20.04.1943
Sameinað þing: 4. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 212 í C-deild Alþingistíðinda. (2217)

1. mál, fjárlög 1944

Jakob Möller:

Ég ætla ekki að gera neinn „eldhúsdag“ að hæstv. ríkisstj., en þarf þó að gera nokkrar athugasemdir við skýrslu hæstv. fjmrh. um afkomu ríkissj. á síðasta ári. Í sjálfu sér skipta þær athugasemdir ákaflega litlu nema aðeins í sambandi við samanburð á afkomu síðustu tveggja ára.

Samkv. yfirliti því, sem hæstv. fjmrh. hefur nú gefið yfir rekstrarafkomu ríkissj. á síðasta ári, hafa rekstrarútgjöldin numið 57576 þús. kr. og rekstrartekjurnar 86663 þús. kr. og tekjuafgangur þannig orðið 29087 þús. kr.

Ég vil nú vekja athygli á því, að með rekstrarútgjöldum eru taldar allverulegar fjárhæðir, sem tæplega geta talizt eiga þar heima. Svo er t. d. um greiðslu vegna flugvallargerðar, 723 þús., sem varið var til kaupa á landi undir flugvöllinn í Reykjavík. Flugvöllurinn verður eign ríkissj. og á því að teljast til eigna ríkisins, enda mun það ófrávíkjanleg regla að telja slíkar greiðslur til eignaaukningar.

Svipuðu máli gegnir um byggingarkostnað á Bessastöðum, 358 þús., framlag til prestseturs í Reykjavík, 70 þús., og tvær smáupphæðir, samtals 65 þús., sem varið hefur verið til eignaaukningar.

Þess er þó rétt að geta, að tilsvarandi útgjöld eru talin með rekstrarútgjöldum á ríkisreikningi 1941.

Stofnfjárframlag til vátryggingafélags fyrir fiskiskip (Samábyrgð) átti að greiðast allt, samtals 500 þús., á 10 árum, en var greitt að fullu á árunum 1941 (50 þús.) og 1942 (450 þús.), og ætti því upphæðin að réttu lagi aðeins að teljast að 1/9 hluta tilheyrandi 1942, en 400 þús. greitt fyrir fram vegna komandi ára, ef ekki má þá beinlínis telja framlagið til eigna ríkissjóðs.

Enn gegnir svipuðu máli um stofnkostnað héraðsskólanna, 575 þús., og greiðslu vegna skiptingar dómkirkjusafnaðarins í Reykjavík, 167 þús. 66667 kr. voru færðar á rekstrarreikning 1941.

Eru þannig taldar til rekstrarútgjalda 2408 þús. kr., sem ýmist ætti að telja til eignaaukningar eða þá til fyrirframgreiðslna að langmestu leyti.

Þá eru nokkrar allstórar fjárhæðir, sem greiddar hafa verið samkvæmt l. og öðrum fyrirmælum Alþ. og í eðli sínu koma ríkisrekstrinum ekkert við, eins og greiðslur samkvæmt dýrtíðarl. frá 1941, 1534 þús., aðallega vegna áburðarkaupa og verðniðurfærslu á smjörlíki og kolum, og samkvæmt þingsályktunum til verðlækkunar á fóðurmjöli og uppbætur á görnum og gærum, 3660 þús. kr.

Það eru þannig samtals 7600 þús. kr., sem ég eftir mjög lauslega athugun hef fundið og tel, að svo sé varið, að ekki sé rétt að telja til venjulegra rekstrarútgjalda, og mætti þó vafalaust fleira til tína, sem svipað er ástatt um.

Þá skal einnig vakin athygli á því, að þó að niðurstöðutalan í skýrslu ráðherra um rekstrartekjurnar sé ekki nema 86663 þús. kr., þá er það að frádregnum 5428 þús., sem talið er, að sé hækkun eftirstöðva, óinnheimtar tekjur, endurgreiðslur og innheimtulaun, og er það nær 4.4 millj. meira en talið var þannig til frádráttar á skýrslu næsta árs á undan. Mér er nú kunnugt um, að mikill hluti þessarar upphæðar er þegar innheimtur á þessu ári og alveg ástæðulaust er að gera ráð fyrir meiri vanhöldum á tekjunum en sem svarar 1500 þús. kr., en ef svo væri ekki gert, hækkuðu rekstrartekjurnar um 3928 þús. kr.

