07.10.1943
Neðri deild: 28. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 340 í C-deild Alþingistíðinda. (2397)

64. mál, sala mjólkur og rjóma o.fl.

Flm. (Sigfús Sigurhjartarson):

Herra forseti. Við vorum að afgreiða til 3. umr. hér í hv. d. nú rétt áðan annað allmerkilegt mál, þessu máli, sem hér liggur nú fyrir, nokkuð skylt. Og það er ekki nema rétt að minnast þess nú, að þegar það mál kom hér til 1. umr., þá risu upp nokkrir menn hér í hv. d. og töldu, að ekki bæri frekari umsvif á því að hafa, — slíkt mál ætti að fella þegar við 1. umr. En hv. landbn. varð samt sammála um það að mæla með efni frv., þó að hún gerði nokkrar formsbreyt. á því, og það virtist ríkja þar eining um að gera efni frv. að l.

Það liggur einnig fyrir, að um þetta frv., sem hér liggur fyrir, hafa verið höfð stór orð af andstæðingum þess. Og hv. þm. V.-Sk. (SvbH) lagði til, að því yrði ekki vísað til n., heldur tafarlaust fellt við 1. umr. Ég gæti vonað, að undir þeim löngu umr., sem um málið hafa farið fram, þá færi það svo, að hv. þm. féllust á að láta það fá svipaða afgreiðslu sem mál það fékk, sem hér var afgreitt næst á undan til 3. umr. í hv. þd., sem sé að afgreiða það að efni til þrátt fyrir stór orð andstæðinga málsins undir umr. Og ég skal í því sambandi segja, að oft er í það vitnað, að ég hafi í frumræðu minni talið, að rétt og eðlilegt væri að hafa stuttar umr. um þetta mál við 1. umr. Ég sagði það m. a. af því, að þetta mál var þrautrætt undir umr. um annað mál, þ. e. a. s. í sambandi við frv. um niðurfelling á valdi kjötverðlags- og mjólkurverðlagsn. Hins vegar er fjarri því, að ég sjái eftir þeim tíma, sem farið hefur í að ræða þetta mál, ef að mætti verða til þess að sami árangur næðist af þeim umr. og um málið, sem hér var afgreitt til 3. umr. næst á undan.

Ég ætla svo að víkja nokkrum orðum að ræðu hv. þm. Hafnf. (EmJ), sem hann flutti hér í hv. d. nýlega. Hann gat þess, að hann hefði verið allmjög við riðinn undirbúning lagasetningarinnar um sölu mjólkur og mjólkurafurða 1935. Hann gat þess, að um það hefði verið þá samkomulag milli Alþfl. og Framsfl., að allt, sem ynnist fjárhagslega við það breytta skipulag, skyldi skiptast til helminga milli framleiðenda og neytenda. Hann gat þess einnig, að þrennt hefði í raun og veru átt að nást með mjólkurskipulaginu, að neytendur fengju betri mjólk, að neytendur fengju ódýrari mjólk, og í þriðja lagi, að nægilega mikið yrði til af mjólk. Og síðan lýsti hann yfir, að ekkert af þessu hefði náðst með mjólkurskipulaginu og að það samkomulag, sem gert var milli Framsfl. og Alþfl., hefði af hálfu framsóknarmanna í einu og öllu verið svikið. Ég hygg, að það sé vafalaust allt rétt, sem hv. þm. Hafnf. hefur í þessu máli sagt. Og mér var á þeim tíma eins og honum allmjög kunnugt um þann undirbúning, sem að þessum l. var hafður, og það samkomulag, sem þá var gert milli Alþfl. og Framsóknarfl.

Þegar svo sá hv. þm. kemur að því að ræða það frv., sem fyrir liggur, dregur hann það mjög í efa, að það nái þeim tilgangi að bæta úr þeim meinum, sem eru á þessum málum í framkvæmd þeirra. Hann dregur í efa, að meiri mjólk fengist á markaðinn, hann dregur í efa, að mjólkin verði betri, og hann dregur í efa, að þessi ákvæði mundu stuðla að því, að mjólkin yrði ódýrari, þ. e. dreifingarkostnaðurinn minni. Víðvíkjandi fyrsta atriðinu er það að segja, að um það fjallar þetta frv. ekki að neinu leyti. Og það er rétt ályktað hjá hv. þm., að það hefur — þótt samþ. verði — engin áhrif á það, hvort mikið eða lítið framboð verður á mjólk í Reykjavík og Hafnarfirði í náinni framtíð. Til þess nær frv. ekki. Það liggur fyrir utan þess takmörk.

Annars skal ég taka undir það, sem hv. 7. þm. Reykv. (SK) sagði um þetta atriði, að mjólkurskorturinn, sem við eigum nú þessa dagana við að búa hér í Reykjavík og Hafnarfirði, er í raun og veru árstíðafyrirbrigði, sem væntanlega stendur ekki mjög lengi, en hins vegar er ekki um það að ræða, að allan ársins hring sé um skort á þessari neyzluvöru að ræða.

Að mjólkin geti orðið betri með því að lögfesta það frv., sem hér er um að ræða, það tel ég ekkert vafamál. Við vitum, að eins og sakir standa, er ástandið í mjólkurvinnslunni hér í Reykjavík með öllu óþolandi, það erum við, ég og hv. þm. Hafnf., sammála um. Og við erum sjálfsagt líka sammála um, að það sé tiltölulega auðvelt að bæta úr þessu, að svo miklu leyti sem rætur þess ástands má rekja til þess, að vinnslan hér í mjólkurstöðinni í Reykjavík sé í slæmu lagi, og að svo miklu leyti sem kynni að vera áfátt meðferð mjólkurinnar í búunum. Hitt næst sjálfsagt ekki með þessu frv. að bæta úr þeim göllum, sem á mjólkinni eru sem vöru, vegna þess að hún er langt að flutt og að sett er saman í eitt mjólk með ólíku gæðamagni o. s. frv., o. s. frv.

