10.12.1943
Neðri deild: 61. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 462 í C-deild Alþingistíðinda. (2615)

139. mál, stríðsgróðaskattur

Lúðvík Jósefsson:

Út af þeim ummælum, sem hér féllu hjá hv. 3. þm. Reykv. (JakM), vil ég segja það, að þetta mál liggur hreint ekki þannig fyrir, að um það sé að ræða, að þótt hlutdeild þessara bæjar- og sýslufélaga af stríðsgróðaskatti verði aukin eins og hér er lagt til, frá því sem verið hefur, þá verði það á nokkurn hátt til þess að skerða samkv. núverandi 1. hluta þeirra bæjar- og sveitarfélaga, sem nú fá 45% af þeim stríðsgróðaskatti, sem á er lagður hjá þeim hverju fyrir sig. Það verður ekki á nokkurn hátt. Þau fá nákvæmlega jafn mikið af þeim hluta, þó að þetta frv. verði samþ., eftir sem áður. En sá einn munur, sem á þessu yrði, er, að ríkið kæmi til með að sleppa nokkru af því, sem það hefur. Það, sem því hefur ráðið úrslitum hjá hv. meiri hl. fjhn., er það, sem síðast kom fram í ræðu hv. 3. þm. Reykv., að þeir hafa ekki álitið, að ríkið mætti við því að sleppa þeirri fjárhæð, sem hér ræðir um, en ekki hitt, að í raun og veru væri verið að draga til þeirra bæjar- og sveitarfélaga, sem greiða ekki stríðsgróðaskatt, af þeim skatti, sem önnur bæjar- og sveitarfélög ættu, þar sem stríðsgróðaskattur væri á lagður.