22.10.1943
Neðri deild: 36. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 402 í C-deild Alþingistíðinda. (2414)

64. mál, sala mjólkur og rjóma o.fl.

Sigfús Sigurhjartarson:

Það er rétt, að ekki var haldinn fundur í málinu í gær, af því að ég var bundinn á bæjarstjórnarfundi, en það varð að samkomulagi með mér og forseta, að málið var tekið á dagskrá í gærkvöldi. En í þetta skipti er drátturinn vissulega ekki mér að kenna, heldur stafar hann af því, að vissir framsóknarþm. geta ekki verið til staðar. Enn þá er þá málið dregið í fjóra daga.