21.10.1943
Neðri deild: 35. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 371 í C-deild Alþingistíðinda. (2406)
64. mál, sala mjólkur og rjóma o.fl.
Emil Jónsson:
Herra forseti. Það er nú orðið svo langt síðan þetta mál var hér til umr., að það er farið að gleymast mörgum, hvað fram var komið í því, og á það og við um mig. Mun ég því stikla á stóru og svara aðeins fáum atriðum.
Það er nú um það bil mánuður, síðan málið kom fram, án þess að tekizt hafi að ljúka umræðum. Það er óvenjulegur seinagangur, og tel ég leitt, að ekki hefur verið hægt að flýta því meira, því að þá hefði verið meiri von um einhvern árangur.
Í þessu máli eru það einkum tvö atriði, sem miklu máli skipta og menn gerðu sér miklar vonir um, að lögð yrði áherzla á, þegar mjólkursamlagið var sett á laggirnar. Hið fyrra var gott og nægilegt mjólkurmagn og hið síðara, að verðið væri í sem beztu samræmi við gæði vörunnar. Ég hélt því fram, að þessi atriði væru ekki til staðar. En ýmsir eru á annarri skoðun. Sérstaklega hélt hv. þm. V.-Sk. því fram, að allt hefði tekizt vel í þessu efni: mjólkurmagnið hefði vaxið gífurlega, gæðin væru óaðfinnanleg og verðið lægra en við mætti búast. Hann hélt því fram, að mjólkurmagnið hefði aukizt úr 6,3 millj. lítrum í 15 millj. á nærliggjandi svæðum. En aukningin er ekki neitt svipuð því, sem hér er sagt. Kúafjöldinn hefur 2½-faldazt þar, en í Reykjavík, Hafnarfirði og Gullbringu- og Kjósarsýslu hefur hann staðið í stað. Það er hið sorglega „resultat“ mjólkursamsölunnar. Síðan hún tók til starfa, hefur mjög dregið úr neyzlu nýmjólkur. Austan fjalls og í Borgarfirði hefur mjólkurframleiðslan aukizt, en hér og í nærsveitunum dregizt saman. Þetta er spor í öfuga átt. Því nær neytendunum sem mjólkin er framleidd, því betri hlýtur hún að vera, þegar hún kemur á markaðinn.
Hv. þm. V.-Sk. sagðist hafa fengið sínar beztu vonir í þessu efni uppfylltar, og verð ég að segja, að þær vonir hafa ekki verið miklar, því að ég veit, að það er staðreynd, að fólk fær ekki þarfir sínar uppfylltar.
Þessi sami hv. þm. sagði í fyrradag í sambandi við annað mál, að Mjólkurbú Hafnarfjarðar nyti sérstakra fríðinda hjá Mjólkursamsölunni. Það kom mér undarlega fyrir sjónir, því að það mun fá verulegan hluta þeirrar mjólkur, sem það selur, frá samsölunni og hefur nú verið dregið svo úr því mjólkurmagni, að það fær nú um ¾ til 4/5 þeirrar mjólkur, sem það þarf og er vant að fá. Þetta bendir á, að einhver skortur sé hjá samsölunni, þar sem Reykvíkingar fá ekki nema ¾ þeirrar mjólkur, sem þeir þarfnast, og neytendur í Hafnarfirði fá aðeins nokkurn hluta þess, sem þeir biðja um. Svo koma þeir hv. 1 þm. N.-M. og hv. þm. V.-Sk. og segja mjólkurmagnið meira en nokkurn tíma áður á sama árstíma! Ég skal ekki ræða hér um till. um að banna sölu vatns og rafmagns til setuliðsins, heldur snúa mér að öðru atriðinu, sem er gæði mjólkurinnar.
Hv. þm. V.-Sk. hafði þau orð um gæði mjólkurinnar, að það atriði væri erfiðast að sanna. Þetta lýsir vel málsmeðferð þessa hv. þm. og það því frekar, þar sem sjálfar staðreyndirnar eru hér á bak við. Þessi málaflutningur minnir mig á skólaspekinga miðaldanna, þegar þeir voru að sanna það, sem þeir fyrir fram vissu, að var rangt. Þessi málsmeðferð er aðeins orðaleikur. Mér fannst, að hv. þm. mundi gremjast að geta ekki sannað mál sitt.
Orsakirnar eru kannske fleiri en ein: 1. Flutningur óheyrilega langur. 2. Meðhöndlun á mjólkinni ábótavant í mjólkurstöðinni. 3. Léleg mjólkurvinnslustöð.