Þá hafa verið dregnar frá tekjum af benzínskatti 182 þús., sem eru hluti brúasjóðs af þeim skatti og eru að sjálfsögðu eignaaukning, og svo er í rauninni einnig um hluta fiskveiðasjóðs af útflutningsgjaldinu, 691 þús., sem dreginn er frá útfl.gjaldstekjum. Þannig hækka rekstrartekjurnar samtals 4801 þús. Samkv. þessu verða þá rekstrartekjurnar 86663 þús. plús 4801 þús. eða 91464 þús., en eiginleg rekstrargjöld 57576 þús. mínus 7600 þús. eða 49976 þús. og raunverulegur rekstrarafgangur 41488 þúsund.

Hitt er svo annað mál, að af þessum tekjuafgangi hefur verið ráðstafað ýmist til eignaaukninga ríkisins, opinberra sjóða eða almannastofnana þessum 2408 þús. kr., sem ég gerði grein fyrir, og varið til uppbóta á afurðir landbúnaðarins að mestu 5194 þús. kr., en að þeim upphæðum frádregnum verða þó eftir af rekstrartekjunum 33.888 þús. kr.

Samkvæmt rekstraryfirliti ráðh. hafa greiðslur umfram fjárlagaheimildir orðið 33527 þús. Þar frá tel ég að sjálfsögðu rétt að draga þær upphæðir, sem greiddar hafa verið samkv. öðrum heimildum eða fyrirmælum Alþ., aðallega verðuppbæturnar, eða 7550 þús., sem hafa ekki verið áætlaðar í fjárl. Eiginlegar umframgreiðslur verða þá 25977 þús., og má þó að vísu enn draga þar frá umframgreiðslur vegna verðlags- og aukauppbóta, 6500 þús., sem einnig var skylt að greiða samkv. l. og þál. og verða þá eftir 19477 þús. En af þeirri upphæð koma sem næst 5/6 hlutar á 7 útgjaldaliði: Alþingiskostnað, 11l7 þús., en auk þess, sem þar er um að ræða kostnað af þinghaldi í um það bil 10 mánuði á árunum 1942 og 1943 til loka aukaþ., sem endaði í síðustu viku, þá mun vera innifalinn í þessari upphæð kostnaður við umfangsmiklar breyt. á Alþingishúsinu og húsgagnakaup. Dómgæzla og lögreglustjórn hefur kostað nær 2½ millj. umfram áætlun, en af því hefur farið til landhelgisgæzlunnar um 1200 þús. kr. Vegamál hafa farið nálega 4½ millj. fram úr áætlun eða um það bil helmingi meira en á árinu 1941. Samgöngur á sjó hafa farið 2677 þús. kr. fram úr áætlun og þar af 2445 til strandferða Skipaútgerðarinnar, auk þess sem varðskipin hafa verið mikið notuð til þeirra ferða. En þessar umframgreiðslur vegna strandferðanna stafa að miklu leyti af því, að farmgjöld hafa ekki verið hækkuð í samræmi við hækkun rekstrarkostnaðar útgerðarinnar.

Kennslumál hafa farið 1158 þús. kr. fram úr áætlun, atvinnumál eða útgjöld samkv. 16. gr. fjárl. um 2047 þús., en af þeim koma í hlut sauðfjársjúkdóma um 1750 þús., styrktarstarfsemi um 905 þús., en af því 875 þús. til alþýðutrygginga, berklavarna og sjúkrastyrkja, og loks eru óviss útgjöld 1405 þús., en þar af eru 723 þús. til kaupa á landinu undir flugvöllinn.

