06.09.1943
Neðri deild: 8. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 344 í B-deild Alþingistíðinda. (231)
30. mál, einkasala á tóbaki
Sigurður Kristjánsson:
Ég var að vonast eftir, að hæstv. ráðh. mundi svara þessari fyrirspurn, sem fram var borin á þessari stundu, því að sumt í henni er það sama, sem ég gjarnan vildi fá upplýst. Ég hef ekki heyrt getið um þetta mál, fyrr en hæstv. forseti tilkynnti um það áðan, og skilst mér það eiga að fara áfram með óvenjulegum hraða og nokkurri leynd, þar sem það má ekki komast út til almennings sem stendur. Þessa nýju tekjuöflun ber þannig að, að maður skyldi ætla, að verið væri að forða frá einhverjum aðsteðjandi voða. Nú hef ég ekki heyrt á það minnzt, að hagur ríkissj. sé neitt bágborinn, heldur hið gagnstæða. Og þess vegna finnst mér þetta bera mjög undarlega að. Maður sér ekki, hvað þetta muni verða mikil fjárhæð, og hæstv. ráðh. virðist ekki heldur vilja svara því. Ekki hefur neitt heyrzt um það, hvort búizt er við, að ríkissj. verði fyrir svo miklum skakkaföllum í náinni framtíð, að stofna þurfi til nýrrar tekjuöflunar fyrir hann. Og manni virðist, að álögurnar séu þó nokkurn veginn komnar í það horf, að telja verður það fyllsta, sem leggjandi er á þegnana. Allt ber þess vegna þannig að, að ég fæ ekki skilið. Hæstv. stj. virðist ekki vilja gefa í heyranda hljóði frekari skýringu á þessu máli, því að það er vitanlega engin skýring að segja, eins og í grg. frv., að stj. telji ekki heppilegt að binda álögurnar við þetta eða hitt. Fyrst svona ber að, þá finnst mér sjálfsagt, að málið fari til fjhn., og getur stj. þá gefið þeirri n. þær skýringar, sem nauðsynlegar þykja, ef hún vill síður láta neitt koma opinberlega fram.