Áður en lengra er farið, vil ég minna á ummæli hv. þm. V.-Sk. í sambandi við annað mál hér á Alþingi í fyrradag. Þá var hann að reyna að drepa því máli á dreif með því að draga mjólkurstöð Alþýðubrauðgerðarinnar inn í málið. Hann kvað hana svo lélega, að ástæða hafi verið til að kæra yfir því. Ég vil aðeins benda á mjólkursöluskýrslu sem birtist í Morgunblaðinu í gær. Við athugun á henni sést, að þessi hv. þm. fer með rangt mál, því að hreinlæti er ekki á nokkurn hátt ábótavant né öðru í þessari nýju mjólkurbúð. Í Morgunblaðinu stendur: „Nú hafa komið fram ásakanir um það m. a., að sumar mjólkurbúðirnar og hreinlætið í þeim væri í svo hörmulegu ástandi, að heilbrigðisnefnd hefði ákveðið að loka þeim 1. des., ef ekki hefði verið um bætt fyrir þann tíma“. Með þessu á að draga athyglina frá kjarna deilunnar um mjólkursamsöluna. Þessi aðferð er þekkt, og þessi hv. þm. mundi reyna að nota hana. Það er ekki sagður nema hálfur sannleikurinn um þessa sölubúð Alþýðubrauðgerðarinnar. Hún hefur útbúnað til að selja flöskumjólk og er ekkert að athuga við það. Það er eins og var upphaflega í samsölunni, að alla mjólk ætti að selja á flöskum. En mjólkursamsalan hefur verið rekin þannig, að ekki hefur tekizt að halda þessari ráðstöfun áfram þar. Það hefur tekizt á Akureyri, en ekki í Reykjavík. Það hefur ekki komið ákæra á búðina, heldur hefur verið ákveðið, að hún skuli sækja um löggildingu, ekki verið kært yfir, að hún væri ekki í því standi, sem hún þyrfti að vera til þess að selja flöskumjólk, enda hefur búðin útbúnað til þess, eins og ég gat um áðan. Þetta er sami málaflutningurinn og vant er að vera hjá hv. þm. V.-Sk., aðeins sagður hálfur sannleikurinn. Út frá því á svo sá, sem heyrir, að draga rangar ályktanir.
Það er ekki verið að hugsa um hag neytendanna. Bændur fá 6 til 8 sinnum meira en þeir fengu í upphafi, en verkamaðurinn það sama og þeir fengu, þegar lögin voru sett. Framleiðendurnir hafa sannarlega hirt hagnaðinn. L. hefur verið beitt einhliða til hagsbóta fyrir framleiðendur.
Ég skal nefna annað dæmi um þessar einhliða ráðstafanir og framkvæmdir með hag framleiðenda fyrir augum, en það er í blöndun smjörs í smjörlíki. Þetta átti að gera, til þess að varan yrði neytendum hollari og til þess að losa bændur við framleiðsluvöru sína. En hvernig hefur verið haldið á þessu máli? Það var aðeins, á meðan bændur skorti markað fyrir smjör sitt. (SvbH: Á að blanda smjöri í smjörlíki, þegar smjörið er ekki til?) Það gerir engan mun. Það á að gera ráðstafanir til að fá það flutt inn, ef framleiðslan nægir ekki til þess að halda íblönduninni áfram. Ef það er nauðsynlegt í dag, þá er það ekki síður á morgun. Hér er sama sagan: einhliða blínt á hagsmuni framleiðenda.
Árið 1937 átti að veita ráðuneytinu rétt til að láta blanda mjólkurdufti í brauð. Bakarar treystust til þess að blanda brauðið að vissu marki án þess að hækka verð brauðsins, mig minnir um 5%. Við þetta varð brauðið bæði hollara og næringarefnaríkara en ella, og á þennan hátt var hægt að koma út hluta af þeirri mjólk, sem ekki varð komið út öðruvísi. Þetta frv. var ekki samþ., er það kom fyrst fram, en til þess að tryggja framgang þess fékk ég núv. hv. þm. V.-Sk. til þess að flytja það með mér síðar, og þá varð það að l. Þau l. hafa nú verið í gildi í 6 ár, en þessi heimild hefur ekki verið notuð, og neytendur hafa því alveg farið á mis við þá hollustu, sem af íblönduninni hefði leitt. En þetta hefur ekki verið gert. Undanrennan hefur verið send heim til bændanna aftur þeim til lítils gagns, en miklu af ostamysunni hefur verið hellt niður. Þetta mætti lagfæra, ef samsalan keypti tæki, sem kostaði ekki nema 40–50 þús. kr. fyrir stríð, og þá væri þannig hægt að fá miklar tekjur af þeim afurðum, sem nú fara til spillis, þannig að ég er ekki viss um, að þá þyrfti neitt verðjöfnunargjald. Ég nefni þetta aðeins sem dæmi til þess að sýna það, hvernig rekstur framleiðslunnar gæti tryggt nógu hátt verð vörunnar.