Um meginhluta þessara umframgreiðslna, frá og með umframgreiðslunni vegna verðlagsuppbótarinnar, er það að segja, að höfuðorsök þeirra er dýrtíðin eða verðbólgan, þ. e. a. s. síhækkandi kaupgjald og verðlag eða verðlag og kaupgjald, hvernig sem menn vilja raða því. Það er hin gífurlega aukning framleiðslu- og framfærslukostnaðarins í landinu, sem veldur því, að allur starfrækslukostnaður ríkisins hefur einnig vaxið svo gífurlega.

Rekstrarútgjöld ríkisins á árinu 1941 urðu samkvæmt ríkisreikningi 32253488.00 Fyrir stríð voru útgjöldin komin upp í 20 millj., og er hækkunin á árinu 1941 því orðin um 60%, eða að kalla nákvæmlega sem svarar til verðlagsvísitölunnar á því ári. Ef gert er ráð fyrir því, að útgjöld ríkissj. hljóti að hækka sem svaraði hækkun vísitölunnar, þá hefðu rekstrarútgjöld ríkissj. því einnig átt að hækka á árinu 1942 sem svaraði hækkun meðalvísitölu þess árs frá því, sem hún var 1941, og gjöldin að verða um 57 millj. kr. eða sem næst því, sem talið er á rekstraryfirliti ríkisbókhaldsins, en um 7 millj. meira en ég teldi rétt vera að telja eiginleg rekstrarútgjöld. Þannig er augljóst, að útgjaldahækkunin á árinu 1942 er ekkert umfram það, sem beinlínis má telja, að leiði af aukningu dýrtíðarinnar í landinu, og þó í rauninni nokkru eða 7 millj. kr. minni eftir mínum reikningi. Þannig er það þá t. d. um vegamálin, að hækkun gjaldanna til þeirra stafar vafalaust að mestu eða einvörðungu af hækkuðu kaupgjaldi, en ekki af því, að framkvæmdir hafi orðið svo miklu meiri en árið áður. Sama máli er að gegna um strandferðirnar og landhelgisgæzluna. Útgjöldin til styrktarstarfseminnar hækka að sjálfsögðu í hlutfalli við verðlag alveg eins og verðlagsuppbótin sjálf.

Það þýðir nú lítið að vera að metast um það, hverjum það sé að kenna, að dýrtíðin hefur aukizt svo gífurlega. Sannleikurinn er sá, að mikið af því, sem um það hefur verið sagt, er vafasöm speki eða stafar af misskilningi. Dýrtíðin er ekkert sérstakt íslenzkt fyrirbrigði. Í öllum löndum hefur verið reynt af alefli að halda henni niðri og alls staðar með því að leggja hömlur á kaupgjald og afurðaverð. En árangurinn hefur víðast orðið miklum mun minni en vænta mátti. Þetta hefur einnig verið reynt hér, en það hefur algerlega mistekizt. En ef til vill, og þó öllu heldur alveg vafalaust, hefur aðstaðan til þess að koma við slíkum ráðstöfunum hvergi verið eins erfið.

