29.10.1943
Sameinað þing: 23. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 109 í D-deild Alþingistíðinda. (2660)
125. mál, rafmagnsveita Reykjaness
Eiríkur Einarsson:
Herra forseti. Ég vil leiða það hjá mér að tala mörg orð um samanburð á nauðsyn þeirra rafvirkjana, sem hér eru til umr., það á ekki við. En ég vil með fullri játningu á þörf þess, að Keflavíkurveitan nái fram að ganga, segja, að sú rafleiðsla, sem um er að ræða í minni brtt., á vitanlega eftir hlutarins eðli að koma fyrst af þessu öllu. Þegar Ljósafoss var tekinn til virkjunar, þá var það alveg sérstakt og mjög undarlegt, að kauptún fyrir austan, að heita mátti í leiðinni milli Ljósafoss og Reykjavíkur, skyldu vera skilin eftir í myrkri.
Þetta eru nægileg rök fyrir því, að till. mín á vitanlega að ganga fram. Ef mín till. fengist samþ. á Alþ., þá mundi með því verða gefin réttmæt hvatning til hlutaðeigandi stjórnarvalda um að fullnægja umsóknum, sem nokkuð lengi hafa legið fyrir.
Annars vil ég segja það um afgr. þessara till., — og það var í raun og veru það eina, sem gaf mér tilefni til að kveðja mér hljóðs affur, — að mér er lítið um það gefið að bera brtt. mína undir atkv. nú á þessum fundi, ef ég þarf að eiga á hættu, að hún verði felld, því að ég álít, að það geti ekki verið blygðunarlaust af hv. þm. að greiða atkv. gegn henni. En mig vantar þann þátt skynsemdar — eins og margt annað, að ég hafi þá þefvísi, sem til þess þarf að vita, hvernig sakir standa um það, hverjir eru hlynntir minni till. og hverjir ekki. Ég vil í þessu sambandi skjóta því til hæstv. forseta, hvort ekki er hægt að samræma afgreiðslu þessa máls með mjög auðveldri aðferð, á þann hátt að fresta þessari fyrri umr. málsins, en vísa málinu til hv. n., sem um verður að ræða, og þá væntanlega fjvn., áður en brtt. verða látnar koma til nokkurrar sérstakrar atkvgr., en ljúka svo ekki fyrri umr., fyrr en hv. fjvn. hefur lokið athugun sinni á málinu. Ef þörfin verður þar á eftir svo mikil á að flýta málinu, þá má vitanlega skjóta á fundi með afbrigðum til þess að afgreiða málið til fullnustu. Hvað sérstakt kynni að vera á móti þessari aðferð, vildi ég heyra, — ég vænti, að það sé ekkert.