06.09.1943
Efri deild: 10. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 350 í B-deild Alþingistíðinda. (253)
30. mál, einkasala á tóbaki
Brynjólfur Bjarnason:
Herra forseti. Þetta mun ekki þykja neitt stórmál eins og það var reifað af hæstv. ráðh., og er það því furðulegra sem þetta er það dularfyllsta mál, sem fyrir þ. hefur komið um langan tíma. Það er farið fram á það af ríkisstj., að heimilað verði að hækka álagningu á tóbaki mjög verulega, svo að ef heimildin væri notuð til fulls, væri um gífurlega verðhækkun að ræða. Þegar svo spurt er um ástæðuna til þessa, fæst ráðh. ekki til að svara öðru en því, að ríkisstj. þyki réttara að hafa þessa heimild. Ef ríkisstj. hefði ekkert annað eða meira í hyggju, hvað á þá þetta að þýða að ryðja þessu í gegn á einum degi? Það er alveg ótilhlýðilegt að ætlast til þess, að Alþ. samþ. heimild til mikillar hækkunar á tekjum ríkissjóðs og nýrra álaga á almenning, án þess að þm. fái að vita full skil á, hver nauðsyn ber til. Enda þótt ríkisstj. hefði stuðning meiri hl. Alþ., væri ekki hægt að ætlast til slíks af þm. þeirra flokka, sem stj. styddu, hvað þá heldur, þegar ríkisstj. hefur ekki stuðning neins flokks. Að veita þessa heimild blindandi er meiri traustsyfirlýsing en hægt er að fá í öðru formi.
Það liggur í hlutarins eðli, að Sósfl., sem er í andstöðu við ríkisstj., greiðir atkv. á móti þessu máli, þó að um mætti ræða, hvort rétt væri í ákveðnum tilgangi að hækka álag á tóbaki.
Það er nú svo, að þó að um sé að ræða munaðarvöru, þýðir mikil hækkun á tóbaki nokkra hækkun á vísitölunni, en hækkun á dýrtíðinni yrði meiri. Mér er ekki kunnugt um tilganginn með þessu frv., en ég hef heyrt flugufregnir, og ef þær eru réttar, er mér óskiljanlegt, hvers vegna öll þessi leynd þarf að vera. En ríkisstj. telur, að það sé að bregðast trúnaði að segja frá þessu.
Ef sú leið er farin að hækka álagningu á tóbaki til þess að gefa með öðrum vörum til að lækka vísitöluna, þýðir það ekki annað en almenna kauplækkun, því að dýrtíðin verður sú sama. Það er að vísu rétt, að menn geta verið án tóbaks, en fjöldi fólks lætur sig heldur vanta eitthvað annað.
Ég trúi því ekki fyrr en ég tek á, að Alþ. veiti ríkisstj. þessa heimild, nema a. m. k. að ganga fyrst úr skugga um, hvort ríkisstj. telur sig hafa heimild til að nota þetta fé án samþ. Alþ. Var nokkuð um þetta rætt í Nd. Og hv þm. G.-K. og 4. þm. Reykv. héldu því fram, að það kæmi ekki til mála, að féð yrði notað nema með samþ. Alþ. Ég vil ganga úr skugga um, hvort sú staðhæfing er rétt, og beina því til hæstv. ráðh., hvort hann vill gefa þá yfirlýsingu í d., að ríkisstj. muni ekki nota féð, nema samþ. Alþ. komi til. Það er ekki nóg, að ríkisstj. ræði við einhverja þingm. Fyrirspurn hv. 3. landsk. þm. um þetta efni var ekki svarað af ráðh. Hann kvaðst ekki geta svarað henni f. h. ríkisstj.
Alþ. þarf að fá svar um það, hvort ríkisstj. álítur, að Alþ. eitt hafi ráðstöfunarrétt yfir þessu fé eða ekki, en mér fannst á hæstv. ráðh., að hann hefði allt annað í hyggju.