Að dreifingarkostnaðurinn gæti orðið minni með samþ. þessa frv., — ég held, að það sé ekkert vafamál, að það sé hægt að draga úr honum. Við vitum, að eins og sakir standa, eiga bændur að fá kr. 1,23 fyrir mjólkurlítrann heim, en útsöluverð mjólkurinnar er hins vegar ákveðið af mjólkursölun. kr. 1,70. Þarna fer í dreifingarkostnað, vinnslu og verðjöfnunargjald 47 aurar af hverjum lítra, sem sýnist vera mjög órýmilega há upphæð, og væri ákaflega illa á haldið af bæjarins hálfu, ef hann tæki í sínar hendur vinnsluna, ef ekki mætti lækka kostnaðinn við hana að verulegu leyti.

Ég vildi svo spyrja hv. þm. Hafnf. að því, hvaða till. hann vill fram bera til úrbóta í þessu máli. Sú yfirlýsing hans stendur, að mjólkurskipulagið hafi ekki að neinu leyti náð tilgangi sínum, og einnig, að ástandið sé þannig, að ekki verði við það unað til lengdar. Og sú yfirlýsing hans stendur, að sú stjórn á mjólkurmálunum, sem hefur verið undanfarið, sé ein bezta og beinasta leið til þess að framkalla byltingarástand meðal neytenda. Þar sem þessi hv. þm. hefur gefið allar þessar ákveðnu yfirlýsingar, þá er það að minni hyggju skylda hans — og vafalaust líka vilji hans — að koma fram með tillögur til úrbóta. Ég ætlast ekki endilega til þess, að hann komi með þær till. nú á þessu stigi málsins. Ég tel víst, að hann komi með þær áður en 3. umr. fer fram og undir meðferð málsins í n. Og er þá að sjálfsögðu rétt að athuga þær till. og vita, hvort þær geta ekki að einhverju eða öllu leyti samrýmzt því frv., sem fyrir liggur. Svipað vildi ég segja við hv. 7. þm. Reykv. (SK), sem hefur eindregið látið í ljós fylgi sitt við frv. í meginþáttum að mér skilst. En hins vegar hef ég séð, að flokksbræður hans í Morgunblaðinu eru á líkri skoðun og hv. þm. Hafnf., að þetta frv., sem fyrir liggur, muni ekki að öllu bæta úr þeim göllum, sem eru á mjólkurskipulaginu. Og vil ég þá einnig spyrja þann hv. þm., hverjar séu hans till. í málinu. Ég segi það sama við hann og hv. þm. Hafnf., að ég fer þess ekki sérstaklega á leit, að þessar till. komi fram við þessa umr., en komi fram milli umr. undir meðferð málsins í n. Og vænti ég þá að við, þessir 3 þm., sem ég hygg, að tölum fyrir munn þriggja flokka, getum orðið sammála um að leggja hér fram brtt., sem gæti bætt úr öllum þessum göllum, sem þessir tveir hv. þm., þm. Hafnf. og 7. þm. Reykv., telja, að á séu og ekki verði bætt úr með okkar frv., sem hér liggur fyrir.

Annars fór meginhlutinn af ræðu hv. þm. Hafnf. í það að ræða um starf sex manna n. Það er að vísu þessu máli óviðkomandi, en samt ákaflega eðlilegt, að það sé rætt í þessu sambandi, vegna þess að sú óöld hefur nú steðjað að okkur, að svo virðist sem hin mikilvægustu mál eigi að afgreiða bak við þingið og þm. eigi þá ekki annars úrkosta en grípa tækifærið og ræða um þau mál, sem þannig eru afgreidd utan við þingið, þegar rædd eru skyld mál á Alþ. Það er alkunna, að ríkisstj. hefur í hyggju að lækka verð landbúnaðarafurða á innlendum markaði með því að leggja fram fé úr ríkissjóði án þess að leita á ný samþykkis þingsins. Og það er kunnugt, að 14 framsóknarmenn og 14 sjálfstæðismenn hafa skrifað undir eins konar leynda yfirlýsingu um það, að þeir séu með því að verðbæta þær landbúnaðarafurðir, sem út verða fluttar, svo að bændur fái það verð fyrir þær, sem sex manna n. ákvað. Þessi meðferð máls er svo mikil árás á hæstv. Alþ., að mér finnst eðlilegt, að hv. þm. Hafnf. ræði þetta mál í sambandi við skylt mál, sem fyrir liggur.