Það er sakazt um það, að verð landbúnaðarafurðanna hafi verið hækkuð á undan öllu öðru. Kaupgjaldið var lögbundið til áramóta 1940–'41, en afurðaverðið var látið laust áður og tók að hækka síðustu mánuði ársins 1940. En hins er þá að vísu ekki gætt, að þó að kauptaxti hækkaði ekki á því ári og þó að ekki væri greidd full verðlagsuppbót á kaup fyrr en frá áramótunum, þá hafði vinna aukizt við sjávarsíðuna og heildartekjur verkamanna og þó einkum sjómanna hækkað verulega af þeim ástæðum, en sú tekjuaukning manna við sjávarsíðuna hlaut þá strax að fara að gera vart við sig í hærri kaupkröfum við sveitavinnu eða fyrirsjáanlegt, að að því ræki. En eftir að hið erlenda setulið kom til landsins, tók þegar að vaxa eftirspurn eftir vinnuaflinu fyrir aðgerðir þess og erfiðleikarnir á því að afla landbúnaðinum nægilegs vinnuafls að aukast, bæði vegna þess, að aðkeypt vinnuafl bauðst síður og brátt tók líka að reka að því, að heimafólkið í sveitunum tók að draga sig eftir setuliðsvinnunni. Sumarið 1941 þótti þegar sýnt, að hverju mundi reka, jafnvel þó að þá væru engar kröfur komnar fram af hálfu verkalýðsins um gr unnkaupshækkanir. Vegna hinnar miklu eftirspurnar eftir vinnuaflinu í daglaunavinnu hjá setuliðinu og við ýmsar aðgerðir innlendra manna við sjávarsíðuna, vegna sívaxandi eftirvinnu og nætur- og helgidagavinnu uxu tekjur daglaunamanna svo mjög, að framleiðslan til sveita nat ekki keppt við það, nema með því að hækka afurðaverðið og greiða enn þá hærra kaup, Jafnvel sjálfir bændurnir og skyldulið þeirra tóku að draga sig meira og meira eftir dag- og næturlaunavinnunni í kaupstöðunum og í þjónustu setuliðsins.

Út af þessu ástandi voru nú uppi ýmislegar ráðagerðir um aðgerðir til að vinna á móti þessu öfugstreymi. Meðal annars var um það rætt að greiða uppbætur á verð landbúnaðarafurðanna úr ríkissj. til þess að koma í veg fyrir opinbera verðhækkun þeirra, en verðlagið átti hins vegar á bak við tjöldin að leika lausum haia eftir sem áður í skefjalausri samkeppni við kaupgjaldið. Verðlagsn. landbúnaðarafurða áttu aðeins að úrskurða um það, hvað mikið ætti að greiða úr ríkissj. í uppbætur á afurðirnar frá mánuði til mánaðar. Með þessum hætti var hugmyndin að koma í veg fyrir hækkun vísitölunnar og þar með hækkun kaupgjaldsins til samræmis við hana. En ef ekki hefði verið um neitt annað að ræða en hækkun kaupgjaldsins í samræmi við vísitölu, þá hefði þetta ef til vill getað talizt gerlegt með þeim hætti að greiða úr ríkissj. ákveðinn verðmun, ef nokkur leið hefði verið að ákveða það í eitt skipti fyrir öll, hve há slík verðuppbót ætti að vera, til þess að landbúnaðarframleiðslan gæti keppt við aðrar framkvæmdir á vinnumarkaðinum. En það voru þá engin fyrirsjáanleg takmörk þess, hve hátt kaupgjald og heildaratvinnutekjur manna við sjávarsíðuna gætu komizt, bæði vegna opinberra eða grímuklæddra grunnkaupshækkana og eins vegna lengri og lengri vinnutíma. Það var því fyrirsjáanlegt, að ef ríkissj. átti að fara að taka að sér að jafna þau met, væri honum bundinn sá baggi, sem óvíst var, að hann gæti risið undir, og hefði þá síðari villan orðið verri hinni fyrri, ef gefizt hefði verið upp á miðri leið, öllum afgangstekjum ríkissjóðs eytt í botnlausa hít gínandi verðbólgu, aðeins til þess að fela fyrir sjálfum sér hið raunverulega ástand.

Og ég staðhæfi það, að hvergi í víðri veröld hafi verið gripið til slíkra Bakkabræðra-snjallræða til þess að vinna bug á verðbólgu.

