13.12.1943
Neðri deild: 63. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 443 í C-deild Alþingistíðinda. (2564)
133. mál, raforkusjóður
Áki Jakobsson:
Herra forseti. Svo tókst til með 2. umr. þessa máls, að hún varð stutt. Ég var ekki viðstaddur, þar eð ég bjóst við að ræða frsm. yrði lengri. En það hefði ekki átt að gera neitt til, þótt nokkuð væri ósagt til 3. umr.
Efni þessarar till. er í aðalatriðum um heimild ríkisstj. til að bjóða út lán til raforkusjóðs. Þetta er alleinkennilegt mál, og vil ég, að það verði síðar tekið ásamt öðrum raforkumálum hér á landi. Vil ég nú mælast til, að afgreiðslu málsins verði frestað, með því að nú er langt liðið á nótt. Ég ætlaði samkvæmt viðtali við forseta að falla frá orðinu, en ég sé, að ég get ekki látið hjá líða að segja nokkur orð í svo mikilvægu máli, en vil hins vegar síður gera það yfir tómum bekkjum.