12.11.1943
Sameinað þing: 29. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 115 í D-deild Alþingistíðinda. (2672)

125. mál, rafmagnsveita Reykjaness

Ólafur Thors:

Ég get þakkað n. fyrir afgreiðslu hennar á þessu máli. Ég fæ ekki annað séð en að velvilji til málsins komi fram hjá n. yfirleitt, þó að ég að sjálfsögðu viti, að framgangi málsins sé örugglegast borgið með því að samþ. þá till., sem ég hef borið fram. Ég kysi helzt, að málið yrði samþ. í því formi, því að með því eru tekin af öll tvímæli um, að það efni, sem ég fer fram á, að stj. heimilist að kaupa, verði keypt og verði notað til þess, sem ég ætlast til. Með henni er heldur á engan hátt stofnað í voða þeim óskum, sem ég hef sett fram hér á þingi og utan þings og eru studdar af ýmsum öðrum, nefnilega að sem öruggast og fyrst megi takast að koma rafveitu til annarra þorpa og kauptúna á Suðurnesjum. Hv. form. fjvn. og frsm. meiri hl. hefur lýst yfir, um leið og hann lýsti yfir fylgi meiri hl. við till. mína, að fjvn. hefði í huga að sjá borgið áframhaldandi rafveitum á Reykjanesi ásamt öðrum rafveitum, sem þörf er á, með afgreiðslu þeirrar till., sem hv. 11. landsk. hefur flutt á þskj. 233. Nái málið afgreiðslu í þessu formi, þá hefur Alþingi í fyrsta lagi heimilað stj. að kaupa efni í rafveitu til Keflavíkur, og hæstv. atvmrh. hefur tjáð mér, að hann ætli að nota þá heimild. Þetta er það, sem ég hef óskað eftir, og er þakklátur fyrir afgreiðslu n., um leið og ég ber fullt traust til hæstv. atvmrh., að hann kaupi efnið og það strax og hann hefur fengið heimildina.

En óskir mínar ná svo lengra. Þær ná til þess, að Reykjanessveitan geti komizt öll í framkvæmd og einnig rafveitan til Eyrarbakka og Stokkseyrar. Ég leyfi mér að nefna sérstaklega þessar tvær rafveitur, af því að ég gerðist svo djarfur sem ráðh. að taka á mig þá áhættu, að ríkissjóður keypti þetta efni, en án þess að ég fengi til þess þinglega heimild, í fullu trausti þess, að þingið sýndi málinu þann góðvilja, sem það nú með fylgi allra flokka hefur gert. Undirtektir fjvn. í þessu máli sanna, að ég gat mér rétt til um hug þingsins í þessum málum, og ég er því fegnastur, að þingið vill sýna sem víðtækastan skilning og velvilja á þessum málum yfirleitt. Ég hef leyft mér að setja í fremstu röð Reykjanesslínuna og línuna til Stokkseyrar og Eyrarbakka, og er sú skoðun mín studd af þeim embættismanni ríkisins, sem ríkisstj. á hverjum tíma leitar til um þessi efni og aldrei hefur verið vændur um að segja annað um þessi mál en það, sem hann vissi sannast og réttast, og hann stendur manna bezt að vígi um að dæma um þetta vegna mikillar þekkingar á málunum frá öllum hliðum.

Ég hef, eins og hv. þm. Ísaf. minntist á, lagt til, að Keflavíkurlínan yrði tekin út úr, og býst ég við, að hann viðurkenni, að þar sé þörfin mest, og hefði ég helzt kosið, að till. hefði verið samþ. í því formi. En af því að mér stendur til boða að tryggja kaup á efni til Keflavíkurlínunnar með till. hv. 11. landsk., þá kýs ég það helzt.

Ég hef enga ástæðu til að láta í ljós óánægju við minni hl. út af málsmeðferð hans, þó að ég telji mínu sérstaka hugðarefni bezt borgið á þann hátt, sem meiri hl. leggur til.

