14.10.1943
Neðri deild: 32. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 424 í C-deild Alþingistíðinda. (2481)

97. mál, flugvellir, flugvélaskýli og dráttarbrautir fyrir flugvélar

Sveinbjörn Högnason:

Það er sjálfsagt tímabært, að það sé hafizt handa að undirbúningi að einhverjum flugsamgöngum í landinu, og þar af leiðandi er ekki nema eðlilegt, að frv. komi fram, sem gangi í þá átt, að þessi undirbúningur verði hafinn. Í grg. þessa frv. segir, að á síðasta ári hafi verið borin fram og samþ. þáltill. um, að rækilegur undirbúningur skyldi hafinn að þeirri löggjöf, sem sett yrði í þessum efnum og það frv., sem borið væri fram næst til að leysa þetta mál, þar af leiðandi yrði byggt á. Í grg. segir, með leyfi hæstv. forseta, að ríkisstj. hafi verið falið „að láta fara fram í samráði við Flugfélag Íslands rækilega athugun á því, hvernig og hvar byggingu flugvalla og flugskýla verði fyrir komið, þannig að flugsamgöngur geti í nánustu framtíð hafizt með reglubundnum og tryggum hætti við alla landshluta. Verði unnið að því að koma upp ákveðnu kerfi lendingarstaða fyrir landflugvélar og flugskýla og dráttarbrauta fyrir sjóflugvélar“. — Og síðar í grg. standa þessi orð: „Síðan þessi tillaga um flugmál Íslendinga var samþykkt, hefur þó enn þá ekkert verið gert af hálfu ríkisstj. í þá átt að hefjast handa um þann nauðsynlega undirbúning, sem þar er gert ráð fyrir“. M. ö. o., það hefur ekkert verið gert að undirbúningi þess, sem þessir hv. flm. þessarar þáltill., sem flutt var á síðasta þingi, töldu nauðsyn á, að fram færi á undan löggjöf á þessu sviði. Engu síður hafa þeir nú flutt frv., sem ber með sér á áberandi hátt, að þetta frumverkefni, undirbúningurinn, hefur ekki verið framkvæmt. Þar af leiðandi má þá telja það mjög vafasamt, að hér sé verið að leggja nokkurn hornstein undir víðtækari framkvæmdir. Það er a. m. k. mjög vafasamt, að það sé heppileg aðferð að leggja hornstein, sem er svo illa valinn eða undirbúinn, að það er skýrt tekið fram í grg. frv., að þessi rannsókn, sem til var ætlazt af Alþ. á síðasta þingi, hafi alls ekki verið framkvæmd. Enda kemur hér fram í grg., að hv. flm. hafa ekki einu sinni leitað umsagnar þess aðila, sem ætti að vera þessum hlutum kunnugastur og ríkið ber mest traust til í þessum efnum, eftir því sem það hefur ráðið hann til starfs, sem sé flugmálaráðunauts ríkisins.

Það kemur líka fram í þeim ákvæðum, sem í 1. gr. þessa frv. felast, að þar eru staðirnir mjög af handahófi valdir, sem lagt er til, að þessum mannvirkjum verði komið upp á. Í sumum héruðum, þar sem íbúarnir geta ekki notað þjóðvegina og eru hundruð km frá vegum, t. d. alla leið frá Hornafirði að Helluvaði í Rangárvallasýslu, sem er ein lengsta og erfiðasta leið á landinu, þar er ekki gert ráð fyrir í þessu frv., að neinn lendingarstaður sé undirbúinn. Ég hygg, að þetta sé 300–400 km vegalengd. Og ef þessi 1. gr., sem inniheldur ákvæði um það, hvar lendingarstaðir fyrir landflugvélar skuli vera, er álíka vel undirbúin með tilliti til annarra staða, þar sem ég er ekki kunnugur, þá er hér um að ræða fullkomið handahóf, sem ekki er líklegt til að verða hornsteinn undir þær framkvæmdir, sem hér er ætlazt til, að frv. verði. Það er vitað t. d., að í Vestur-Skaftafellssýslu eru víða staðir, sem með mjög hægu móti mætti undirbúa flugvelli á. Þar eru verstu samgöngurnar á landinu, en það er ekki gert ráð fyrir því í þessu frv., að þar verði neinn flugvöllur.

