29.10.1943
Sameinað þing: 23. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 105 í D-deild Alþingistíðinda. (2652)
125. mál, rafmagnsveita Reykjaness
Eiríkur Einarsson:
Herra forseti. Ég hefði talið eðlilegt, að 9. landsk. hefði kvatt sér hljóðs og talað hér á undan mér, með því að sú brtt., sem ég er höfundur að, er skeytt aftan við brtt. frá honum, en ég álít það samt litlu máli skipta.
Það er nú svo, þó að ég álíti ekki nauðsyn að ræða um það, að brtt. mín er á engan veg borin fram í því skyni að hindra eða til þess að spilla fyrir þeirri málaleitan, sem felst í till. hv. þm. G.-K., og sízt vildi ég spilla fyrir því, að Keflvíkingar fengju rafmagnsveitu. En úr því að þetta er fram komið, get ég ekki látið hjá líða að minnast á rafmagnsmál Suðurnesja í heild. Sem kunnugt er, fór pöntun um efni í alla þessa rafmagnsveitu um leið, og þykir mér trúlegt, að mörgum þyki kynlegt, að staðir með svipuð skilyrði skuli ekki fá svipaða úrlausn. Hér er ekki farið fram á annað en heimild til hæstv. ríkisstj., og þá heimild þarf ekki að nota, nema efnið liggi fyrir. Hitt er annað mál, að ef hægt væri að fá frekara efni, þá mundi það greiða fyrir, ef Alþingi veitti slíka heimild. Ég veit, að víðar er réttur og þörf slíkra úrlausna, en það ætti sízt að verða til að spilla fyrir. Má og telja eðlilegt, að hafizt sé handa þar, sem skilyrði eru bezt. Ég veit, að rafmagnsveitu til Keflavíkur er knýjandi þörf af þeim ástæðum, sem þar eru. En svo er einnig háttað um Eyrarbakka og Selfoss, að þar er mjög ófullnægjandi raforka. En þó mun Stokkseyri verst sett, og hér er alls staðar um svipaða vegalengd að ræða. Um leið og ég óska, að Keflavík hljóti hið bezta af þessu máli, þá vænti ég þess, að aðrir staðir njóti sama réttar.
Að síðustu vil ég segja það, við ósk hv. þm. G.-K., að þessi till. verði tekin aftur til 2. umr., þá vísa ég þar til hv. 9. landsk., þar sem hann er flm. aðaltill.