Hv. þm. Hafnf. gagnrýndi ákaflega mikið grundvöll þann, sem sex manna n. byggði á niðurstöður sínar, og ég get sagt það, að ég hygg, að gagnrýni hans hafi verið byggð á mjög veigamiklum rökum í öllum meginatriðum. Það er mála ljósast, að búreikningar frá 40 bændum geta ekki gefið neitt ábyggilegt sýnishorn af meðalbúrekstri íslenzkra bænda, en þeir eru, sem kunnugt er, eitthvað um 6400. Það er líka augljóst, að ýmsir liðir, sem fram hafa komið í þessum búreikningum, eins og t. d. 900 kr. í vaxtagreiðslur, eru ekki réttir. Það hafa þegar verið færð að því sterk rök, að liður sá, sem áætlaður hefur verið til kaupgreiðslna vegna aðkeypts vinnuafls fyrir meðalbú, muni hafa verið reiknaður of hár. En öll þessi gagnrýni sannar ekki það, að starf sex manna n. og niðurstöður hennar hafi ekki verið ákaflega þýðingarmikið hvort tveggja. Það þýðingarmikla, sem gerzt hefur, er það, að inn á þá braut hefur verið farið að semja milli neytenda og bænda um verðlag á þeirri vöru, sem bændur selja neytendum á innlendum markaði. Sex manna n. hafði ákaflega takmarkaðan tíma til starfa, og ég fæ ekki séð, að hún hafi átt annars úrkosta en taka þá búreikninga, sem fyrir lágu, og byggja á þeim, þó að ófullkomnir séu. Hitt er svo sjálfsagt, þegar næst verður að því horfið að reikna út vísitölu landbúnaðarafurða, sem á að verða á næsta hausti, ef stríðið heldur áfram á þeim tíma, að þá verði búið að vinna að því að endurskoða þennan grundvöll rækilega, svo að þá verði hægt að byggja niðurstöður um verðlagningu landbúnaðarafurða á traustari grundvelli en tekizt hefur að þessu sinni. — Ég skal svo ekki fjölyrða meira um ræður þeirra hv. þm., sem eru mér sammála um, að mjólkurskipulagið hafi ekki náð tilgangi sínum og á því þurfi að gera stórkostlegar endurbætur og að það frv., sem hér liggur fyrir, sé a. m. k. mjög til athugunar. Og mér skildist á öðrum þessara hv. þm., að hann hefði trú á því, að frv. bætti verulega hér úr. Ég endurtek aðeins þá ósk mína, að þeir komi með till. sínar fram í málinu, svo að við getum fundið sameiginlega lausn í málinu til þess að bæta úr því slæma ástandi í mjólkurskipulagsmálunum, sem við eigum við að búa.

Ég skal þá víkja nokkuð að tveimur hv. þm., sem hér hafa gerzt andmælendur frv. og verjendur mjólkurskipulagsins, nefnilega hv. þm. V.-Sk. (SvbH) og hv. 2. þm. S.-M. (EystJ). Það er að, sjálfsögðu nokkuð sama, hvor þeirra er til grundvallar lagður, því að meginatriðin í ræðum beggja voru þau sömu. Nú skal ég að vísu taka það fram, að mér er miklu kærara að rökræða við hv. 2. þm. S.-M. en hv. þm. V.-Sk. En hins vegar er það svo, að ræða hv. þm. V.-Sk. náði yfir ýmislegt, sem hv. 2. þm. S.-M. drap ekki á, og ég kýs þess vegna heldur að leggja ræðu hans til grundvallar svari mínu.

Hv. þm. V.-Sk. hóf mál sitt með því að benda á það, að mjólkurskipulagið hefði þó náð tilgangi sínum að því leyti, að mjólkurframleiðslan á verðlagssvæði Reykjavíkur hefði aukizt mjög mikið þau ár, sem samsalan hefur starfað. Hann sagði okkur það, að mjólkurmagnið hefði verið, þegar samsalan hóf starf sitt, 6,3 millj. lítrar, og nú væri hún 15 millj. lítra. Út úr þessu einkennilega dæmi fékk svo þessi hv. þm. það og margendurtekur það, að mjólkurmagnið hafi þrefaldazt. Skilst mér þá, að eftir hans reikningsreglum séu 3 x 6,3 = 15. En mín margföldunartafla eða sú, sem mér var kennd í skóla, er ekki svona. Mér var ekki kennd hún svona. En þetta er ekki nema sýnishorn af því, hve nákvæmur þessi hv. þm. er í málflutningi sínum, einnig þegar hann fer að styðjast við tölur. Á öðru var ég þó enn meira hissa, þegar ég fór að athuga þær tölulegu staðhæfingar hans. Ég hef hér fyrir mér hina margumtöluðu reikninga mjólkursamsölunnar, sem þessi hv. þm. hefur svo oft talað um og sagt, að hafi fengið svo rækilega endurskoðun o. s. frv. Ég hef þá frá upphafi. Þar er og reikningur síðasta árs, 1942. Á þessum reikningum sést, að mjólkurmagnið 1935 hafi verið 9,9 millj. lítra, en nú sé það 15,7 millj. lítra. Ég skal ekki fjölyrða um þetta, en mér kemur það dálítið undarlega fyrir sjónir hjá formanni mjólkursölun., sem hann segir hér, þegar maður ber það saman við þessa margumtöluðu reikninga og skýrslur, sem hér eru fyrir hendi. En það er kannske í samræmi við þessa merkilegu margföldunartöflu, sem segir, að þrisvar sinnum 6,3 sé 15.

