19.10.1943
Sameinað þing: 20. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 68 í D-deild Alþingistíðinda. (2442)
108. mál, hjálpar- og endurreisnarstofnun hinna sameinuðu þjóða
Atvmrh. (Vilhjálmur Þór):
Ríkisstjórn Bandaríkjanna hefur boðið ríkisstjórn Íslands að verða aðili í hjálpar- og endurreisnarstofnun hinna sameinuðu þjóða.
Ríkisstj. hefur rætt þetta mál á mörgum fundum með utanríkismálan., og er n. og ríkisstj. einhuga um að vilja taka þessu boði og leggja málið fyrir hið háa Alþingi eins og nú er gert.
Ég hef áður gert þm. grein fyrir skyldum og réttindum þátttakenda og fyrirkomulagi stofnunarinnar og tel því óþarft að endurtaka það hér.
Tilgangur stofnunarinnar er að hjálpa á svæðum, sem eru undir eftirliti einhverra hinna sameinuðu þjóða, hjálpa þeim, sem búa við skort og lina þjáningar þeirra, sem líða hörmungar vegna stríðsins eða afleiðinga þess. — Er ætlunin, að hjálpin verði veitt meðal annars með matvæla- og fatnaðarframlögum, útvegun húsnæðis, læknishjálp og hindrun á útbreiðslu farsótta og pesta, aðstoð við heimflutning fanga og útlaga, aðstoð við endursköpun iðnaðarframleiðslu og endurreisn þýðingarmikilla stofnana.
Það er augljóst, að íslenzka þjóðin með því að gerast aðili í þessari hjálparstarfsemi tekst á hendur skuldbindingar um fjárgreiðslur og matvæli, þó innan þeirra takmarka, sem viðráðandi verða.
Það hefur því miður orðið svo, að við höfum eigi komizt hjá að missa marga góða, hrausta menn, sem hafa látið lífið af völdum ófriðarins, m. a. er mörgum skipum okkar hefur verið sökkt. Engu að síður ber oss að hafa það vel í huga, að hlutskipti íslenzku þjóðarinnar, það sem af er þessu stríði, hefur að öðru leyti verið það að hafa nóg matvæli og fjárhagsafkoma betri en áður var.
En þegar við hins vegar hugsum til þeirra mörgu þjóða, sem nú eiga við hin bágustu kjör að búa, sem liðið hafa og líða enn af völdum ófriðarins hungur og alls konar hörmungar, þá ætla ég, að við hér séum allir einhuga um, að það sé bæði rétt og sjálfsagt, að Ísland gerist aðili í þessu göfuga samstarfi hinna sameinuðu þjóða í þágu miskunnsemi, mannúðar og bróðurþels.
Ég tel öruggt og víst, að drengskapur og skapgerð Íslendinga sé enn svo, að þeir allir standi sem einn maður að baki hinu háa Alþingi í þessu máli.
Með þessum orðum vildi ég fyrir hönd ríkisstj. hafa mælt með till. til þál. á þskj. 195.
Ég vona því, að undirbúningur málsins sé þannig, að eigi gerist þörf á að vísa málinu til n.