15.11.1943
Neðri deild: 46. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 468 í C-deild Alþingistíðinda. (2720)

144. mál, sala mjólkur og rjóma o.fl.

Sveinbjörn Högnason:

Það má nú segja, að það er margt furðulegt, sem kemur fram í sambandi við þessi mál, og þá ekki sízt frá þeim, sem hafa haldið uppi þrálátum árásum á mjólkursöluskipulagið, sem nú hefur staðið í 9 ár.

Eitt af því, sem hefur verið haldið fram, er það, að verðjöfnunarsvæðið hafi verið alltof stórt. Ég held, að það standi í grg. fyrir þál. um rannsóknarnefnd mjólkurmála frá hv. 2. flm. þessa frv., að nauðsynlegt sé að rannsaka, á hvern hátt gæði vörunnar verði bezt tryggð og við hver rök kvartanir um lélega og gallaða vöru hafi að styðjast. Hv. þm. A.-Húnv. mun hafa látið svipuð ummæli falla. Nú flytja svo þessir hv. þm. frv. um það að stækka verðjöfnunarsvæðið um nokkuð á fimmtu sýslu, og á það víst að vera einhver trygging fyrir auknum vörugæðum, því að í grg. segir, með leyfi hv. forseta: „auk þess sem þrálátar kvartanir hafa verið um litla vöruvöndun“.

Nú er það kunnugt, að hér á verðjöfnunarsvæðinu sunnan lands eru mjólkurbú starfandi, sem geta tekið á móti mjólk úr tiltölulega litlum fjarlægðum. Og maður skyldi ætla, að undirstaðan undir sæmilegri vöruvöndun væri sú, að a. m. k. væru til mjólkurbú á svæðunum, sem mjólkin kemur frá, útbúin nauðsynlegustu tækjum til þess að geta meðhöndlað hana. Þess vegna er það að furða, að flm. þessa frv. leggi til, að bætt verði við verðjöfnunarsvæði Reykjavíkur hér um bil 4½ sýslufélögum í mörg hundruð km fjarlægð frá Rvík, — sem eiga engin mjólkurbú til þess að meðhöndla vöruna. Manni skilst, að þessir mjólkurframleiðendur úr þessum 4½ sýslufélagi eigi að komast inn á mjólkurverðlagssvæði Rvíkur, mjólk þeirra eigi að nota sem neyzlumjólk og þeir eigi að flytja hana til mjólkurstöðvarinnar í Rvík, þegar hún verði fullgerð. Eins og kunnugt er, er hún ekki byggð til þess að fást við vinnsluvörur, heldur aðeins til þess að annast neyzlumjólk fyrir Reykjavíkurmarkaðinn. Hið eina hugsanlega er því, að þessi viðbót við mjólkurframleiðsluna, sem kemur frá héruðunum norðan lands eða úr þessum 4½ sýslufélögum, verði notuð sem neyzlumjólk, en aftur á móti eigi mjólkin úr héruðunum hér sunnanlands að fara til vinnslu.

Annað atriði finnst mér furðulegt, og það eru þau ummæli, sem flm. láta falla í grg., er frv. fylgir. Þeir segja, að mjög þrálátar deilur hafi staðið um mjólkurskipulagið hér sunnan lands, en engar norðanlands, þar hafi hins vegar allt verið í bezta lagi. Þeir láta skína í það, að þetta sé eingöngu þeim vondu mönnum að kenna, sem hafa hér með framkvæmd þessara mála að gera, og svo hafi farið í þessum efnum, að allt sé hér í þeim ólestri, að rannsaka þurfi þetta, sem hvert annað sakamál. Hvernig er þetta norðan lands? Fyrri flm. þessa frv. er úr héraði, sem hefur fullkomið mjólkurbú, sem getur unnið úr mjólk til vinnslu, og þetta er norðan lands. Það er ekki meira en 40–50 km langur vegur til þess að komast að þessu mjólkurbúi, sem vel getur tekið við mjólkinni. Á þessum slóðum á allt að vera í bezta lagi og engir vondir menn. Það er því undarlegt, að þessir hv. þm. geti ekki hugsað sér að fela mjólkina umsjá þessara góðu manna, heldur en að fara þessa þrjú til fjögurhundruð km leið til þess að koma mjólkinni til hinna vondu manna, þar sem allt er í ólestri — og þar sem mjólkurbú eru alls ekki til að taka á móti þessari mjólk. Það virðist ekki vera neitt lítið traust, sem þessir flm. bera til þeirra manna, sem hafa hér sunnan lands með meðferð mjólkur að gera, ef þeir kjósa heldur að flytja mjólk sína 300–400 km vegalengd til mjólkurstöðvar, sem hefur enga aðstöðu til þess að vinna mjólk undir slíkum kringumstæðum, heldur en að senda hana aðeins 40–50 km vegalengd til mjólkurbús, sem hefur góða aðstöðu til að taka við mjólk þeirra.

Álíta þessir menn, að það sé sama, hvernig mjólkin er flutt, eða er meiningin hjá flm. aðeins sú, að það sé nóg að róta upp nógu miklu ryki, svo að enginn skilji neitt í neinu.