Næst kom þessi hv. þm. að því, að aldrei væri send svo vara frá mjólkurstöðinni, að hún væri ekki undir nákvæmu sérfræðinga eftirliti, sem framkvæmt væri með það fyrir augum, að varan væri holl og góð. Þóttist hann með því geta sannað, að stórkostlegar umbætur hefðu orðið á þessu sviði og nú þyrftu Reykvíkingar ekki að kvarta yfir því, að varan væri slæm. Það getur vel verið, að svo sé, að til séu sérfræðingar hjá Mjólkursamsölunni, sem eigi að hafa þetta verk með höndum. En samt sem áður hafa Reykvíkingar hvað eftir annað fengið óhreina mjólk. Og það hefur sjaldnar en vænta mátti borið við, að slík mjólk væri send til rannsóknar í rannsóknarstofnun ríkisins, en þegar það hefur við borið, þá hafa reynzt í mjólkinni óhreinindi, sem eiga ekki þar að vera. Það hefur líka ósjaldan komið fyrir, að Reykvíkingar hafa fundið, að mjólkin, sem þeim var seld, var með vatnsbragði, og það hefur sjaldnar en vænta mátti komið fyrir, að þetta hefur verið rannsakað. En þegar það hefur verið rannsakað, hefur það reynzt vera svo, að vatn hefur verið í mjólkinni og stundum verulegt. Mér dettur ekki í hug að halda fram, að einhver óráðvandur maður standi inni í samsölunni og helli vatni í mjólkina. Ég þykist vita, að kælivatn mjólkurstöðvarinnar hafi komið í mjólkina. Þannig getur það kannske gengið dögum saman, án þess að það sé athugað. A. m. k. þekkjast reykvískar húsmæður, sem fullyrða, að oft kenni vatnsbragðs í mjólkinni, sem þær fá. Viðvíkjandi þessu eftirliti að öðru leyti vil ég segja það, að mér hefur verið tjáð eftir góðum heimildum, að hver sá maður, sem unnið hefur hjá Mjólkursamsölunni og hefði getað talizt með einhverjum sérstökum hætti fulltrúi neytendanna þar, annaðhvort við heilbrigðiseftirlit eða annað, hafi jafnan átt undir högg að sækja hjá hv. þm. V.-Sk. við starf sitt við samsöluna eða verið látinn fara. Ég ætla, að þessi hv. þm. muni naumast neita því, að einu sinni bar við, að einn sérfræðingur samsölunnar ritaði grein í Morgunblaðið eða blaðið hafði viðtal við hann, sem það birti, þar sem þessi sérfræðingur lét þess getið, að til þess bæri brýna nauðsyn, að áhrif neytendanna á rekstur mjólkurstöðvarinnar og heilbrigðiseftirlit þar yrðu aukin. Ég hygg, að þessi hv. þm. neiti því ekki, að þegar þessi grein birtist, hafi hann sagt við þennan starfsmann, að það væri bezt fyrir hann að fá atvinnu hjá Morgunblaðinu. Og mér er kunnugt um, að ágætir menn hafa hrökklazt frá stöðinni, beinlínis vegna ógnana þessa hv. þm. og ótta við að hafa stöðugt svipu hans yfir höfði sér.

Hv. þm. viðurkenndi, að þrátt fyrir þetta makalausa eftirlit, sem á að vera á þessari stöð, þá gæti komið fyrir, að bæjarbúar fengju óhreina eða vatnsblandaða mjólk. Það er gaman að rifja upp, hvað Tíminn hefur um þetta að segja. Þegar kærur hafa komið fram frá bæjarbúum, hefur það ætíð verið kallað uppspuni frá rótum, árás á bændur og þar fram eftir götunum. Sem sagt, þetta virðulega flokksblað hefur ekki viðurkennt, að óhöpp gætu komið fyrir, það væri allt uppspuni og ekkert annað.

Þá talaði hv. þm. um, að hafin væri mesta rógsherferð gegn bændum, vegna þess að þeir okruðu á vöru sinni. Hér er ákaflega málum blandað. Ég vil a. m. k. víkja frá mér og mínum flokki öllu ámæli í þá átt. Við teljum, að bændur séu ekki neitt of haldnir af því verði, sem þeir hafa fengið fyrir framleiðsluvörur sínar. Það er ekki það, sem verið er að deila hér um, heldur hvernig nokkrir framsóknarmenn stjórna þeim fyrirtækjum, sem annazt hafa sölu og dreifingu á mjólk og mjólkurafurðum.

Þá kom þessi hv. þm. enn með það, að þegar við erum að borga niður verð á landbúnaðarafurðum,, þá séum við að leggja neytendum styrk. Neytendastyrkur heitir það á hans máli. Ég verð að segja, að mér finnst fáránlegt, þegar menn eru að þrátta um, hvort þetta eigi að heita neytendastyrkur eða bændastyrkur, því að það er nefnilega hvorugt. Bændur fá nú ákveðið verð fyrir vöruna, og þá skiptir í því sambandi engu máli, hvort stj. borgar verðið niður á markaðnum eða ekki, og neytendur í Reykjavík skiptir það heldur engu máli. Það er alls ekki verið að lækka dýrtíðina í Reykjavík, heldur vísitöluna. Fyrir þessa verðlækkun fá þeir lægri laun og hækkaða skatta, og eftir þeim viðskiptum óska neytendur ekki. Hverjir eru það þá, sem græða? Því er auðsvarað. Við vitum hverjum það er til góðs, að vísitalan lækki án þess að dýrtíðin lækki. Það eru fyrst og fremst þeir, sem flytja vörur út úr landinu. Sé þessi styrkur einni stétt til góðs, þá eru það útflytjendurnir, fyrst og fremst þeir stærstu, og ef menn vilja kenna hann við einhvern hóp manna í landinu, þá er rétt, að hann sé kenndur við þá, sem það á heima hjá. Þetta er nefnilega styrkur til stórútflytjendanna í landinu.

Hv. þm. sagði, að það væri rétt, að nokkur þúsund lítrar af mjólk væru nú mitt í mjólkurskortinum seldir setuliðinu, og mér skilst, að verðið á þeirri mjólk sé lækkað með framlagi úr ríkissjóði. Það er búið að beina þessu máli til hæstv. stj., og ég vænti, að þaðan fáist skýr svör, svo að ég sé ekki ástæðu til að krefja hv. þm. frekar sagna um það, enda býst ég varla við, að upplýsingum hans verði treyst í þessu máli frekar en í svo mörgum öðrum.

