15.11.1943
Neðri deild: 46. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 474 í C-deild Alþingistíðinda. (2725)
144. mál, sala mjólkur og rjóma o.fl.
Páll Zóphóníasson:
Herra forseti. Ég er allundrandi yfir því að sjá þetta frv. frá þessum mönnum. Mér hefur ætíð skilizt hingað til, að þeir vildu takmarka verðjöfnunarsvæðið og minnka frá því, sem nú er, en ekki stækka það. Ég undrast þó sérstaklega, að hv. þm. A.-Húnv. skuli vera 1. flm. þessa frv. Ég get skilið þm. Snæf. Hann hefur löngum viljað allt skipulag í þessum málum feigt. Hann veit, að þegar kvartað hefur verið um vonda mjólk, hefur því verið borið við, að hún væri of langt að komin. Það er því af fjandskap einum við þetta mál, að hann ber fram þetta frv., þar eð það er líklegt til ógagns, yrði það samþ. Ég hefði ekki trúað, að þm. A.-Húnv. gæti gengið hið sama til, en ég tek þó að efast um hug hans í þessu máli.
Svo að ég víki að aukningu virðjöfnunarsvæðanna, þá hefur verið um það deilt, hvort Borgarnessvæðið ætti að vera með, sökum erfiðra flutninga. Og ekki nóg með það, að stækka eigi verðjöfnunarsvæðið, heldur á að bæta við þrem svæðum, en á engu þeirra er mjólkurbú, og því vantar þau öll grundvöll fyrir því að geta komizt inn í mjólkurskipulagið, eins og nú er. Hvar eiga Húnvetningar að safna sinni mjólk saman, hvar Dalamenn og hvar Snæfellingar? Ekkert þessara þriggja samtakasvæða geta unnið vörur úr mjólk sinni. Það vantar því frumskilyrði þess, að hægt sé að framkvæma mjólkursöluna eins og lög gera ráð fyrir. Og það er enginn undirbúningur í þá átt. Það er vitað um hv. þm. Snæf., að honum gengur það eitt til, að með þessu móti sé hægara að ráðast á skipulag þessara mála og gagnrýna þau, ef eitthvað þykir vera hægt að finna að, og ég gruna hv. þm. A.-Húnv. um það sama, þótt ég eigi bágt með að trúa því á hann, — það verð ég að játa.
Með þessu er ekki verið að vinna að því, að hægara sé að koma mjólkinni á markaðinn, heldur er þetta gert, eins og ég sagði áðan, til þess að hægara sé að ráðast á skipulagið. Því stærra sem umdæmið er, því meiri líkur eru til þess, að eitthvað verði að, því fleiri höggstaðir og nokkur von um, að hægt verði að koma því svo fyrir, að mjólkurskipulagið verði lagt niður.