12.11.1943
Sameinað þing: 29. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 125 í D-deild Alþingistíðinda. (2682)

125. mál, rafmagnsveita Reykjaness

Forseti (GSv) :

Ég skal geta þess, að þessi breyt., sem hv. flm. aðaltill. vildi gera á hinni skriflegu brtt., var á þá leið, að einu orði skyldi skotið inn í. Þar sem brtt. sjálf var samþ. með afbrigðum, taldi ég, að ekki þyrfti að leita sérstakra afbrigða fyrir þessari leiðréttingu. En mér heyrðist einn hv. þm. gera athugasemd við þetta. (PZ: Það var ég). Og til að taka af allan vafa, vil ég kveðja hv. þm. til atkvgr. Ég vil því leita afbrigða um þetta nýja form á till., að bætt sé inn í einu orði, svo að tili. hljóði þannig: Till. til þál. um efniskaup til rafmagnsveitu Reykjaness.