Þá kom hv. þm, að því, að með frv. því, sem fyrir liggur, eigi að svipta bændur umráðarétti yfir vöru, sem þeir framleiði, áður en hún sé fullunnin. Mér er spurn: Er það vilji hv. þingmanna, að einhver mjólkurpostuli, einhver séra Sveinbjörn, eða einhver kjötpostuli, einhver kaupfélagsstjóri austan af Rangárvöllum, eigi að fylgja kjötbitanum ofan í pottinn hjá hverri húsmóður eða mjólkurdropanum í könnuna inn á borð? Kannske hann vilji ekki sleppa eftirliti sínu yfir mjólkinni, fyrr en hún er komin inn á borð? Mér skilst, að inn á borðið vilji hann láta sinn handlegg ná til að fylgja vörunni eftir. En þegar verið er að tala um, að bændur eigi að hafa rétt hliðstætt við verkamenn til að fylgja vöru sinni, þar til hún er fullunnin, þá vil ég spyrja, hvaða rétt hafa verkamenn til að fylgja þeirri vöru, sem þeir framleiða, þangað til hún er fullunnin? Sú regla gildir yfirleitt, að varan fer frá einum til annars, þar til hún er fullunnin, og sá fyrsti telur sig ekki hafa neinn sjálfskapaðan rétt til að fylgja henni að lokamarkinu. Ég veit, ekki til þess, að sjómenn eða útgerðarmenn hafi gert kröfu til að annast sölu og dreifingu á fiski í Reykjavík, sem er þó sannarlega mikils vert, hvernig er framkvæmt. Á sama hátt hafa bændur engan sjálfsagðan og eðlilegan rétt til að fylgja sinni framleiðsluvöru alla leið inn á borð neytendanna. Þar sem annars staðar er eðlilegt, að hönd selji hendi, einn taki við af öðrum, eftir því sem vinnslunni þokar áfram, þar til varan kemst fullunnin í hendur neytenda.

Hv. þm. V.-Sk. segir í þessu sambandi, að með þessum till. um mjólkurskipulagið sé verið að setja gerðardóm, og hann hefur ekki látið sér nægja að ræða þetta í þinginu, heldur hefur hann skrifað um þetta fjálglega grein í flokksblað sitt, Tímann. Hver er svo breyt., sem lagt er til, að verði á skipun mjólkurverðlagsn.? Hún er sú, að í stað þess, að landbrh. hefur áður skipað oddamann n., á hann nú að vera tilnefndur af hæstarétti. Áður hefur n. verið þannig skipuð, að framleiðendur hafa undir öllum kringumstæðum átt þar þrjá menn, en neytendur aðeins tvo, og það er vitað mál, að þessir fulltrúar neytenda hafa yfirleitt verið atkvæðum bornir í n. og þeirra till. að engu hafðar. Ef það er gerðardómur, sem á að koma samkvæmt þeim till., sem nú liggja fyrir, þá hefur það, sem aður var, verið sjálfdæmi, stéttarsjálfdæmi. Bændur einir og fulltrúar þeirra hafa ráðið öllu um verðlagið, eins og n. hefur verið skipuð. Slíkt sjálfdæmi hafa verkamenn aldrei farið fram á og enginn fyrir þeirra hönd, heldur hafa þeir samið um kaupgjaldið og ætíð sýnt þar mikið langlundargeð og samningalipurð.

Ég skal svo í þessu sambandi minna á og svara þá um leið hv. 2. þm. S.-M., að nú er svo ástatt, að bændur fá ákveðið verð fyrir sína vöru, eins og hún kemur í mjólkurstöðina og eins og hún kemur á markaðinn yfirleitt. Og meðan svo er, þá hefur mjólkurverðlagsn. ekki um neitt að fjalla nema till. um álagningu fyrir dreifingarkostnaði, verðjöfnunargjaldi og vinnslukostnaði, og er nú verið að leggja til, að till. hennar síðan fari í viðskiptaráð. Hv. 2. þm. S.-M. segir, að það sé aðeins bráðabirgðaástand, og það er alveg rétt, að þau ákvæði ná aðeins til þess tímabils, sem stríðið stendur yfir. Annað mál er það, að mér fyndist rétt og eðlilegt, að þingið færi inn á þá braut að gera þetta bráðabirgðaástand að varanlegu ástandi. Það er búið að semja um, að bændur fái heim til sín ákveðið verð fyrir þá vöru, sem þeir selja a innanlandsmarkaði. Og ég skal í þessu sambandi taka fram, að ég get vel hugsað mér, að þeir, sem um þetta semja, verði einmitt þessir menn, sem fulltrúar bænda og neytenda eiga að tilnefna, þessir fulltrúar semji um verðið, en oddamaðurinn komi fyrst til greina, ef ekki verður samkomulag, hann verði eins konar sáttasemjari. Það er sama fyrirkomulag og gildir í kaupgjaldsmálum. Þar mætast fyrst aðilar kjörnir af verkamönnum og vinnuveitendum, en náist ekki samkomulag milli þeirra, kemur ríkisskipaður sáttasemjari og reynir að jafna deiluna.

Þá hélt hv. þm. V.-Sk. því fram, að hér væri verið að fara fram með ódæmum miklum, þar sem ætti að taka af bændum réttmæta eign þeirra án endurgjalds. Hann las upp úr frv., sem fyrir liggur, eina setningu, sem hann hugðist styðja mál sitt við. Hann neyddist þó til að bæta nokkru síðar við, aðspurður. Þessi viðbót sýnir, að þessi staðhæfing hans er fleipur eitt og ekkert annað. Með leyfi hæstv. forseta skal ég lesa upp það, sem um þetta er í frv. Það hljóðar svo: Nú ákveður bæjarstjórn eða hreppsnefnd að hagnýta sér sérleyfisrétt sinn til sölu og dreifingar á mjólk og mjólkurafurðum samkv. 5. gr. hér að framan, og tekur hún þá við öllum eignum og réttindum, þ. á m. leiguréttindum þeirrar mjólkursamsölu, sem starfandi kann að vera í umdæminu, með skuldum, sem á þeim kunna að hvíla, og án annars endurgjalds. Þau mjólkurbú eða þeir mjólkurframleiðendur, sem kunna að hafa lagt fram stofnfé eða önnur peningaframlög til mjólkursamsala eða mannvirkjagerða þeirra vegna, skulu fá það endurgreitt.

