15.12.1943
Neðri deild: 64. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 456 í C-deild Alþingistíðinda. (2579)

133. mál, raforkusjóður

Eiríkur Einarsson:

Ég hef tekið það fram við umr. þessa máls, þar sem ég er einn af flm. aðaltill., að ég álít, að rannsókn ætti að fara fram á víðtækari hátt en aðaltill. greinir frá eða í líkum anda og tekið er fram í brtt. Í trausti þess, að rannsókn verði framkvæmd eins og ég hef getið um, finnst mér ekki ástæða til að hvika frá till. eins og hún upphaflega var, og mun ég því ekki greiða atkv.