18.10.1943
Neðri deild: 33. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 411 í C-deild Alþingistíðinda. (2444)

94. mál, hafnarlög fyrir Siglufjarðarkaupstað

Finnur Jónsson:

Það er rétt, að 6. gr. frv. er algert nýmæli, en hins vegar er vitað, að hún er sett í frv. af fullkominni nauðsyn, af þeirri ástæðu, að Siglufjarðarhöfn, sem er ein af beztu höfnum landsins, hefur lengi verið nærri því óstarfhæf, vegna þess, hvernig hún grynnist ár frá ári. — Annað mál er það, að ekki verður séð, að í þessari 6. gr. sé bent á leiðir til að gera það tvennt, sem gera þarf í málinu: framkvæma dýpkun hafnarinnar og tryggja það, að þeir, sem eiga lóðirnar, taki þátt í kostnaðinum af dýpkuninni. Ég skal ekki segja, hvort það næst með þessu frv. eins og það liggur fyrir, en ég hefði talið, eftir fljótlega athugun, að réttara hefði verið að reyna að ná samningum við lóðareigendurna, og ef það hefði ekki tekizt, þá hefði verið sett eignarnámsheimild til handa Siglufjarðarbæ, eins og lagt er til í frv. Hér virðist annars fullmikið vald lagt í hendur bæjarstj., en hins vegar engin trygging fyrir því, að réttur lóðareigenda sé ekki fyrir borð borinn. Mér finnst sjálfsagt að reyna að samræma þetta, og verður að gæta þess vel að afgreiða ekki l., sem fara í bág við allar reglur, sem gilt hafa hér á landi til þessa. Ég viðurkenni fyllilega nauðsyn þess, sem í frv. felst, og tel áríðandi, að málið verði afgreitt á þann hátt, að höfninni á Siglufirði sé borgið, en ég tel, að gæta verði þess, að framkvæmdirnar verði ekki algerlega einhliða, þannig að ekki verði eingöngu litið á hagsmuni annars aðilans.