Sem sagt, það, sem framleiðendur hafa lagt fram, verður þeim endurgreitt. Hann gat þess, að slík fyrirtæki væru jafnan reist fyrir lánsfé og því yrði ef til vill komizt að þeirri niðurstöðu, að bændur ættu ekkert að fá. En þetta er hreinn misskilningur, því að ef bændur hafa af eigin fé greitt þessar skuldir niður, þá eiga þeir að fá það endurgreitt. En um mjólkurstöð Reykjavíkur er þessu ekki til að dreifa, því að þar er ekkert lánsfé fyrir hendi. Og í þessu sambandi er komið inn á merkilegt mál. Ég sagði í framsöguræðu minni, að það ætti að reisa nýju mjólkurstöðina fyrir verðjöfnunargjaldið. Nú mótmælti hv. þm. því eindregið og sagði, að það sé eitthvað annað en nota eigi verðjöfnunargjaldið til þess, því að það sé sérstakur byggingarsjóður. Þetta mun bókhaldslega vera rétt. En hvaðan hefur þeim sjóði komið féð? Eftir því sem ég fæ bezt séð af þeim margumtöluðu reikningum samsölunnar, virðist mér, að féð hafi bókstaflega allt komið frá verðjöfnunarsjóði eða fé, sem honum að l. bar. Ég fæ ekki betur séð en þetta sé hér um bil þannig saman sett: Árið 1938 greiðir verðjöfnunarsjóður um 107000 kr. til mjólkurstöðvarinnar. Árið 1939 hefur sami sjóður lagt fram um 113000 kr., árið 1940 115000 kr., árið 1941 um 153000 kr. og 1942 um 714000 kr. Svo hafa sjóðnum bæzt vextir af þessu fé, svo að nú virðist hann vera orðinn ca. 1,2 millj. kr.

Nú er þó skylt að geta þess, að í síðustu reikningum samsölunnar kemur fram nýr liður, sem heitir „Til byggingarsjóðs“, og þetta fé er auðvitað tekið af rekstrarafgangi samsölunnar. Nú fæ ég ekki betur séð en það séu skýlaus ákvæði mjólkursölulaganna, að rekstrarafgangur samsölunnar eigi að renna í verðjöfnunarsjóð, þannig að allt það fé, sem runnið hefur í þennan byggingarsjóð, hafi með rétti borið verðjöfnunarsjóði. Með leyfi hæstv. forseta skal ég lesa upp úr l. um meðferð og sölu mjólkur og rjóma frá 1935. Þar segir svo: „Tekjuafgangur mjólkursölu skal renna í verðjöfnunarsjóð, eftir að nauðsynlegar afskriftir hafa farið fram og aðrar greiðslur, er stjórnin telur nauðsynlegt að inna af hendi, enda hafi það þá áhrif á verðjöfnunargjaldið“.

Nú hygg ég það lítið efamál, að hv. þm. V.-Sk. vilji skjóta sér á bak við orðin „aðrar greiðslur“ og réttlæta með því, að tekið hefur verið á 8. hundrað þús. í byggingarsjóð, en ég fæ ekki séð, að það geti komið honum að neinu haldi, því að með þessu orðalagi er greinilega átt við nauðsynlegar afskriftir og önnur nauðsynleg gjöld, sem að rekstrinum lúta á hverjum tíma. Nú vil ég minna á, að með lagabreyt. frá 1937 fékk mjólkursölun. óskorað vald til að ákveða, hversu verðjöfnunargjaldið væri hátt. Það er því alveg á valdi þessara manna, hve miklar tekjur sjóðsins eru. Það er öllum ljóst, að samkvæmt l. ber sjóðnum að verðjafna mjólk og mjólkurafurðir, en ekkert annað. Það fé, sem þarna er tekið af rekstrarafgangi samsölunnar úr verðjöfnunarsjóði til byggingar mjólkurstöðvar, er því tekið af neytendum en ekki framleiðendum. Það er líka alkunnugt, að mjólkurverðlagsn. hefur alltaf ákveðið verðið þannig, að fyrst er athugað, hvað bændur þurfi að fá heim. Svo er verðjöfnunargjaldi, vinnslukostnaði og dreifingarkostnaði bætt við og alltaf stillt svo til, að bændur fái alltaf heim það, sem þeim er nauðsynlegt. Það, sem svo álagningin reynist hærri en vera þurfti, er eign neytenda, en ekki framleiðenda.

Þá vék hv. þm. V.-Sk. að því, að það væri hvorki meira né minna en að með þessu óguðlega athæfi, að neytendur tækju dreifingu mjólkurinnar sjálfir í sínar hendur, væri verið að innleiða þrælahald á Íslandi og það í miklu verri og argvítugri mynd en átti sér stað í fornöld. Ég hef gert rækilega grein fyrir því, að aðalgrundvöllurinn fyrir, að neytendur taki þessi mál í sínar hendur, er sá, að þeir eiga í sambandi við það meiri hagsmuna að gæta en bændur og því muni þeir gæta þeirra hagsmuna betur, kostnaður verða minni og vörugæði meiri. Þessu vill hv. þm. V.-Sk. mótmæla með því að segja, að bændur eigi allar sínar tekjur undir þessu, meðalbóndi þurfi að selja nyt úr mörgum kúm, en meðalneytandi kaupi í hæsta lagi hálfa nyt. Svo segir hann, að dæmið sé augljóst, bóndinn hafi meiri hagsmuna að gæta. En þetta er eintóm blekking, og sést það bezt, þegar litið er á þá staðreynd, að við ákvörðun verðlagsins byrjar mjólkurverðlagsn. alltaf á að áætla, hvað bændur þurfi að fá heim, og síðan er öllum kostnaði bætt við það. Eftir samkomulagi sex manna n. eiga bændur að fá heim kr. 1,23 fyrir lítrann, hvort sem dreifingarkostnaðurinn er mikill eða lítill. Það er því augljóst, að það eru eingöngu neytendur, sem hafa þarna hagsmuna að gæta, og þeim er bezt trúandi fyrir að gæta þeirra vel. Hagsmunir bænda eru aðeins í því fólgnir, að ætla má, að salan örvist, þegar verðið er lágt og salan góð.

