06.09.1943
Efri deild: 10. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 360 í B-deild Alþingistíðinda. (263)

30. mál, einkasala á tóbaki

Gísli Jónsson:

Herra forseti. Það eru aðeins nokkrir dagar síðan stj. lagði fram nýtt fjárlagafrv., þar sem gert er ráð fyrir, að tekjur af Tóbakseinkasölu ríkisins verði 2.500.000 krónur. Ég vildi mega beina þeirri fyrirspurn til hæstv. fjmrh., hvort sú breyt. á álagningu, sem kemur fram í frv., sem nú er rætt hér, stafar beint af því, að Tóbakseinkasala ríkisins þurfi á meiri tekjum að halda til þess að skila tekjum þeim, sem um getur í fjárlagafrv., eða hvort það, sem fæst með þessum nýja skatti, á um leið að vera tekjuauki fyrir ríkissjóð. Mér finnst það skipta nokkru máli, áður en gengið er til atkvæða, hvort um er að ræða að fá meiri hagnað eða að fá tekjur, sem eru ekki reiknaðar með, þegar fjárlagafrv. var lagt fram.

Ég vildi líka gera fyrirspurn með tilvísun til dýrtíðarl. Samkvæmt 1. gr. þeirra l. er heimilt að leggja á tekjur ársins 1942 þann skatt, sem verðlækkunarskattur nefnist, og vildi ég þá spyrja, hvort ráðh. hugsar sér að fá þessa heimild framlengda til ársins 1944, ef þau l. verða samþykkt, sem nú er verið að ræða hér, og hvort þetta á að koma í staðinn fyrir dýrtíðarráðstafanir þær, sem gert er ráð fyrir í dýrtíðarl. Það er vitanlegt, að það er ekki heimilt að taka þennan verðlækkunarskatt nema þetta ár, og líka vitanlegt, að ef þjóðin hefði verið spurð um það, hvort hún vildi þennan 80% tekjuskattsauka, hefði orðið allt önnur afgreiðsla á málinu. En það er atriði fyrir sig.

Það er vitanlegt, að þessi tekjustofn gildir ekki nema þetta ár, svo að það verður að finna nýjar leiðir. Ég vil benda á það, að fyrir þessari hv. deild liggja tvö önnur frv. um stórkostlega tekjuöflun fyrir ríkissjóð. Á ég þar við frv. um eignarskatt og tekjuskatt, og vildi ég gjarnan spyrja hæstv. fjmrh., hvort hann telji ríkissj. þurfa á öllum þeim tekjum að halda, sem þar er gert ráð fyrir, einnig þótt þau l. verði samþykkt, er hér liggja fyrir.

Allar þessar upplýsingar munu hafa áhrif á mitt atkvæði í þessu máli.