Þá skal ég geta þess í sambandi við mjólkurstöðina í Reykjavík, að hún hefur nú lengi verið algerlega ófullnægjandi, en samtímis því, að hún hefur ekki getað annað öllu því, sem hefur verið sent til hennar, þá hefur öðru mjólkurbúi, sem er sízt lakara, mjólkurbúi Hafnarfjarðar, verið haldið mjólkurlausu af völdum samsölunnar eingöngu. Mjólkurmagn það, sem þetta bú fær, hefur minnkað úr 400 þús. l. niður í 200 þús. l. árlega, síðan samsalan tók til starfa.
Þetta er vegna þess, að forráðamenn samsölunnar og mjólkurstöðvarinnar hér hafa alltaf haft horn í síðu mjólkurstöðvarinnar í Hafnarfirði. Þeir hafa viljað láta hana hætta að starfa, af því að hún er ekki í beinu sambandi við samsöluna hér. Og nú, þegar nýja mjólkurstöðin hér kemur upp, þá er ætlazt til þess, að mjólkurstöðin í Hafnarfirði verði lögð niður. Og nú þurfa Hafnfirðingar daglega að kaupa gerilsneydda mjólk héðan frá Reykjavík. Með þessu ástandi skapast tekjuhalli af búinu í Hafnarfirði, sem samsalan telur ekkert eftir sér að borga. Það á að sanna það, að búið í Hafnarfirði eigi að leggja niður. — Svona hefur það verið á öllum sviðum. Það hefur verið reynt að þvinga alla þá, sem hafa ekki viljað senda mjólk til samsölunnar, til þess að hætta framleiðslu sinni. Nú er mjólkin flutt sunnan af Vatnsleysuströnd gegnum Hafnarfj. til Reykjavíkur, í stöð, sem er yfirfull, og síðan er hún flutt aftur til neytenda í Hafnarfirði, meðan stöðin þar hefur ekkert að gera. (SvbH: Af hverju hefur hún ekkert að gera?) Af hverju, segir hv. þm. Af því að framleiðendur fá ekki að láta mjólk sína þangað vegna skipulagsins. (SvbH: Af því að þeir vilja ekki láta hana þangað). Nei, það er af því, að þeim er ekki tryggt af hálfu samsölunnar, að þeir fái sama verð fyrir mjólkina, ef þeir láti hana til búsins í Hafnarfirði, og mér er sagt, að stjórn samsölunnar hafi reynt að aftra mönnum frá því að senda mjólk sína til Hafnarfjarðar. Ég verð nú sjálfsagt settur í einhvern glæpamannaflokk eins og á dögunum, þegar hv. þm. V.-Sk. skipaði mér á bekk með Al Capone. En undarlegt má það virðast, að á Ísafirði, Akureyri og Sauðárkróki, þar sem alls staðar eru mjólkurbú og mjólkursamlög, að þar skuli enginn ágreiningur eða úlfúð vera ríkjandi. Hvernig stendur á því að samsölunni hér í Reykjavík hefur einni tekizt að vekja þessa úlfúð og halda henni við? Ég læt hv. þm. V.-Sk. eftir að svara því. Á Akureyri er mismunurinn á verði til framleiðenda og neytenda mun minni en hér, en gæðin þó ótvírætt meiri. Og á Ísafirði, þar sem rækta verður heyið á hrjóstrum og við erfið skilyrði, þar er verðmunurinn einnig minni en hér. (FJ: Og þó er mjólkin flutt þar langan veg sjóleiðis og þarf að sækja á marga staði, þar sem lítið magn er á hverjum stað). Hvernig stendur á þessu? Ég skal svo ekki segja meira um þetta. Það verður sjálfsagt alltaf sama svarið. Það er allt í lagi, mjólkin er góð, mjólkurstöðin ágæt og verðið í samræmi við verkakaupið. Hér þarf því engu að breyta. Þessir menn vilja aðeins skoða þetta frá sjónarmiði framleiðenda. Það er bara um að gera, að þeir fái nóg, þótt til þess þurfi að troða inn á neytendur vöru, sem þeir eru ekki ánægðir með, og það fyrir óhæfilegt verð. Ég get ekki skilizt við þetta án þess að segja nokkur orð um störf vísitölunefndarinnar.