Hv. þm. V.-Sk. skoraði á mig að leiða fram þann mann úr mjólkurverðlagsn., sem hefði ekki fengið að skoða bækur samsölunnar. Ég get gert það með ákaflega mikilli ánægju og leyfi þessa manns. Maðurinn heitir Jón Brynjólfsson. Hann hringdi til skrifstofu samsölunnar snemma í þessum mánuði og spurði skrifstofumanninn, hvað bændur fengju fyrir mjólkina. Skrifstofumaðurinn svaraði: „Mér hefur verið bannað að gefa þær upplýsingar“. Jón svaraði: „Það gerir ekkert til, ég kem nú á eftir og fæ að líta á bækurnar; ég hlýt að mega það sem starfsmaður í nefndinni“. Skrifstofumaðurinn gat þá þess, að forstjórinn hefði bannað að veita nokkrum manni aðgang að bókunum, og sagðist þó skyldu spyrja hann, hvort það gilti einnig um þá, sem væru í mjólkursölu- og verðlagsnefnd. Forstjórinn svaraði: „Það er algerlega óheimilt að sýna bækurnar sjálfar og frumgögnin, en ég get gefið upplýsingar um, hvað bændur fá heim til sín“. Þá er úr þessu máli leyst fyrir hv. þm. V.-Sk., og ef til vill gæti þetta að einhverju leyti skýrt, að við erum ákaflega margir, sem langar afar mikið að sjá fleiri gögn viðvíkjandi samsölunni en þá fjölrituðu endurskoðuðu reikninga, sem fyrir liggja, sem ég hef, eins og ég hef tekið fram áður, alla hér fyrir framan mig.

Ég vil í sambandi við endurskoðunina geta þess, að n. hefur ráðið færan endurskoðanda til að endurskoða reikningana. Auðvitað lítur hann ekki svo á, að hann sé gagnrýninn endurskoðandi. Hann endurskoðar tiltölulega eins og hver annar endurskoðandi, sem fyrirtæki fá til að endurskoða reikninga. Hann telur það ekki hlutverk sitt að gagnrýna, og það liggur í hlutarins eðli, að það er ekki heldur hans hlutverk, heldur eingöngu að ganga úr skugga um, hvort allt sé tölulega rétt. Að vísu mun það hafa verið svo, að annar sá endurskoðandi mun að einhverju leyti hafa komið við sögu þessarar endurskoðunar, en ég hygg, að hans verk hafi lítið verið og hann hafi heldur ekki litið á sig sem gagnrýnandi endurskoðanda.

Það er ákaflega margt, sem ég hefði gaman af að vita, sem reikningarnir segja ekkert um, t. d., hvað hv. þm. V.-Sk. borgar mikið í húsaleigu, þegar hann býr hér í Reykjavík í íbúð, sem mjólkurstöðinni tilheyrir. Ég efast ekki um, að hann borgar þessa húsaleigu, en gott væri að fá að vita, hvað hann borgar mikið. Það hefur nú heyrzt, að íbúðin sé ekki í veglegu húsi að vísu og stundum hafi verið nefnt hrútakofi. En nú á dögum þarf jafnvel fyrir að vera í slíkum kofa að borna húsaleigu. — Það er líka margt fleira, sem ég sé ekki af reikningunum, t. d., hvað þessi hv. þm. tekur mikið í ferðakostnað, þegar hann ferðast til Reykjavíkur og heim aftur v egna samsölunnar. Ég sé ekki af þeim, hve bílstjóri samsölunnar þarf oft að aka bíl hans og gera við hann. Ég sé ekki á þeim, hvort það er rétt, sem haldið hefur verið fram í opinberum málskjölum, að hv. þm. V.-Sk. taki 300 kr. á mánuði fyrir að vera í þessari n., auk þess sem hann hefur kaup fyrir hvern fund, sem hann situr vegna mjólkursölumálanna, og aðrar uppbætur. Þetta allt hefði ég gaman af að fá að vita, en þetta tilheyrir ekki aðalreikningum samsölunnar, heldur undirreikningum og fylgiskjölum. Svo er ekki von, að það sjáist á reikningnum, sem hefur komið fram í opinberum málsskjölum, að þessi hv. þm. hafi sagt, að honum væri sönn ánægja að því að neita kerlingunum í Reykjavík um smjör. En það eru til menn, sem bera það fyrir rétti, að þannig hafi æðsti maður mjólkurmálanna í Reykjavík talað, að honum væri sönn ánægja að því að gera neytendum sem allra mestan óleik. Verkin sýna líka merkin, því að þessi stofnun sýnist líka að öðrum þræði hafa verið rekin með það fyrir augum að skaprauna neytendum, hvort sem er í Hafnarf. eða Reykjavík.

Já, hv. þm. V.-Sk. lauk máli sínu með því að skora á þingið að sýna rögg af sér og drepa þetta mál líka við 1. umr. Þetta sama gerði hann líka í sambandi við lagafrv. það, sem afgreitt var til 3. umr. hér fyrir stuttri stundu, nefnilega frv. um að afnema til bráðabirgða vald kjötverðlagsn. og mjólkurverðlagsn. En þingið sýndi þá rögg af sér að sameinast um að koma því máli áfram. (PZ: Í mjög breyttri mynd). Og svo vonast ég til, að fari einnig um þetta mál, sem hér liggur fyrir. (PZ: Þingið samþ. hitt frv. í mjög breyttri mynd). Í mjög breyttri mynd, — segir þessi hv. þm. — Þessi rödd kom bara úr loftinu, . . . nei, nei, ég vildi ekki hafa sagt meira. — Allir voru samþykkir, að þar væri um formsatriði að ræða og að valdið sé með öðrum ákvörðunum af þessum n. tekið fyrst um sinn.

