30.11.1943
Neðri deild: 56. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 309 í C-deild Alþingistíðinda. (2357)

31. mál, útsvör

Jón Pálmason:

Ég greiddi atkvæði með þessu frv. við aðra umr. og hygg, að ég geri það einnig við 3. umr.

Út af því, sem hv. 6. landsk. sagði hér áðan, vil ég taka það fram, að ummæli 2. þm. S.-M. um það atriði, að ekki hefði verið ætlunin, að útsvör yrðu lögð á nýbyggingarsjóði, voru rétt.

Ég vil þá leggja til, að frv. verði samþ. og brtt. felld.