Ég hélt því fram í ræðu minni um daginn, að sumar þær undirstöður, sem n. komst að, væru svo hæpnar, að það gæti orkað tvímælis, hvort þær væru réttar. Meira sagði ég ekki, þar sem ég hafði ekki nægileg gögn í höndunum til þess. En þetta hefur komið við kaun ýmissa hér, og þeir hafa gert sínar aths. við það. Hv þm. Mýr. hélt því fram að hér væri um beina ofsókn að ræða, að við vildum ná okkur niðri á fulltrúa sósíalista í n. En þessu er víðs fjarri. Það sem um er að ræða er það, að ég hef við athugun talið mig finna veilur í útreikningum n., og ég álít rétt, að þær komi fram í dagsljósið. Ég skil l. þannig að það, sem selt sé á innlendum markaði, það skuli greitt með því verði, sem vísitölun. hefur ákveðið.
En ef á að fara út á þessa hálu braut, þá mætti gjarnan taka til athugunar og lagfæringar eitthvað af því, sem ég benti á. Eitt af því, sem ég hélt fram, var það, að fjöldi búreikninganna væri naumur eða of lítill, til þess að hægt væri að draga af þeim rétta ályktun. Hv. þm. Mýr. taldi, að þetta væri allt í lagi, því að búreikningar launamanna væru ekki fleiri. En þetta er ekki sambærilegt. Búnaðarhættir hér á Íslandi eru ólíkari frá sveit til sveitar en kjör manna í kaupstöðum, þar sem allar aðstæður eru svipaðar. Það, sem lagt er til grundvallar fyrir vísitöluútreikningi hjá launastéttunum, er allt svo miklu jafnara en í sveitunum, þar sem búreikningar manna geta verið mjög svo ólíkir um land allt, að fjöldi þeirra þyrfti að vera miklu meiri en tala búreikninga launamanna í kaupstöðum. Ég veit því, að tala sú, sem hér er um að ræða, er miklu lægri en hún þyrfti að vera til þess að gefa rétta niðurstöðu. Hv. þm. Mýr. sagði, að mig hryllti við því, að bændur skyldu eiga að fá 14.500 kr. í árslaun. Þetta er ekki rétt, en mig flökrar við þeirri aðferð, sem lögð er til grundvallar þessu kaupi.
Búreikningar telja til útgjalda hjá meðalbónda 900 kr. sem vaxtagjöld, og er það mikið of hátt reiknað, þar sem skuldir bænda eru nú mjög litlar. Hv. þm. A.-Húnv. sagði, að þetta ætti að taka til athugunar, hvort sem skuldir bænda væru miklar eða litlar, vegna þess að bændur yrðu að fá vexti af sínu „kapitali“.
Í búreikningum frá 1939 eru skuldir meðalbóndans taldar 5000 kr., en eignir 18000 kr., og er þá hrein eign hans 13000 kr. Ef ætti nú að reikna vexti af öllu því fé, sem bóndinn hefur með höndum, þá lenda þeir í hans eigu og koma þá fram sem aukatekjur, þannig að hann kemur þá til með að hafa þessar tekjur af eignum sínum fram yfir það, sem verkamenn í kaupstöðunum hafa. Þetta hefur ekki verið vefengt, þótt því hafi verið haldið fram, að bóndinn ætti rétt á að fá þessar tekjur. Hv. þm. Mýr. sagði, að ég hefði verið að velta vöngum yfir því, að iðnaðarmenn skyldu hafa verið teknir með í þennan útreikning. Það er nú svo með iðnaðarmenn, að þeir þurfa að eyða 4–7 árum af ævi sinni til þess að læra starf sitt, þar sem þeir verða að vinna sem nemendur og fá mjög lítið kaup fyrir. Ég hefði haldið, að það starf, sem þarf að undirbúa með löngu námi, ætti að vera betur launað en önnur störf, sem þarf ekki að eyða löngum tíma til þess að læra. Þetta er ástæðan til þess, að ég taldi vafasamt, að taka bæri iðnaðarmenn með í þennan launaflokk. Þá er það þörfin fyrir aðkeypt vinnuafl, sem ég vefengdi, þar sem meðalbóndanum eru reiknaðar 12000 kr. til útgjalda í kaup og fæði. Ég hef átt tal við tvo bændur austan úr Árnessýslu, sem báðir hafa svipað bú. Ég lagði fyrir þá báða þá spurningu, hve mikinn aðkeyptan vinnukraft þeir hefðu notað s. l. ár. Annar þeirra hafði engan notað, en hinn hverfandi