18.10.1943
Neðri deild: 33. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 415 í C-deild Alþingistíðinda. (2448)

94. mál, hafnarlög fyrir Siglufjarðarkaupstað

Flm. (Áki Jakobsson) :

Ég vil enn leiðrétta misskilning, sem kom fram hjá hv. þm. Það er að vísu alveg rétt, að þeir, sem eiga bryggjurnar einir, eiga að kosta mannvirkin, en þessum hv. þm. finnst það hins vegar einskis virði, að það á að auka dýpið fyrir framan þessi mannvirki um fjóra metra um stórstraumsfjöru. Honum finnst, að það sé engin verðmætaaukning að þessum bryggjum. Ég skil ekki slíkan hugsanagang. Hann hlýtur að koma af því, að hv. þm. fylgist ekki nógu vel með þessum málum. En það þarf stórt átak til þess að koma þessum mannvirkjum í framkvæmd, uppmoksturinn á innri höfninni mundi þurfa að verða um 4 millj. rúmmetra, til þess að fjögra metra dýpkun fáist um stórstraumsfjöru, og fyrirstöðuþilin eru smámunir miðað við það stóra átak, sem þarf til þess að moka þetta upp og fylla upp fyrir innan. Ég get fullyrt, að þau fyrirstöðuþil, sem yrðu byggð upp, og uppfyllingin í kringum þau eru sáralítil verðmætaaukning á þeim lóðum, ef sömu grynningarnar eiga að vera áfram á höfninni og nú. Ég veit um menn, sem hafa byggt svona fyrirstöðuþil og fyllt upp fyrir innan þau og þeim fannst þetta dýrt, en það var aðallega vegna þess, að þeir urðu að leggja í helmingi meiri kostnað en ella til þess að hindra það, að uppfyllingin rynni ekki inn á lóð nágrannans. Í slíku tilfelli varð einn maður að byggja fyrirstöðuþil beggja vegna við sig, vegna þess að nágranni hans vildi ekki hafa samstarf við hann. Þar var verðmætum kastað, vegna þess að þessir aðilar gátu ekki komið sér saman, og þess vegna urðu þessar framkvæmdir svo kostnaðarsamar.

Hvað viðvíkur því, að þetta sé óheppileg lausn, þá vil ég segja það, að ég kæri mig ekkert um að fullyrða neitt um það að svo stöddu. En hver, sem vill líta á þetta mál með sanngirni, hlýtur að viðurkenna, þegar bæjarfélag sem þetta er að leggja í svona stórframkvæmdir til þess að eignast betri bátahöfn en áður, að það sé réttmætt, að þessir einstaklingar séu skyldaðir til þess að taka þátt í kostnaðinum með því opinbera, þannig að þeir að einhverju leyti greiði fyrir þá verðmætaaukningu, sem fellur þeim í skaut.