Ég hef ekki heyrt þess getið, að nokkurs staðar á byggðu bóli sé annarra ráða leitað í þessu skyni en reyna að hafa hemil á kaupgjaldi og vöruverði án allra milligjafa af opinberu fé. Ég veit ekki, hvort það hefur tekizt til hlítar í nokkru landi nema þá í einræðislöndunum, og í þeim löndum þó sennilega ekki nema á yfirborðinu. Það hefur staðið í miklu stríði með þetta í Bandaríkjunum og hafa þó fregnazt hingað ákveðin ummæli ráðandi manna þar um það, að það sé eitthvert mesta velferðarmál Bandaríkjaþjóðarinnar að halda verðbólgunni í skefjum og til þess séu engin ráð önnur en hömlun verðs- og kauphækkunar. Frá Svíþjóð, sem er hlutlaust land í ófriðnum eins og Ísland, hafa nýlega borizt fregnir um, að verðlag hafi hækkað um 80% þar í landi frá stríðsbyrjun, og hafa Svíar þó verið forsjálli en flestir aðrir í þessum efnum, t. d. komið á samningum milli framleiðenda og verkalýðssamtaka sinna um hlutfall milli kaupgjalds og afurðaverðs, en til milligjafa af opinberu fé hafa þeir ekki gripið.

Því hefur verið haldið fram, að við ráðh. Sjálfstfl. í þjóðstj. gömlu höfum á sínum tíma lagzt á móti því, að milligjafaleiðin yrði farin hér. Mér er heldur engin launung á því, að ég fyrir mitt leyti var því eindregið mótfallinn, og tel ég mér það engan veginn til ávirðingar. Hins vegar staðhæfi ég nú, eins og ég hef oft gert áður opinberlega, að formælendur þess úrræðis hafi aldrei fylgt því fram með þeim hætti, að til nokkurra átaka kæmi um það, t. d. að sýnt væri, hvort meiri hluti ríkisstj. væri því fylgjandi eða e. t. v. ekki nema einn ráðh. af fimm og sá eini þá jafnvel með hálfum huga. En það ætti að vera augljóst mál, að hverjum einum af ráðh., sem í raun og veru hefði haft trú á því, að hann hefði fundið óyggjandi ráð til þess að halda niðri verðbólgunni, hafi verið skylt að fylgja því eftir af öllu afli og leggja þar við stöðu sína. En til þess kom ekki, heldur var, eins og kunnugt er, nánast þegjandi og hljóðalaust að sinni horfið frá þessu ráði, án þess að nokkurn tíma væru einu sinni greidd atkvæði um það eða nokkuð skjalfest um afstöðu ríkisstj. eða einstakra ráðh. til málsins. Þessu næst hófust svo ráðagerðirnar um lögbindingu kaupgjalds og verðlags. Og e. t. v. eiga þar bollaleggingar, sem í ótíma var byrjað á, af því að það var áður en nokkrar kröfur voru komnar fram um hækkun á grunnkaupi, nokkra sök á því, hvernig fór. En einmitt um sama leyti eða meðan það mál var á döfinni á Alþ., fóru kröfurnar um grunnkaupshækkanirnar að koma fram. Um lögbindinguna tókst ekkert samkomulag, en þegar séð var fyrir endann á því, bættu einmitt fylgismenn lögbindingarinnar gráu ofan á svart með því, áður en séð var fyrir endann á kaupdeilunum, að hækka mjólkurverðið, sem þeir þó höfðu lagt til, að lögbann yrði lagt við að hækka. Og hafi nokkur von verið um það áður, að takast mætti að koma í veg fyrir grunnkaupshækkanirnar, þá var úti um það, eins og þá var komið. Síðan höfum við fengið reynslu fyrir því, að lögbinding kaupgjaldsins er óframkvæmanleg nema í samvinnu við verkalýðsfélögin. Saga gerðardómsl. hefur fært okkur heim sanninn um það. Eins og komið var, gat það þó engu spillt, þó að gerðardómsleiðin væri reynd. Grunnkaupshækkunin hlaut að koma, ef ekkert var að gert. Hún kom þrátt fyrir gerðardómsl., hún kom í fullkomnu trássi við þau, þó að látið væri heita svo á yfirborðinu, að hún kæmi að nokkru leyti samkvæmt þeim. Og hún kom með baktjaldasamningum milli vinnuveitenda og verkamanna, þannig að kaup var greitt fyrir tímavinnu, sem var ekki unnin. Og hún var knúin fram opinberlega, þvert ofan í gerðardómsl., með stöðvun hafnarvinnunnar. En þegar svo var komið, að kaupgjaldið var losnað úr öllum böndum og landbændur urðu einnig nauðugir viljugir og það fyrir milligöngu opinberrar stofnunar að fótum troða þessa lagasetningu og beygja sig undir ólöglega kauphækkun við framleiðslu sína, og að því hlaut að reka, að þeir yrðu líka að fara að komast á snið við lögbindingu afurðaverðsins eða að öðrum kosti að horfa fram á taprekstur búa sinna, þá varð ekki hjá því komizt að afnema lögin. Það var þá heldur engin eftirsjón að þeim, því að þau höfðu aldrei að neinu haldi komið.

