19.11.1943
Efri deild: 52. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 294 í C-deild Alþingistíðinda. (2310)
17. mál, innheimta skatta og útsvara
Frsm. meiri hl. (Magnús Jónsson):
Frv. svipað þessu kom fram á síðasta þingi og var þá sent til umsagnar tollstjóra- og borgarstjóraskrifstofanna í Reykjavík. Liggja fyrir allgreinilegar umsagnir frá báðum. Þó að nál. meiri hl. á þskj. 357 sé ekki mjög langt, þarf ég eiginlega ekki miklu við það að bæta. Meiri hl. getur fallizt á, að til bóta væri, að gjöld til ríkis yrðu greidd á allt að 10 gjalddögum og kaupgreiðendum gert skylt að halda í greiðsluskyni eftir hluta af kaupi þeirra, sem hjá þeim vinna, þótt það yrði stundum misvel þokkað í viðbót við það, sem haldið er eftir vegna útsvars. En önnur atriði í frv. gat meiri hl. ekki fallizt á að svo stöddu máli. Það er áreiðanlegt, að sérstök innheimtustofnun, sem þyrfti tvo dýra embættismenn, forstjóra og féhirði, auk annars starfsliðs, yrði til mikils kostnaðarauka frá því, sem er. Og með frv. er gert ráð fyrir að skapa Reykjavíkurbæ þá óviðunandi sérstöðu meðal bæjarfélaga að svipta hann umráðunum á innheimtu tekna sinna. Útsvörin eru miklu meiri hluti af tekjum hans en tekju- og eignarskatturinn af tekjum ríkisins, svo að sanngjarnara væri að fela heldur bæ en ríki innheimtu hvors tveggja í Rvík, ef hagnaður þætti síðar meir að því að sameina innheimtuna. Bænum getur riðið ákaflega á að innheimtan sé vel rækt, og sjálfs er höndin hollust. Skattar ríkisins hafa nú stóraukizt frá því fyrir nokkrum árum, þegar til orða kom, sérstakl. í milliþn., að bærinn tæki að sér innheimtu þeirra, svo að það ráð mun ekki upp tekið í bili.
Vitnað hefur verið í það, að borgarritari hafi, f. h. borgarstjóra, mælt með frv. í svarbréfi sínu. En sannleikurinn er sá, að meðmælin í þeirri ýtarlegu umsögn eru ákaflega miklum skilyrðum bundin og væg, og svo fremi, að ekki sé uppfyllt í frv. aðalkrafa hans, eru í umsögninni mótmæli gegn samþ. frv. í því formi, sem það nú hefur. Það stendur hér, með leyfi hæstv. forseta: „Ef svipta á bæjarstjórn allri íhlutun um innheimtu á langmestum hluta bæjarteknanna, virðist mér ekki ósanngjörn krafa, að tekjur bæjarsjóðs verði að einhverju leyti innheimtar sem forgangskröfur fyrir öðrum persónulegum sköttum“.
Þetta er svo verulegt skilyrði, að ef því er ekki fullnægt, er samþykki bæjarstjórnar úr sögunni. Síðar slær borgarritari dálítið undan og segir, að a. m. k. sé nauðsynlegt, að bærinn hafi íhlutun um yfirstjórn innheimtunnar. Það er ekki um það að ræða í þessu frv. Enda gat meiri hl. ekki séð, hvernig henni yrði við komið.
Að lokum segir borgarritari, með leyfi hæstv. forseta: „Aðalatriðið er þetta, að ég tel ekki mega sleppa hendi af svo veigamiklum þætti í starfsemi bæjarskrifstofanna, fyrr en öruggt megi telja, að þeirri starfsemi sé ekki miður borgið í höndum hinnar nýju stofnunar“.
Sannleikurinn er sá, að í þessu frv. og því, sem lá fyrir síðasta þingi, eru alls engar tryggingar gefnar bæjarstjórn um íhlutun í starfi stofnunarinnar eða hagkvæma skiptingu teknanna. Ef litið er á meðmæli tollstjóra og borgarstjóra, þá byggjast þau eingöngu á því hagræði, sem það er fyrir gjaldendur að geta borgað öll gjöld á sama stað. Kostnaður er mikill. Það má segja, að það séu hagræði að hafa öll gjöld á sama seðlinum og að fara í einn stað til að greiða þau. En ég vil segja um þetta atriði, að af þeim mörgu sporum, sem menn ganga, þá eru þetta bara fá. Og þegar tillit er tekið til þess, hve margir eiga erfitt með að borga þessi gjöld, þá held ég það muni minnstu, hvort þeir þurfa með þau í einn eða tvo staði.
Þá hefur frv. svipting á ráðstöfunarrétti gjaldþegnanna í för með sér. Eins og nú er, hafa gjaldendur leyfi til að ákveða, hvernig þeir skipta þeim peningum, sem þeir hafa aflögu til skattgreiðslu. Hér eru þeir sviptir því. Samkv. frv. greiðir hver gjaldandi ákveðinn hluta af heildarálagningunni, — og þó að það standi ekki í frv., þá má skilja það svo, að það eigi að skipta því, sem innheimtist, hlutfallslega milli bæjar og ríkis. Annað getur varla komið til mála.
Þá er annað einkennilegt í þessu frv., en það er misrétti Reykjavíkur í samanburði við aðra bæi. Í 10. gr. frv. er fjmrh. heimilað að ákveða með reglugerð, að þetta innheimtuskipulag nái einnig til annarra kaupstaða, o,g segir: ,,Fela má hlutaðeigandi sveitarfélagi innheimtuna“.
Þar sem enginn bær, nema Reykjavík, er svo stór, að ríkisstj. mundi detta í hug að setja þar upp innheimtustofnun, heldur verði að fela bæjunum að gera það, þá sér maður, að þetta á að gilda fyrir alla bæi nema Reykjavík. Þar á að fela innheimtuna stofnun, sem bærinn hefur enga íhlutun um á nokkurn hátt.
Það mætti spyrja, hvers vegna meiri hl. hefði ekki komið með brtt. við frv. Það var varla tími til þess, enda ekki svo létt að gera breyt. á frv. eins og það liggur fyrir. Við vildum heldur nýtt frv. um breyt. á l. um tekju- og eignarskatt. Meiri hl. hefði þá orðið að bera fram nýtt frv., og hann taldi réttara, að það yrði ekki gert, fyrr en málið hefði fengið ýtarlegri undirbúning, og lagði því frekar til, að frv. yrði vísað frá með rökstuddri dagskrá. Hann er sem sé ekki á móti aðalatriðum frv., en telur sig ekki geta fallizt á málið eins og það er, og telur heppilegra, að það fari fram ýtarlegri undirbúningur á því, áður en frv. er borið fram. Ég legg því til, að d. samþ. hina rökstuddu dagskrá.