lítinn samanborið við það, sem áætlað er. Þetta sýnir það, sem ég veit, að er rétt, að þessi tala er of hátt áætluð sem meðaltala. Það hefur ekki að jafnaði verið keypt svona mikið vinnuafl að, nema bóndinn hafi verið mikið fjarverandi, og þá hefur hann aflað sér tekna fyrir vinnu utan heimilis, sem fara fram úr þeim 2000 kr., sem eru áætlaðar í því skyni. Ég skal ekki fara út í að ræða um kaup bóndans sjálfs, en því hefur ekki verið hnekkt, sem ég sagði, að það meðaltal á kaupi launastéttanna, sem lagt er til grundvallar, sé fundið á rangan hátt. Þar var kaupið hækkað í samræmi við vísitöluna, þótt sjómenn hefðu ekki fengið sitt kaup hækkað í samræmi við hana, þar sem þeir væru bundnir við söluverð fisksins til Bretlands. Þessu hefur ekki verið mótmælt. Í hópi þeirra launamanna, sem teknir eru í útreikninginn, eru eingöngu kvæntir menn. Nú er það svo, að menn kvænast ekki yfirleitt, fyrr en þeir eru komnir í betri aðstöðu og á hærra kaup en fjöldinn. Það er líka vitað, að tekjur manna eru hæstar á vissu tímabili, og ég tel það því rangt, að ungir og ókvæntir menn skuli ekki hafa verið teknir með í reikninginn. Þá eru engin hlunnindi reiknuð bændum til tekna, og er þó vitað, að fjölmörgum býlum fylgja ýmis hlunnindi, eins og t. d. reki, selveiði, lax- og silungsveiði, dúntekja og margt fleira. En þetta er ekki talið vera til á meðalbúi, og veit ég þó ýmis dæmi þess, að bændur hafa haft miklar tekjur af reka nú á síðustu árum. Þá er eldsneyti kaupstaðarbúa ekki reiknað, en það er vitað, að bændur nota mikið af ódýrara eldsneyti en kaupstaðarbúar.
Tekjur af vinnu utan heimilis eru líka reiknaðar svo lágar, að undrum sætir, og satt að segja þá skil ég alls ekki, hvernig margt af þessu hefur getað farið fram hjá hv. n., því að það er enginn efi, að ef það hefði allt verið tekið með, þá hefði það haft mikil áhrif á vísitöluna. Ég skal svo ekki segja meira um þetta að sinni. Hv. þm. Mýr. lagði til, að málinu yrði ekki vísað til n., heldur yrði það fellt þegar við 1. umr. Svo mikla fyrirlitningu á að sýna málinu af andstæðingum þess, að það á ekki einu sinni að athuga það í n., svo að það er sjálfsagt þýðingarlítið að vera að reyna að ná samkomulagi um þessi mál. Það er því ekki annað eftir fyrir kaupstaðarbúa en láta verkin tala. Það verður ekki um annað að gera. Bæirnir verða sjálfir að fara að stofna sér kúabú til þess að fullnægja þörf neytenda sinna. Þá sjá þeir, sem hér hafa verið að verki, hvert þeir hafa stefnt hagsmunamálum bænda með þessum gauragangi og óbilgirni.
Við það, að bæirnir stofni kúabú, er einnig unnið margt annað. Þá geta neytendur fengið nýja mjólk, þá geta þeir sjálfir haft eftirlit með öllum rekstrinum og tryggt stórum betri hollustuhætti, og þá geta þeir fengið upplýst, hvert sannvirði framleiðsluvörunnar raunverul. er. (SvbH: Blessaðir farið þið að búa). Ég veit, að hv. þm. getur vel sagt það núna með sínu venjulega yfirlæti, að við skulum bara fara að búa, og það verður líka eflaust gert, og þá geta þeir framleiðendur, sem nú eiga að sjá okkur fyrir mjólk, drukkið sína mjólk sjálfir, og þá getur verið, að komi annað hljóð í strokkinn hjá hv. þm. V.-Sk. Við hv. flm. hef ég ekkert að segja. Við erum sammála um það hér, að þessu sé mjög ábótavant og að þetta frv. lagi ekki gallana nema að nokkru leyti. En ég get lýst yfir því, að það skal ekki standa á Alþfl. til samvinnu um að finna viðunandi lausn á þessu máli og að við verðum að finna lausn, sem getur borið jákvæðan árangur. Vænti ég þess, að þessi hv. þm. verði ekki eins kátur og glaðklakkalegur, um það er lýkur.