02.11.1943
Sameinað þing: 25. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 101 í D-deild Alþingistíðinda. (2628)

47. mál, greiðsla á skuldum ríkissjóðs

Frsm. meiri hl. (Jónas Jónsson):

Ég er mjög ánægður með þessa ræðu frá síðasta ræðumanni, því að þótt hún væri nokkuð sundurlaus, kom greinilega fram, að flokkur hans vill ekki borga skuldirnar. Þetta er einmitt það, sem ég bjóst við. Ég ætla því að minna hann á eitt dæmi, sem hann ef til vill veit ekki. í Noregi var uppi sams konar flokkur sem hann tilheyrir, og var hann orðinn töluvert fjölmennur þar í lok síðustu styrjaldar og fyrst eftir hana. Flokkur þessi náði meiri hluta í nokkrum bæjarstjórnum, en stýrði þannig í vitleysu, að allt fór í kaf, svo að síðan hefur þjóðin snúið baki að þessum flokki, og hann hefur varla sézt þar í landi síðan. Það var einmitt á fjármálunum, sem kommúnistaflokkurinn féll, eftir að vera kominn svo langt áleiðis, að menn héldu, að hann væri á leið til sigurs.

Það voru fjármálin, sem drógu norska kommúnistaflokkinn til dauða, og ef þessi flokkur hér á landi héldi fram sömu stefnu, mundi það verða honum og öllum öðrum til góðs. Hv. þm. reyndi með skáldlegu hugarflugi að ímynda sér, hvers vegna ég vildi greiða skuldir. E. t. v. vildi hann einnig ímynda sér eitthvað um, hvers vegna útvegsmenn, bændur og kaupmenn hér á landi keppast við að greiða skuldir sínar.

Þetta er ákaflega merkilegt atriði vegna þess, hversu það er furðulegt, að maður með svo áberandi skort á almennri greind, skuli finnast hér á Alþingi. Í lauslegum umr. í fjvn. óskaði hann eftir því, að ég gæfi bendingar um öflun fjárins, og það gaf ég fyrirheit um. En ég sá ekki ástæðu til að svo stöddu að fara að kenna stjórninni ráð.