15.12.1943
Efri deild: 67. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 465 í C-deild Alþingistíðinda. (2641)
139. mál, stríðsgróðaskattur
Gísli Jónsson:
Ég vil benda á, að þó að ég ræddi um útsvarsl., þá ræddi ég einnig um, að afla þyrfti tekna gegnum smærri álagningar á einstaklinga, en ekki gegnum stríðsgróðaskattinn.
Við athugun á fylgiskjali III. á þskj. 612 sé ég, að Barðastrandarsýsla mundi fá meira en helmingi minna en hún fær nú, ef l. þessum er breytt. Ég mótmæli því. Ég sé, að ýmsar aðrar sýslur hafa hagnað af því, m. a. Eyjafjarðarsýsla og Akureyrarkaupstaður, en ég vænti, að það komi ekki til að ráða atkv. hv. þm., hvað sýslur þeirra græða á kostnað annarra. Ég held því fast við þá kröfu, að málið fari í n. og fái þinglega afgreiðslu.