11.10.1943
Neðri deild: 30. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 408 í C-deild Alþingistíðinda. (2432)
90. mál, búreikningaskrifstofa ríkisins
Flm. (Áki Jakobsson):
Ég get fallizt á það, að bæði hagstofustjóri og Guðmundur Jónsson eru hlutlausir menn, hvað búreikninga snertir, og ég veit, að Guðmundur Jónsson rækir starf sitt eftir beztu getu. Það er ekki heldur það, sem deilt er um. Það er ekki ætlazt til samkv. till., að Guðm. Jónssyni sé vikið frá þessu starfi, enda er það tekið fram í grg., af því að við vildum láta koma í ljós, að við viljum ekki breyta fyrirkomulaginu, að því er starfsmanninn snertir. Það er annað, sem um er rætt: hver skuli vera húsbóndinn, hagstofan eða Búnaðarfélag Íslands. Það finnst mér skipta máli, sérstaklega með tilliti til framtíðarinnar. Ef ákveða á verð landbúnaðarafurða samkv. búreikningunum, þá finnst mér eðlilegast, að hagstofan hafi með þá að gera, af því að hún er opinber stofnun, sem ekki er hægt að skoða sem fulltrúa fyrir neina nema þjóðfélagið, en Búnaðarfél. Ísl. er fulltrúi bænda. Nú, hitt atriðið, sem kom fram í ræðu hv. þm. Borgf., að ef starfið yrði lagt undir hagstofuna, þá yrði Guðmundi Jónssyni fyrirmunað að vinna það starf, um það vil ég segja, að ég sé ekki ástæðu til þess. Ég er viss um, að það er erfitt að finna mann, sem er eins fær um að annast það starf eða hefur betri aðstöðu til þess. Ég get einmitt fallizt á það, að ef hann hætti að kenna, þá yrði erfiðara fyrir hann að fá þær upplýsingar, sem hér koma til greina. En ég sé ekki, að það geti á nokkurn hátt orðið til þess, að hann hætti að kenna, þó að hann ynni starfið fyrir hagstofuna í staðinn fyrir að vinna það á vegum Búnaðarfélags Íslands. Og ég held fast við, að þetta mál eigi að fara til fjhn.