12.11.1943
Sameinað þing: 29. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 125 í D-deild Alþingistíðinda. (2684)

125. mál, rafmagnsveita Reykjaness

Forsrh. (Björn Þórðarson) :

Herra forseti. Hæstv. atvmrh. varð að víkja af fundi, en honum bar að svara fyrirspurn, sem hv. 9. landsk. beindi til ríkisstj. En af því að ríkisstj. allri er vel kunnugt þetta mál og vegna þess að hæstv. atvmrh. gerði ráð fyrir, að þessi fyrirspurn yrði borin fram, skal ég svara henni á þessa leið:

Frá sjónarmiði ríkisstj. gildir það einu, hvort till. á þskj. 244 frá hv. þm. G.-K. verður samþ. eða till. á þskj. 385 frá hv. minni hl. fjhn. Ríkisstj. mun fyrst og fremst og það tafarlaust kaupa það efni til Keflavíkurlínunnar, sem útflutningsleyfi fæst fyrir.