gæti átt kost á því að vinna í ákvæðisvinnu og jafnframt aflað sér meiri tekna en það nú á kost á. Það væri vitanlega gott, að slíkt væri gert, en að hinu leytinu mun mörgum verkamanninum þykja ólíklegt, að hv. flm., þm. S.-Þ., hafi nokkurn sérstakan áhuga á því að afla honum skilyrða til þess að auka tekjur hans fram yfir það, sem hann hefur nú. Þá má líka líta þannig á, að megintilgangur till. sé að afla okkur og þá sérstaklega þm., með aðstoð ríkisstj., ábyggilegra upplýsinga um það, hvernig ákvæðisvinnufyrirkomulagið sé í þessum stóru löndum. Mér þætti mikið varið í, ef hæstv. ríkisstj. gæti aflað sér upplýsinga um slíkt og lagt þær fyrir þingið. Er ég þá ekki í vafa um, að þær upplýsingar mundu koma allmikið í bág við þann fróðleik, sem málgagn hv. þm. S.-Þ. hefur flutt okkur um það efni að undanförnu.
Það kom líka fram í ræðu hv. flm., að hann hefur ekki mikinn áhuga á því að þessara upplýsinga sé aflað frá Sovétríkjunum, a. m. k. eins og stendur, heldur frá Ameríku. Það má því eins vel álíta, að tilgangurinn með flutningi þáltill. sé hjá þessum hv. þm., a. m. k. að nokkru leyti, til þess að koma fram þeim áróðri, sem felst í grg. þáltill. Það er þess vegna, sem ég sé ástæðu til þess að andmæla nokkrum atriðum í grg. þáltill.
Þá er það fyrst og fremst sú staðhæfing, sem hv. flm. hefur leyft sér að setja fram hér í grg., að verkamenn séu yfirleitt svikulir við vinnu og svo latir, að ekki sé ótítt að fimm menn hreyfi sig lítið eða ekkert, meðan einn vinnur. Hv. flm. kveður hér upp dóm yfir ísl. verkamannastéttinni, sem leggur fram vinnuorku sína til þess að framleiða margt það, sem þjóðin þarf að lifa af og sér til framfæris. Ég vil ekki, að slík staðhæfing sem þessi verði geymd hér í þskj. án þess að mótmæla henni, og ég sem verkamaður tel mér skylt að gera það og þori að lýsa yfir því fyrir sjálfan mig, að ég kannast ekki við, að dómur flm. hafi við nokkur rök að styðjast. Enn fremur er mín reynsla sú, sem ég hef af þeim verkamönnum, sem ég hef unnið með, að ég tel slíkan dóm með öllu ómaklegan. Mér virðist það sitja verst á þeim mönnum, sem flúið hafa frá erfiðisvinnu og ekki dýfa hendi sinni í kalt vatn, að vera að breiða út slíkan óhróður.
Þá er það annað atriði grg., sem ég vildi andmæla með nokkrum orðum, þar sem sagt er, að Sovétríkin hafi lært þá skipulagningu vinnu, sem þar er, af Ford. Í þessu hlýtur náttúrlega að felast það hjá hv. flm., að skipulag vinnunnar og launagreiðslna í Sovétríkjunum séu hið sama og hjá stóriðjuhöldum Bandaríkjanna. Þetta er alveg rangt. Ég skal ekki fullyrða um það, en mér er ekki kunnugt um, að Ford hafi yfirleitt tekið upp ákvæðisvinnu við atvinnurekstur, og þau vinnuafköst, sem honum hefur yfirleitt tekizt að knýja fram, eru ekki þannig til komin. Ég held, að þessum mikla vinnuhraða hafi Ford náð með alveg sérstöku kerfi. Hann sá sér hag í því að stytta vinnutímann, verkamennirnir afköstuðu meira, en þeir geta ekki unnið með eins miklum hraða og krafizt er þar nema nokkurt árabil, og þeir hafa oft ekki getað unnið aðra erfiðisvinnu á eftir. Vinnuorkan hefur alveg verið sogin upp á skömmum tíma. Þetta fyrirkomulag hefur ekki verið tekið upp til þess, að laun verkamannsins hækkuðu, heldur aðeins til að auka gróða atvinnurekandans.
Í Sovétríkjunum er þessu öðruvísi háttað, og vinnuhraðinn, sem þar hefur náðst, hefur veitt verkamanninum hærri laun. Þar mun verkamanninum tryggt lágmarkskaup, þannig að hann hefur fast mánaðarkaup, og það kaup er miðað við venjuleg vinnuafköst. Ef verkamaður afkastar ekki því, sem miðað er við, að séu meðalafköst, fær hann eftir sem áður sitt fasta mánaðarkaup, sem miðað er við það, að hann geti lifað af því. Hins vegar er svo ákveðið, að verkamaður fái ákveðna greiðslu fyrir ákveðið vinnumagn, sem umfram er þessi lágmarksafköst, og verður sú greiðsla umfram þau föstulaun, sem honum eru aðeins greidd, og því meiri laun sem vinnuafköst hans eru meiri. Verkamanninum er undir öllum kringumstæðum tryggt ákveðið lágmarkskaup, sem honum nægir til þess að framfleyta lífi sínu, og síðan fær hann svo kaup, sem reiknað er eftir dugnaði hans og afköstum umfram settar lágmarksreglur, sem gilda þar um.
Ef það vekti fyrir flm. þáltill. að afla sér upplýsinga um þetta vinnuskipulag með það fyrir augum að taka það upp hér, mundi ég manna sízt vera á móti því. En ég dreg það sem sagt nokkuð í efa, að þetta sé tilgangur hv. flm. En það mun koma betur í ljós við framkvæmd till., ef hún verður samþ. Mér finnst það mjög ákjósanlegt, að Alþ. stæði fyrir því, að aflað sé upplýsinga og athugaðir möguleikarnir á því, hvort taka skuli upp hér sams konar skipulag á vinnu og launagreiðslum og er í Sovétríkjunum.