11.11.1943
Neðri deild: 44. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 157 í D-deild Alþingistíðinda. (2783)
106. mál, rannsókn á olíufélögin og um olíuverzlunina
Frsm. 2. minni hl. (Jörundur Brynjólfsson) :
Herra forseti. Ég tel mig ekki þurfa að bæta miklu við það, sem ég hef áður sagt. Ég vil láta fara fram ýtarlega rannsókn á þessum málum. Hv. 2. þm. S.-M. kom auga á það, þegar hann fór að bera saman brtt. mína og upphaflegu till., að það væri betur séð fyrir málinu með minni till. en hinni upphaflegu. Hann játaði, að með upphaflegu till. væri engin opinber rannsókn heimiluð, og hún lætur það óumtalað, hvort slík rannsókn skuli fara fram, hvernig sem málavextir eru, og leggur hún því í raun og veru allt á vald dómsmrh. og gerir ekki svo mikið sem ympra á því, að annað en opinber rannsókn skuli fara fram. Ég hefði kunnað betur við það af þingsins hálfu, að það væri rækilega tekið fram, hvernig það ætlaðist til, að þessi rannsókn gengi fyrir sig, og það er einmitt gert með minni till. Til þess að fyrirskipa opinbera réttarrannsókn er ástæða til þess að rannsaka málið betur en gert hefur verið, og það er einmitt það, sem ég fer fram á. Ég er með þessu ekkert að segja það fyrir fram, að það hefði þurft að taka þetta fram, en hjá þeim, sem gera mikið úr þessu máli, sé ég enga ástæðu til þess að vera að draga úr þessu. Ég vil hafa vaðið fyrir neðan mig. Það getur verið, að það hafi verið vel fyrir öllu séð í höndum hæstv. dómsmrh., en það er hlálegt, að þeir, sem vilja ganga lengst í þessu máli, skuli ekki mega til annars hugsa en fá upphaflegu till. samþ. óbreytta, þótt hún sé að efni til eins og þeir hafa nú lýst. Nú sagði hv. flm., að hann áliti, að réttarrannsókn ætti að fara fram. En hvers vegna vilja þeir þá endilega láta samþ. upphaflegu till., ef þar er ekki vikið einu orði að því, að réttarrannsókn skuli fara fram? Hvers vegna þá ekki heldur að samþ. mína till., þar sem þetta er beint tekið fram? Eða þykir þeim betra að ganga svona illa frá því, sem þeir hefðu getað gert vel? Ég gef ekki mikið fyrir slík vinnubrögð af minni hálfu.
Svo segir frsm. 1. minni hl., að rannsókn eftir minni till. sé veik og vafasöm. Ég veit satt að segja ekki, hvernig það höfuð er innréttað, sem kemst að þeirri niðurstöðu um efni till. þeirrar, er hér liggur fyrir. Hv. þm. N.-Ísf. er nú búinn að átta sig á efni þessa máls og segir sem rétt er, að hann geti sætt sig við till. mína, og verð ég að undirstrika það, sem er alveg rétt, að það er síður en svo, að hann telji, að með slíkri samþykkt sé dregið úr þeirri athugun, sem fara eigi fram á þessu máli, enda hygg ég, að hver maður, sem les till., komist að þeirri niðurstöðu. Ég er því farinn að komast á þá skoðun, að hv. 4. þm. Reykv. hafi ekki lesið till. mína, og þykir mér það miður. Ég vona þess vegna, að hann átti sig fullkomlega á því, að það sé síður en svo, að. verið sé að draga úr þeim tilgangi, sem fyrir honum vakti, og álít ég, að þetta sé öllum fullljóst, þó að ég verði að játa, að ég fer að verða í dálitlum vafa um hv. 6. landsk., því að hann segir eins og hv. 4. þm. Reykv., frsm. 1. minni hl., að eftir minni till. sé dreginn máttur úr rannsókninni. Ég er nú búinn að gera grein fyrir þessu og þarf ekki að endurtaka, því að hjá þessum mönnum er algerlega snúið við röksemdum, og er mér því nær að halda, að hv. 6. landsk. hafi ekki heldur lesið till mína. Hann segist ekki sætta sig við, að þessi rannsókn fari fram með þeim hætti, sem hún sé höfð af verðlagseftirlitinu. Ég hef ekkert um þetta að segja, því að það er á valdi hæstv. dómsmrh. En hefur hann annars nokkuð meiri tryggingu fyrir því, þó að hans till. verði samþ., að öðruvísi rannsókn en af hálfu verðlagseftirlitsins fari fram? Ég hef ekki heyrt neina yfirlýsingu í þessa átt frá hæstv. dómsmrh., svo að hv. þm. hefur því sagt þetta algerlega út í hött. Síðan bar hann fram þá fyrirspurn, hvað væri að óttast, þó að ýtarleg rannsókn færi fram hjá olíufélögunum, og ætla ég að víkja nokkrum orðum að þessu atriði, áður en ég kveð hv. þm. Það er von, að hann spyrji, en ég spyr hann nú, af því að hann tileinkaði mér, að ég væri að tala máli olíufélaganna: Hvað er að óttast, þó opinber rannsókn fari fram? Ég hef áður lýst því, hvers konar plagg það er, sem hv. þm. flytur um þetta mál, og það ber alls ekki með sér, að þannig rannsókn fari fram. Ég hef heyrt hér hvað eftir annað, að beðið er eftir rannsókn, og mér skilst, að milli okkar hv. 6. landsk. fari ekki milli mála, að athugun fari fram, en nú berst hann og hamast móti till. minni og vill gefa til kynna, að hún sé svo ófullkomin og dragi úr mætti rannsóknarinnar, eins og hann segir, en ég er hins vegar búinn að sanna, að þetta er alveg öfugt. Mér er því ómögulegt að skilja hugsunarhátt eða röksemdir þessa hv. þm., því að ég ætla, að með brtt. minni sé ekki um að villast, að miklu meira kapp er lagt á ýtarlega rannsókn en kemur fram í hans till.
Ég geri svo ráð fyrir, að ég þurfi ekki að fjölyrða frekar um þetta mál, og vona, að hv. þm. hafi gert sér ljóst, hvað hér sé á ferð. Enn fremur geri ég mér vonir um, að eftir að hv. 6. landsk. hefur lesið till. mína betur og með meiri ró, muni hann komast að raun um, að honum sé bezt að vera undir mínum verndarvæng.