Flm. þessa frv. láta skína í það, að það sé einkasala á mjólkurafurðum, en þetta gildir aðeins um rjóma, það er engin einkasala á smjöri. — Í grg. láta þeir skína í, að m. a. af þessari ástæðu sé smjörekla og það þurfi því að flytja smjör inn í landið frá öðrum heimsálfum. Þeir álíta því, að úr þessu megi bæta með því að taka þessar sýslur inn á verðjöfnunarsvæðið. Ég veit ekki betur en öllum sé frjálst að framleiða smjör á þessum svæðum, hvort sem þeir eru á þessu umnefnda verðjöfnunarsvæði eða ekki, þannig að þetta er því eintóm blekking.

1. flm. þessa frv. tók fram í framsöguræðu sinni, að hér væri tilfinnanlegur mjólkurskortur og þó einkum smjörskortur, en það er kunnugt, að mjólkurskortur er hér aðeins í nokkrar vikur á hausti hverju, og er hann ekki meiri en svo, að aðeins 7% vantar upp á til þess að fullnægja markaðinum að öðru leyti. Nú, þegar þessi mjólkurskortur er um garð genginn, eru um 25 þús. lítrar mjólkur seldir á dag, en voru 24 þús., þegar mjólkurskortur var sem mestur, þannig að fjölskylda, sem kaupir vanalega 10 lítra mjólkur, hefði getað keypt 9¼ lítra, meðan mjólkurskortur var. Svo heldur hann fram, að þetta fyrirkomulag, að hafa verðjöfnunarsvæðið ekki stærra, sé til þess að útiloka smáframleiðendur frá markaðnum, þó að vitað sé, að þeir hafa sömu aðstöðu til smjörframleiðslu og til að selja smjörið sem aðrir hér á þessum markaði.

Það er mjög margt í þessu sambandi, sem væri þess vert að ræða um. Verðjöfnunarsvæðið hér var síðar stækkað um einn hrepp í Snæfellsnessýslu og annan í Vestur-Skaptafellssýslu, og var það gert eftir ósk þeirra manna, er þar áttu hlut að máli og töldu sig vera færa um að hafa þessa sölu. Nú er mér kunnugt um, að menn á þessum svæðum hafa farið fram á, að breyt. verði á þessu gerð, og hafa þeir engan áhuga á að komast inn á þetta verðjöfnunarsvæði, því að bændur, sem hafa hugsað þetta mál, vita, að það er ekki hægt að hugsa um mjólkursölu fyrir þá í stórum stíl öðruvísi en til að reyna grundvöllinn. Nú er svo komið, að fram er komið frv. um, að bændur á þessu stóra svæði komist inn á verðjöfnunarsvæðið hér, svo að þeir geti farið að stunda mjólkursölu. En engum manni, sem þekkir til, dettur í hug, að bændur, sem ég veit, að eru vel skyni bornir, verði þessu glaðir, og veit ég, að bændur á Norðurlandi geta ekki hugsað til þess að flytja mjólk sína til mjólkurstöðvar í Reykjavík, sem hefur engan útbúnað til að taka á móti mjólk til vinnslu, heldur eingöngu sölumjólk. Þetta frv., sem nú er það síðasta í langri röð viðvíkjandi mjólkurskipulaginu, sýnir ljóslega, hversu þeir menn, sem mest halda uppi áróðri gegn mjólkurskipulaginu, hafa lítil rök að færa fyrir máli sínu. Það dettur engum í hug, sem þekkir til þessarar framleiðslu, að hægt sé að halda hér uppi mjólkursölu frá Norðurlandi án þess að hafa nokkra mjólkurstöð, sem geti tekið á móti mjólk til vinnslu, og ég held, að enginn hafi komizt jafnlangt í yfirborðshætti og flm. þessa frv., enda stangast hver röksemdin á við aðra í grg. þess. Ég mun nú ekki ræða þetta miklu meira, en það er aðeins eitt í frv., sem mér og öðrum fleiri ætti að vera þökk á, en það er að sjá það mikla traust, sem þessir tveir flm. sýna mjólkurmálunum hér sunnan lands. Nú treysta þeir engum öðrum til þess að leysa þetta mál nema þessum slæmu mönnum hér sunnanlands, þótt þeir hafi engin tæki til þess að framkvæma þetta, en gefa engan gaum að mjólkurbúi í 30–40 km fjarlægð, sem er fært um að taka þetta að sér, og er þetta því meiri traustsyfirlýsing til okkar Sunnlendinga en Norðlendinga. Annars gef ég lítið fyrir yfirlýsingar frá þessum mönnum, hvort sem þær lýsa trausti eða vantrausti, því að málflutningur þeirra er á þá leið, að annan daginn halda þeir uppi árás á mjólkurfyrirkomulagið, en hinn daginn gefa þeir út traustsyfirlýsingu á það, og verður nú Alþ. að taka plögg þessi til meðferðar, eftir því sem undirbúningur og aðstaða frv. verður.