11.11.1943
Neðri deild: 44. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 159 í D-deild Alþingistíðinda. (2785)
106. mál, rannsókn á olíufélögin og um olíuverzlunina
Frsm. 3. minni hl. (Garðar Þorsteinsson):
Herra forseti. Ég ætla ekki að lengja þessar umr. mjög mikið. Það, sem mér virðist hafa upplýstst af ræðu hv. síðasta þm., er það, að sumir hv. þm. hafa ekki lesið till. þá, er hér liggur fyrir, og upplýsti hann, að hv. 2. þm. S.-M. hefði víst ekki heldur lesið þessa till. Annað verra skildist mér þó koma í ljós af ræðu hans, en það er, að hann, hv. 2. þm. S.-M., virðist ekki hafa lesið þá till., er hann upphaflega skrifaði undir og veit því ekki, um hvað till. er. Hann sagði í ræðu sinni, að hann ætti alls ekki við sakamálsrannsókn. Þetta stendur hins vegar í texta till. hans, en hann heldur, að orðið opinber rannsókn þýði allt annað en sakamálsrannsókn. Hæstv. dómsmrh. hefur lýst yfir. því hér á Alþ., að opinbera rannsókn sé ekki hægt að skilja öðruvísi en sakamálsrannsókn, en síðan kemur hv. þm. og segist ekki meina þetta þannig. Þetta sýnir aðeins, að áfergjan hefur verið svo mikil hjá honum að fá að skrifa undir þessa till., að hann hefur ekki gert sér ljóst, hvað hann var að skrifa undir. Hv. 2. þm. S.-M. virðist ekki vita, um hvað verið er að deila, en hér er einungis verið að deila um það, hvort nokkuð hafi komið fram, sem gefi Alþ. ástæðu til þess að fyrirskipa sakamálsrannsókn. Annars vil ég benda á það, að hv. þm. hefur ekki með einu einasta orði hrakið neitt af því, sem ég sagði hér í dag um það, hvernig viðskipti viðkomandi aðila hafa verið og hvernig verðlagsgrundvöllur hafi verið fundinn af löggiltum endurskoðendum. Enda þótt hann segði í ræðu sinni, að olíufélögin hefðu lagt í hendur verðlagsnefndar og síðar viðskiptaráðs einhver plögg, þá er það alls ekki rétt, því að þær skýrslur, sem lagðar voru fram, voru allar bækur, skjöl og sundurliðaðir skattreikningar olíufélaganna af öllu landinu, sem löggiltir endurskoðendur höfðu yfirfarið. Ég veit ekki, hvort þessi hv. þm. lætur sér detta í hug, að þeir Björn Árnason og Ari Thorlacius, endurskoðendur, láti sér nægja að leggja einhverjar tölur á blaði fyrir verðlagsnefnd, sem olíufélögin fleygja í þá. Þetta er auðvitað fjarstæða, því að þeir fara nákvæmlega gegnum öll skjöl félaganna og hefur aldrei verið neitað um neinar upplýsingar af hálfu olíufélaganna. Það er því upplýst, að olíufélögin hafa ekki búið til þennan verðlagsgrundvöll. En samt kemur þessi hv. þm. ásamt þrem öðrum þm. og skrifar undir og flytur till. um það, að rannsaka skuli með sakamálsrannsókn skýrslur þær, er olíufélögin hafa lagt í hendur viðskiptaráðs. Það lítur því út fyrir, að hv. þm. viti ekki, hvaða skýrslur um er að ræða, — en það eru tvær verðlagsáætlanir frá 6. júlí og 1. ágúst með breytingum í samræmi við vísitöluna. Verðlagsstjóri hefur sjálfur lýst yfir á fundi í allshn., að ekkert lægi fyrir, er gæfi tilefni til slíkrar rannsóknar, og síðan hefur hæstv. atvmrh. lýst yfir því sama.
Hv. þm. lagði á það megináherzlu í ræðu sinni, að ég hefði gengið fram hjá einu atriði, sem sé, að olíufélögin hefðu ekki boðið lækkun. Þessu er auðvelt að svara, því að í fyrsta lagi var lækkun boðin, en ég vil leyfa mér að spyrja þennan hv. þm., hvort hann álíti það eitthvað refsivert, þó að olíufélögin hefðu ekki boðið lækkun. Álítur hann það skyldu eins kaupmanns að bjóða fram lækkun á vörum, ef verðlagseftirlitið hefur sett hámarksverð á vöruna? Mér er því spurn, hvort er þá sökin meiri hjá verðlagseftirlitinu eða olíufélögunum, þó að hægt hefði verið að hafa þetta hámarksverð lægra? Mér finnst, að verðlagseftirlitið hafi góða aðstöðu til þess að fylgjast með þessum málum, en hvað sem því líður, þá er aðalatriðið ekki það, hvort verðið kann að hafa verið of hátt, heldur hvort framinn hefur verið refsiverður verknaður. Það þýðir því ekki fyrir þennan hv. þm. að hlaupa nú frá till. sinni. Hann verður að standa við það, sem hann hefur skrifað undir, en getur ekki sagt, að hann hafi meint allt annað.
