06.09.1943
Efri deild: 10. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 359 í B-deild Alþingistíðinda. (261)
30. mál, einkasala á tóbaki
Hermann Jónasson:
Hv. 1. þm. Eyf. (BSt) hefur eiginlega tekið fram það, sem ég ætlaði að svara. Hv. 5. þm. Reykv. (BrB) var að gera sér það til dægrastyttingar, meðan hann var að bíða eftir ráðh., að rangfæra það, sem ég hafði sagt. Það er vitanlega sitt hvort að greiða atkv. með því, sem fyrir liggur, vegna þess að vitað er, að ríkissj. hefur þörf fyrir peninga, eða gera kröfu til þess, að hæstv. ráðh. skýri frá því hér í d., að stj. hugsi sér ekki að nota peningana, án þess að sérstök heimild sé fyrir því, því að eins og hv. 1. þm. Eyf. (BSt) sagði, getur stj. vitanlega ekki notað þessa peninga nema eftir heimild, sem þingið er búið að veita áður. ríkisstj. getur ekki borgað út neitt fé nema eftir heimild frá Alþingi.
Ég get sagt það viðvíkjandi fjármálastefnunni, sem forðazt er að minnast á, að það er atriði, sem ætti að tala um miklu meira en gert er. En það er tekin upp sú aðferð að minnast ekki á það. En það er vitað mál, að dýrtíðin er komin svo hátt í þessu landi, að það verður að borga hana niður, til þess að framleiðslan geti haldið áfram. Þessi baggi verður þyngri og þyngri með hverjum deginum og er nú þegar orðinn svo þungur, að ég sé ekki betur en nokkrar millj. þurfi til þess að borga framleiðsluvörurnar niður. Og það er næstum því vitað mál, að ef dýrtíðinni verður ekki haldið niðri með greiðslum úr ríkissj. og hún fengi að fara sínar götur, lítur út fyrir, að framleiðslan muni stöðvast.
Í sambandi við þau orð, sem féllu, vil ég segja það, að ég er ekki reiðubúinn til þess að láta dýrtíðina fara sínar götur og taka afleiðingunum af því, og ég er ekki reiðubúinn til þess á þessu stigi málsins að neita ríkisstj. um heimild til þess að hafa fé milli handa til þess að borga dýrtíðina niður, því það er augljóst mál, að það er hún, sem gleypir þetta. Það þarf að vera fé fyrir hendi, meðan þm. eru að átta sig á, hvaða fjármálastefna skuli upp tekin, því að það er bersýnilegt, að ekki er hægt að halda áfram til lengdar að borga dýrtíðina niður. Það var þess vegna engin yfirlýsing frá mér um það, að ég vildi halda áfram að borga dýrtíðina, heldur vildi ég um stund gefa tækifæri, meðan verið væri að átta sig á, hvaða stefnu skyldi taka upp, — og kannske verður engin stefna tekin upp, og það er stefna fyrir sig, því að það hljóta allir að sjá, að eitthvað verður að gera og að þegar verið er að leggja þennan skatt á, þá er verið smátt og smátt að tæma þær fjáröflunarlindir, sem fyrir eru. Þegar þær svo eru búnar, hlýtur allt að stöðvast.
Ég endurtek það, að þó ég sé ekki búinn að játa fylgi mitt við það, að núgildandi dýrtíðarráðstöfunum skuli haldið áfram, vildi ég ekki neita um fylgi mitt, meðan verið er að ákveða, hvaða stefnu skuli taka.