18.10.1943
Neðri deild: 33. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 409 í C-deild Alþingistíðinda. (2443)
94. mál, hafnarlög fyrir Siglufjarðarkaupstað
Flm. (Áki Jakobsson) :
Frv. þetta er flutt samkv. beiðni bæjarstj. Siglufjarðarkaupstaðar, og hefur hún samið frv., en ég gert á því smábreytingar.
Eldri hafnarl. eru frá 1915 eða áður en Siglufjörður fékk bæjarréttindi, og eru þau því orðin ákaflega úrelt samanborið við hafnarl. annars staðar á landinu, enda hefur Siglufjörður tekið miklum breytingum, síðan þau voru sett. Þetta frv. hefur að geyma ýmsar leiðréttingar í samræmi við l. um þessi efni, sem samþ. hafa verið á undanförnum þingum. Þó er eitt atriði, sem segja má, að sé aðalatriði, og er höfuðorsök þess, að frv. er borið fram. Þetta atriði felst í 6. gr. Svo er mál með vexti, að á innri höfn Siglufjarðar, þar sem mestöll síldarsöltun landsins fer fram, eru þrengslin nú orðin svo mikil, að allar syðstu bryggjurnar eru lítt nothæfar. Þetta hefur að vísu ekki komið svo mjög að sök að undanförnu, vegna þess, hve söltunin hefur dregizt saman af þeirri ástæðu, að markaðir hafa lokazt, en þetta verður að sjálfsögðu mjög bagalegt, þegar markaðir opnast aftur að stríðinu loknu. Og í 6. gr. er nú gert ráð fyrir, að bæjarstj. verði veitt heimild til að framkvæma þær endurbætur, sem hún telur nauðsynlegar í þessu sambandi.
Það eru nokkrar milljónir rúmmetra, sem þarf að grafa upp úr höfninni. Enn fremur er óhjákvæmilegt, að reistur verði fyrirstöðugarður á leirunum og loks fyrirstöðuþil fyrir hverja lóð undir bakkann. Liggur þegar fyrir áætlun, sem vitamálastjóri hefur gert, um tilhögun þessara framkvæmda. Ég veit raunar ekki með vissu, hvort búið er að taka endanlegar ákvarðanir um þessi mál, en ég held það þó, að minnsta kosti að því er aðalatriðin snertir.
Nú er það augljóst mál, að þessar lóðir hljóta að verða miklu verðmætari við það, að fjórir metrar af sjó liggja að þeim, og getur það því ekki talizt nein sanngirni, að bæjarstj. leggi ein í þessar framkvæmdir. Þess vegna er í þessari gr. gert ráð fyrir því, að eigendur eða leigjendur lóðanna sunnan Eyrarinnar og undir Hafnarbökkum séu skyldir að láta gera fyrirstöðuþil fyrir lóðum sínum, en vilji þeir ekki framkvæma fyrirmæli bæjarstj. um þetta, getur bæjarstj. látið framkvæma verkið á þeirra kostnað, en kostnaðinn greiði þeir með 10 ára greiðslufresti. Gegn þessu mundi svo hafnarsjóður fá lögveð á leiguréttindum og öllum fasteignum á lóð hlutaðeiganda á eftir þeim skuldbindingum, sem á þeim hvíla, hafi þeim verið þinglýst fyrir 15. september 1943. En sú takmörkun er sett til þess að raska sem minnst hag þeirra manna og félaga, sem hér eiga hlut að máli.
Annars get ég sagt það, að ég hef ekki athugað þetta gaumgæfilega að öðru leyti en því, sem fram kemur í grg., en tel þó, að frv. sé þannig úr garði gert, að vel sé hægt fyrir hæstv. Alþ. að taka það til vinsamlegrar athugunar og samþ. það í því formi. Þeir menn, sem eiga hér hlut að máli, hafa sjálfir mestan hagnað af þessum framkvæmdum, og ég býst við, að þeir hafi ekki síður en aðrir áhuga á því, að hafizt verði handa um þær.
Ég vil leggja til, að málinu verði vísað til hv. sjútvn., sem fer væntanlega rækilega yfir það og athugar sérstaklega, hvort þessi 6. gr. muni vera í því formi, sem æskilegt er.