Ég vil svo aðeins segja frá því, að mér hefur borizt í hendur skjal, sem ein af þeim hreppsn., sem hlut eiga að máli þar syðra, hreppsn. Gerðahrepps, hefur sent Alþingi, og vil ég, með leyfi hæstv. forseta, lesa það upp. Það hljóðar svo:

„Í fullu trausti þess, að Alþingi muni jafnan síðar veita nýjum og gagnlegum rafveituframkvæmdum í hverju héraði skjótan stuðning, vill hreppsnefnd Gerðahrepps fyrir sitt leyti eindregið mæla með því, að Alþ. hraði nú sem kostur er afgreiðslu heimildar handa ríkisstj. til að kaupa nú þegar allt efni til fyrsta hluta Reykjanessveitunnar, veitunnar frá Hafnarfirði til Keflavíkur, sem nú er talið, að leyfi hafi fengizt fyrir eða loforð um í Bandaríkjum Norður-Ameríku, svo að tryggt sé, að dráttur á að nota fengin leyfi verði ekki þess valdandi, að þeir möguleikar, sem fyrir hendi eru til efnis útvegunar, missist“.

Undir þetta bréf skrifa fimm menn, öll hreppsnefndin.

Þetta sýnir, að Suðurnesjabúar utan Keflavíkur eru þakklátir þinginu fyrir stuðning við þetta mál, sem hér er um að ræða, þ. e. a. s., að langlína verði lögð til Keflavíkur.

Eins og menn kannske hafa veitt athygli, stendur í þessu skjali „hluti af Reykjanessveitunni“. Suður um þessi byggðarlög hefur vaknað misskilningur, vegna þess að fyrirsögn þessarar till. er „Tillaga til þingsályktunar um rafmagnsveitu Keflavíkur“. Af þessu hefur vaknað kvíði um, að Keflavík ætlaði að taka sig ein út úr og reka þessa rafveitu upp á sinn reikning án hliðsjónar af þörf annarra manna þar syðra. Hins vegar er ríkur áhugi á, að þetta verði allt sama kerfið. Ég tel rétt, að sýslan reki þessa rafveitu, ef hún æskir þess, og eigi hana sjálf eða ríkið. Hins vegar gæti komið til mála, að farin yrði til bráðabirgða svipuð leið og farin var með Hafnarfjarðarlínuna, sem var stofnsett af Reykjavíkurbæ og rekin í bili af honum, en ríkið hefur rétt til að ganga þar inn í, hvenær sem því þóknast. Ég vil því til að koma í veg fyrir misskilning, að það komi fram í till., að hér er ekki um annað að ræða en hluta af Reykjanesslínunni. Ég vil því bera fram skrifl. brtt. við fyrirsögn till., að hún verði: „Till. til þál. um annan hluta Reykjanessveitunnar“. Forstjóri rafmagnseftirlits ríkisins hefur tjáð mér, að réttast sé að orða það þannig. Fyrsti hlutinn er veitan til Hafnarfjarðar, annar hlutinn er línan til Keflavíkur, og þriðji hlutinn yrði svo það, sem þá er óframkvæmt. Til viðbótar við þetta skal ég upplýsa, að þessi lína til Keflavíkur verður háspennulína með 30000 volta spennu, en ef hún væri fyrir Keflavík eina, mundi spennan vera höfð 15 eða 20000 volt. Er það sönnun þess, að þessi lína er ekki ætluð fyrir Keflavík eina. Ég tel þó rétt til að hindra misskilning, að fyrirsögninni sé breytt á þann veg, sem ég legg nú til.

Ég vil svo mjög leggja áherzlu á, ef hægt væri að ljúka þessu máli stöðvunarlítið, að hæstv. forseti sæi sér fært að láta ljúka síðari hluta umr. í dag, því að hæstv. atvmrh. og forstjóri rafmagnseftirlitsins segja, að daglega sé rekið á eftir um efniskaupin og meira að segja hættu á, að ef ekki er undinn bráður bugur að kaupunum, geti farið svo, að við missum þetta tækifæri, sem allir mundu harma, eins og nú er ástatt um framkominn vilja þingsins í þessu efni.