Og nú höfðu verkalýðssamtökin náð tilgangi sínum. Þeim hafði tekizt að koma fyrir kattarnef þessari einu tilraun, sem gerð hafði verið til þess að hafa hemil á verðbólgunni. Forustumenn þeirra hafa prédikað það fyrir lýðnum, að kauphækkun hefði engin áhrif á verðbólguna, að minnsta kosti ekki hækkun grunnkaupsins! Nú held ég, að þeir hafi þó sannfærzt um það gagnstæða. Menn greinir á um það, hver muni vera meðalgrunnkaupshækkun verkamanna í landinu. En það vita allir, að vinnulaunin með grunnkaupshækkun og verðlagsuppbót hafa allt að því fimmfaldazt frá því fyrir stríð og kaupgjald við landbúnaðarframleiðslu hefur jafnvel víða um land hækkað enn meira. Samtímis hefur afurðaverðið til neytendanna 4–5–faldazt. Af þessu leiddi svo m. a., að rekstrarútgjöld ríkisins á síðasta ári þurfa að vísu ekki fjór- til fimmfaldazt, en hækkað þó sem svarar hækkun meðalverðlagsvísitölunnar. Og af því leiðir, að ekki hefur orðið hjá því komizt að leggja auk þess á ríkissj. milljónaútgjöld til að verðbæta útflutningsafurðir landbúnaðarins, af því að verðlag í öðrum löndum hefur hvergi nærri hækkað að sama skapi og hér. Og af því leiðir einnig, að þó að ríkissj. hafi nú í handbæru fé 20–25 millj. kr., þá skuldar hann mikinn hluta þess fjár vegna skuldbindinga um verðuppbætur á óútfluttar gærur og ull.

Á tveim síðustu árum hefur ríkissj. aflazt mikið fé umfram gjöld, sem þó hafa stórhækkað vegna vaxandi dýrtíðar. Tekjuafgangur á rekstrarreikningi hefur á þessum 2 árum orðið samkv. mínum reikningi nær 60 millj. kr. Af því eru geymdar og lagðar til hliðar um 17 millj. kr. til framkvæmda að stríðinu loknu. Til eignaaukninga ríkisstofnana og eignakaupa hefur verið varið um 13 millj. kr. Handbært fé í sjóði og hjá innheimtumönnum má telja um 25 millj. kr. Til verðuppbóta á útflutningsafurðum landbúnaðarins frá siðasta ári hefur verið varið 2½ millj. kr., og til verðlækkunar á fóðurmjöli og tilbúnum áburði hefur á síðasta ári verið varið um 2 millj. kr. Ógreiddar verðuppbætur á óútfluttar landbúnaðarafurðir samkv. þál. frá í ágúst 1942 hefur verið gert ráð fyrir að mundu verða einhvers staðar milli 10 og 20 millj. kr., en nú hefur hæstv. fjmrh. í ræðu sinni gefið góðar vonir um, að þær muni ekki þurfa að fara mikið fram úr lægri upphæðinni.