Ég held, að það ætti vel við allra síðast að draga saman með nokkrum orðum þau meginatriði, sem frv. þetta felur í sér, og þau rök, sem að þeim standa.

Frv. felur í sér það að setja sem hámark 8% á verðjöfnunargjaldið, eins og var í l. frá 1935. Ég hef sýnt fram á, að þetta er hin mesta nauðsyn. Það er óhæfa eir að láta mjólkursölun. hafa þetta vald óskorað í sínum höndum, því að það hefur sýnt sig, að hún hefur þann sið að leggja á óhæfilega hátt verðjöfnunargjald, þannig að stórkostlegur tekjuafgangur hefur orðið í verðjöfnunarsjóði ár hvert. Og þessum sjóði á nú að fara að verja til annarra nota en hann var ætlaður til, nefnilega til þess að reisa fyrir hann mjólkurstöð, í stað þess, að hann átti einungis að nota til þess að verðjafna mjólkina.

Frv. felur einnig í sér breyt. á skipan mjólkursölun. og mjólkurverðlagsn., og þarf ég ekki að fara nánar út í það, hversu nauðsynlegt er að afnema það sjálfdæmi, sem áður hefur verið gefið með því, hvernig þær n. hafa verið skipaðar.

Í þriðja lagi felur frv. í sér það að heimila bæjarstjórnum og hreppsnefndum að taka í sínar hendur að annast sölu og dreifingu á neyzlumjólk og mjólkurvörum í kaupstöðum og þeim kauptúnum, sem hafa yfir 1000 íbúa. Ég álít þetta ákaflega þýðingarmikið atriði, og sérstaklega álít ég, að það muni mjög stuðla að því að bæta sambúðina milli bænda og neytenda. Þetta hvílir á þeirri skoðun, að bændur og neytendur eigi að semja um verðlag á þeim vörum, sem þeir verzla með sín á milli, og að viðskiptin eigi að fara fram, að því er mjólkina snertir, fyrir utan stöðvarvegginn. Bóndanum á að vera með samningum tryggt ákveðið verð fyrir sína mjólk. En neytandinn, sem mest á undir því, að mjólkin sé heilnæm og góð vara, á að taka þar við mjólkinni og með hóflegum vinnslu- og dreifingarkostnaði að gera það bezta, sem hann getur, til þess að mjólkin verði heilnæm og sem ódýrust í útsölu. — Þetta hefur af hv. þm. Framsfl. verið talið árás á bændur. Hér er sem oftar ruglað saman bændum og framsóknarmönnum. Hv. þm. V.-Sk. er kannske lítill prestur, en líklega er hann enn þá minni bóndi, en talsvert mikill atkvæðamaður í að skaprauna Reykvíkingum og að skaffa þeim dýra, lélega og skemmda vöru. Ég skil ákaflega vel baráttu þessa hv. þm. Þeir líta svo á, að með þessum yfirráðum- yfir vinnslu og dreifingu mjólkurinnar og mjólkurafurðanna skapi þeir sér pólitískt vígi, sem þeir svo hyggjast að verjast í. Í öðru lagi líta þeir svo á, að það sé höfuðnauðsyn fyrir flokk þeirra, að illt sé samkomulagið milli bændanna annars vegar og verkamannanna við sjóinn hins vegar. Og með því að hafa mann á oddinum í þessum málum, sem er sönn ánægja að neita kerlingunum í Reykjavík um smjör og að vatn sé í mjólkinni og annar óhroði (Forseti hringir), með því geta þeir viðhaldið þessari sundrung. — Ég verð að segja, að hæstv. forseti er dálítið bráðlyndur nú, og ég vildi, að hann gætti svona vel hv. þm. V.-Sk., þegar hann heldur sínar dómadags ræður hér. Þegar ég hafði verið hér nokkra daga á þingi, hélt hv. V.-Sk., sem nú er, mikla ræðu, sem hann ætlaði okkur hinum yngri þm. til leiðbeiningar um hegðun. Ég sagði þá, að ég teldi mér þetta til inntekta og ég mundi reyna að horfa á þennan hv. þm. sem fyrirmynd um það, hvernig þm. eigi ekki að hegða sér. Enda hafa orð mín verið þannig, að með tilliti til allrar framkomu þessa hv. þm. eru þau réttmæt. Og ég skal endurtaka það, að það hefur oft verið óhroði í mjólkinni, og ég fæ ekki betur séð en hv. þm. V.-Sk. horfi með ánægju á þetta allt saman. A. m. k. lýsir hann yfir, að hann sé í alla staði ánægður með mjólkurskipulagið og að það skipulag hafi í alla staði náð tilgangi sínum.

Ég skil vel þessa baráttu andmælenda þessa frv. Þetta skipulag, eins og það er rekið, er bara fyrir óréttmæta flokkshagsmuni, en framkvæmd þess beinist gegn bæði bændum og neytendum. Og ég vænti þess, að meiri hl. þ. nái að sameinast gegn þessum óréttmætu flokkshagsmunum og berjast fyrir bæði hagsmunum neytenda og framleiðenda með því að taka þetta frv. til rækilegrar athugunar, gera á því þær umbætur, sem mönnum kann að virðast nauðsynlegar, og skiljast ekki við málið, fyrr en full leiðrétting er fengin á því ófremdarástandi, sem ríkt hefur í mjólkursölunni hér í Reykjavík og Hafnarfirði undir stjórn hv. þm. V.-Sk.