Í öðru lagi er í 3. lið 1. gr., undir A, gert ráð fyrir, að flugvöllur skuli vera við Helluvað í Rangárvallasýslu, en þar efast ég um, að sé hinn heppilegasti staður fyrir flugvöll, hvorki fyrir íbúa héraðsins né heldur, að það sé heppilegast að koma lendingarstað þar fyrir. Mér hefur verið sagt af þeim, sem kunnugir eru í þessu efni, að þeir telji staðinn á söndunum annars staðar vera betri. Og þessi staður, sem þarna er valinn, er þannig settur, að íbúar héraðsins mundu langminnst not hafa af flugvelli þar. Og ég tel varhugavert, ef á að taka upp sömu stefnu í þessum málum og fylgt hefur verið á undanfarandi áratugum, að fara upp á heiðar eða afrétti með vegina, en hugsa ekkert um það, þegar aðalvegirnir hafa verið lagðir, að þeir komi sveitunum, sem þeir liggja næst, að sem mestu gagni. Í þess stað hafa þeir verið lagðir með langleiðir um of fyrir augum, og svo verður að breyta þeim síðar í stórum stíl, til þess að fólk hafi betri not af þeim. — Fyrsta krafan, sem gera verður, þegar um samgöngubætur er að ræða, er, að þær nái til fólksins. T. d. er það svo í Grímsnesinu, þar sem vegur er lagður milli bæjanna langan veg frá þeim, að til þess að ná þar góðum samgöngum verður að leggja tvo vegi í viðbót til þess að geta notað aðalveginn. Þetta ólag á vegalagningunni hefur líka átt sér stað þar, sem farið er með þjóðveg yfir heiðar, þar sem hann er í kafi mestan hluta vetrar, en í staðinn eru sveitirnar samgöngulausar mikinn hluta ársins.

Þessa þarf að taka tillit til, þegar lagður er hornsteinn að flugsamgöngum í landinu, að lendingarstaðir verði, að öðru jöfnu a. m. k. valdir þar, sem þeir koma fólkinu í héruðunum að sem beztum notum og geta náð til íbúa héraðanna. En þessa er ekki tekið tillit til í frv. viðkomandi þeim stöðum, þar sem ég er kunnugur, en ég er ekki alls staðar kunnugur staðháttum í þessu efni. Hins vegar er ég á því, að það hafi verið gersamlega vanrækt að líta til þessa atriðis m. a., þegar þetta frv. var samið, sem hér liggur fyrir. Vil ég biðja þá hv. n., sem ég veit, að fær þetta mál til meðferðar, að taka þetta atriði mjög rækilega til yfirvegunar.

Þá er eitt atriði hér, sem ég er ekki sammála í þessu frv. Það er það, að vegamálastjóri skuli fyrst um sinn stjórna framkvæmdum í þessu máli. Það er vitað, að vegamálastjóri er orðinn svo önnum kafinn, að ekki verður við það bætt með góðu móti. Það er búið að leggja svo margt á hann í verklegum framkvæmdum hér á landi, að það eru mörg og stór mannvirki, sem hafa mætt fullkominni vanrækslu fyrir það sennilega, að hann hefur ekki tíma til að sinna þeim. Ég álít kominn tíma til þess, að minnkuð verði störf vegamálastjóra, svo að hann þurfi ekki að vanrækja þau störf, sem honum ber að framkvæma, eins og t. d. fyrirhleðslur í Rangárvallasýslu, sem ekkert hefur verið unnið að í 2–3 ár, sem eingöngu er fyrir vanrækslu þessa manns, sem hefur ekki sinnt því verkefni vegna tímaskorts. Og að fela þetta mál vegamálastjóra, sem vitanlega hefur ekki sérstaka sérþekkingu í þessum málum, getur orðið til þess, að það verði vanrækt, eins og átt hefur sér stað um aðrar framkvæmdir, sem honum hafa verið faldar framkvæmdir á, en alveg hefur vanrækzt að framkvæma á undanförnum árum.

Ég mun fyrir mitt leyti flytja á þessu þingi frv., til þess að frekar verði farið að draga úr því og taka aftur undan yfirumsjón vegamálastjóra, þar sem hann virðist ekki anna öllu því, sem hann þegar hefur, heldur en að bætt sé við hann störfum, sem hann hefur enga sérþekkingu á. Mér finnst sjálfsagt, að ef um yfirstjórn sé að ræða samhliða ríkisstj., þá kæmi flugmálaráðunautur ríkisins til greina, því að hann ætti að vera hliðstæður stjórnandi um flugmál eins og vegamálastjóri er um vegamál, og hygg ég, að til þess hafi verið ætlazt, þegar það embætti var stofnað hér á landi. A. m. k. ætti að fela þessi mál manni, sem áhuga hefur á þeim, en ekki þeim, sem er svo störfum hlaðinn, að hann getur ekki nema að mjög litlu leyti sinnt því, sem nú er undir hans umsjá.

Þetta vildi ég aðeins taka fram, um leið og frv. fer til n.