Svo sagði þessi hv. þm., að lækkunin hafi ekki verið skilyrðislaus, en maður getur litið á það tvennum augum, en það liggur þó í augum uppi, að það er að sjálfsögðu ekki hægt að selja olíu með sama verði, ef seld eru 20 þús. tonn eða 25 þúsund tonn, og félag eins og t. d. Nafta í Reykjavík, sem hefur engan dreifingarkostnað úti um land, hefur aðra aðstöðu en félög, sem selja olíu úti um land. Hitt, hvort þessi lækkun hefur verið of lítil eða mikil, er algert aukaatriði í þessu máli, að því er snertir efni till. Ég vil segja þessum hv. þm. það viðvíkjandi því, að ríkisverksmiðjurnar seldu olíu á kr. 0.30 kg, að ég veit ekki, hvort gert er þar ráð fyrir öllum aukakostnaði, sem er í sambandi við slíka sölu, eins og ef um einkafyrirtæki væri að ræða, og nauðsynlega yrði að reikna með. Það er því lítið karlmannlegt að miða við þetta lága verð, ef kostnaður er reiknaður lægri en hann raunverulega er, vegna þess að ríkið á í hlut. Ég held fyrir mitt leyti, að ef allir kostnaðarliðir kæmu til greina við sölu á olíu í ríkisverksmiðjunum, þá mundi hvert kg kosta kr. 0.41. Það er mjög auðvelt að auglýsa lágt verð með því að láta ríkið borga allan kostnað, sem eðlilega ætti að koma á söluverðið.
Þá vil ég og geta þess út af þeim orðum, sem hér hafa fallið í dag. þess efnis, að kostnaður af olíukaupum smáútgerðarinnar frá því í fyrra mundi nema 4% af öllum útgerðarkostnaði. Ég vil nú upplýsa það, að mér er kunnugt um einn bát, sem gerður var út og keypti á vertíðinni olíu fyrir 10 þús. kr., en rekstrarkostnaður bátsins var 300 þús. kr., svo að kostnaður af olíukaupum hefur því numið 3%. Annars er þetta aukaatriði núna, en ef til vill gefst tími til að ræða það, þegar frv. ríkisstj. kemur fram um þetta mál.
Hv. 2. þm. S.-M. talar ekkert um kjarna þessa máls og reyndi í dag að gera mig tortryggilegan með því að halda fram, að ég væri að verja hátt olíuverð. Þetta er alls ekki rétt, en það er hins vegar annað atriði, sem hér er deilt um, sem sé, hvort Alþ. eigi í fyrsta sinni í sögu sinni að samþ. að taka í sínar hendur opinbera sakamálsrannsókn þrátt fyrir yfirlýsingu verðlagsstjóra og ráðh. um að ekki sé vitað, að neitt saknæmt liggi fyrir. Eins og ég tók fram í dag, er það hins vegar ekkert einsdæmi, að Alþ. fyrirskipi rannsókn á einhverju máli, en að höfðuð sé opinber rannsókn á þennan hátt, er aftur á móti einsdæmi. Hitt kann þó að vera afsakanlegt, ef hv. 2. þm. S.-M. álítur í einfeldni sinni, að opinber rannsókn þýði allt annað en sakamálsrannsókn, þótt hann ætti skilyrðislaust að vita þetta. Ég er því þeirrar skoðunar, að sú leið, sem farin hefur verið, sé rétt, en hún er, að ríkisstj. hefur falið viðskiptaráðinu rannsókn þessa máls. Treystir hv. 2. þm. S.-M. og aðrir flm. till. ekki ríkisstj. í þessum efnum, eða álíta þeir, að þeir viti betur en hæstv. ráðh., sem hefur lýst yfir, að það sé ekkert tilefni til frekari rannsóknar? Viðskiptaráðið hefur samkv. l. um verðlag aðgang að öllum bókum og skjölum þessara aðila, en ef þessir aðilar neita að gefa upplýsingar, sem beðið er um, þá er það allt annað mál. En það liggur ekki fyrir í þessu tilfelli. Till. okkar hv. þm. Snæf. felur því í sér allt, sem á að gera á þessu stigi málsins, en það er að láta viðskiptaráðið ljúka þessari rannsókn, en að þeirri rannsókn lokinni er það að sjálfsögðu dómsmrh. að ákveða, hvort sakamálsrannsókn skuli fara fram eða ekki.