15.11.1943
Neðri deild: 46. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 459 í C-deild Alþingistíðinda. (2595)

138. mál, iðnaðarnám

Sigurður Thoroddsen:

Herra forseti. Hv. þm. Hafnf. ásakar mig um að flytja brtt. við það, sem n. hafi verið sammála að bera öll fram. En brtt. mínar við l. frá 1940 eru ekki breyt. á till. n., þótt þær séu afleiðing af 2. gr. í frv. n., og þann rétt áskildi ég mér að flytja eða styðja slíkar brtt. Það tjáði ég ákveðið formanni n. Hv. þm. Hafnf. var líka vel kunnugt, að ég var mótfallinn 2. gr. frv., nema eitthvað kæmi til mótvægis. Hann tók fram, að greinin er sett af því, að eldra ákvæði var óframkvæmanlegt, það var gat í lögin. En er betra að bæta það með því að gera nýtt og verra gat í l.? Annars vísa ég til þess, sem ég sagði um álit sveinafélaganna, sem standa að brtt. Þau telja, að þarna eigi þau brýnna hagsmuna að gæta.