01.11.1943
Neðri deild: 40. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 438 í C-deild Alþingistíðinda. (2523)

131. mál, styrktarsjóður verkalýðsfélaga

Sveinbjörn Högnason:

Hv. flm. vildi benda á, að það stæði sérstaklega á um félög þau, sem hér um ræðir, þar sem félögin legðu framlag sjálf, eina til fimm kr. á mann. Það gildir það sama um alla sjóði, að þeir halda uppi starfsemi til að safna inn fé. T. d. er svo í minni sveit.

Flm. vildi halda því fram, að það væri vafasamt, hvar ætti að setja mörkin, en það er gefinn hlutur, að það er ekki hægt fyrir hið opinbera að leggja til fé, nema staðfestar samþykktir liggi fyrir um, hvað eigi að gera. Það gildir jafnt um alla sjóði.

Það eina, sem er rétt hjá hv. flm., er að verkalýðsfélögin eru búin að koma sér betur fyrir en önnur félög um að fá framlög. Sum hafa styrk úr bæjarsjóðum, sum í fjárl., sum jafnvel frá atvinnurekendum. Þau eru því betur sett en önnur félög og því frekar ástæða til að líta til hinna, sem hafa ekki náð þessum fríðindum, en eru nákvæmlega jafnrétthá. Þegar um líknarstarfsemi er að ræða, má ekkert tillit taka til stétta, aðeins miða við þörf þess einstaklings, sem um er að ræða, og ekkert annað, hvort sem hann er sjómaður, iðnaðarmaður, bóndi eða annað.