Mér þótti það gegna nokkurri furðu, er háttv. frsm. fjvn. á síðasta þ. lét orð falla um það, að það mætti teljast illur endir á fjármálastjórn Sjálfstfl. eða fjmrh. þess flokks eftir þau miklu tekjuár, sem ríkissj. hefði átt að fagna í stjórnartíð hans og þó sérstaklega síðasta ár, þegar tekjur ríkissj. komust upp í, að hann taldi þá, 86 millj. kr., að verða nú að lokum að skila af sér tómum „ríkiskassanum“. Þessi frsm. fjvn. er nú, eins og kunnugt er, einn af þm. og helztu forustumönnum annars verkalýðsflokksins á Alþ., háttv. þm. Ísaf.

Það má nú segja, að slík ummæli úr hans munni hafi komið úr hörðustu átt, þegar þess er gætt, af hverjum sökum rekstrarútgjöld ríkissj., eins og þau eru talin í rekstraryfirliti ríkisbókhaldsins, fóru 25 millj. kr. fram úr því, sem þau gjöld urðu á árinu 1941, meðan flokkur hv. þm. var einn þátttakandinn í ríkisstj., eða að það stafaði af því einu, að þau hlutu að fylgja eftir hækkun verðlagsvísitölunnar að mestu. Og þegar þess er þá einnig gætt, að ef svo færi, að hinar ógreiddu verðuppbætur á útflutningsafurðir bænda skyldu nú hartnær éta upp þær 25 millj. kr., sem þó má telja, að handbærar séu enn af tekjum tveggja síðustu ára, eftir að lagðar hafa verið til hliðar 17 milljónir kr. til verklegra framkvæmda og 13 millj. hefur verið varið til eignaaukningar ríkissj. og ríkisstofnana, þá er það einnig bein afleiðing af aukningu dýrtíðar innar eða hækkun framleiðslukostnaðarins í landinu, sem af henni leiðir.

Þessi aukning dýrtíðarinnar og framleiðslukostnaðarins í landinu er ekki afleiðing af aðgerðum Sjálfstfl. eða ávöxtur af kenningum hans. Sjálfstfl. hefur af öllum mætti reynt að leiða almenningi í landinu fyrir sjónir, hvílíkur háski þjóðinni væri búinn af þeirri kröfupólitík, sem rekin hefur verið af öðrum stjórnmálaflokkum og þá ekki sízt af flokki þessa hv. þm., sem einhliða hefur blínt á að þvinga fram kaupgjaldshækkanir, þótt augljóst mætti vera hverjum skynbærum manni, hvaða afleiðingar þær mundu hafa og það þó að ekki hefðu þar til viðbótar borizt allar þær aðvörunarraddir, sem sífellt hafa kveðið við frá öðrum þjóðum, sem meiri reynslu og þroska hafa í þessum efnum en við, um það, hver háski stafaði af sífelldum hækkunum kaupgjalds og verðlags.

En undir fjármálastjórn Sjálfstæðisflokksins hefur hins vegar tekizt þrátt fyrir hina geypilega auknu dýrtíð og hinar gífurlegu kvaðir, sem á ríkissj. hafa verið lagðar af þeim sökum, að standast öll áföll og skila „ríkiskassanum“ — ekki tómum, eins og hv. frsm. fjvn. taldi, heldur með 17 millj. kr. í handbærum varasjóði og eignaaukningu, sem nemur 13 millj., og þar til viðbótar væntanlega meiri hluta þeirrar sjóðseignar, sem talin er í greiðsluyfirliti ríkisbókhaldsins, 21 millj., en ég tel, að muni verða nær 25 millj. Og þó að þetta sé að vísu minna en efni gátu staðið til, þá tel ég ekki, að Sjálfstfl. þurfi að bera kinnroða fyrir það fyrir sitt leyti. Hins vegar læt ég aðra um að svara því, hvernig til mundi hafa tekizt fyrir þeim flokkum, sem í sameiningu fóru með stj. landsins á veltiárunum 1928–'30 og þar á eftir, þegar tekið var hvert 5–10 millj. lánið á fætur öðru til þess m. a. að standa straum af árlegum rekstrarútgjöldum ríkisins, þar til er allt rak í strand, af því að hvergi var lán fáanlegt.