24.11.1943
Neðri deild: 53. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 485 í C-deild Alþingistíðinda. (2786)
159. mál, tekjuskattur og eignarskattur
Páll Zóphóníasson:
Herra forseti. — Ég vil fyrst benda á það, að ég tel brtt. á þskj. 505 ekki til bóta. Ég hygg, að svo erfitt sem það er að finna eðlilegar prósentur fyrir fyrningu, þá verði algerlega ókleift að finna réttar prósentur fyrir viðhaldi fasteigna. Ég held því, að hinar ýmsu skattan. hafi betri aðstöðu til að ákveða þetta á hverjum tíma heldur en ríkisstj. einu sinni fyrir allt.
Þá vil ég mæla með till. um afnám skattfríðinda hlutafélaga, sem reka ekki áhættusama framleiðslu, þar eð í þeim er ekkert réttlæti og ekkert vit.
Um persónufrádráttinn er það að segja, að ég er mótfallinn því, að hann sé hækkaður, ekki af því, að hann sé ekki of lágur, heldur af því, að ég tel, að það sé ekki gerlegt nema umreikningum verði einnig breytt. Verði persónufrádrátturinn hækkaður, verður einnig að hækka umreikninginn. Hins vegar hef ég haldið því fram, að umreikningurinn væri óréttlátur og ætti að hverfa.
Ég óska að fá upplýsingar frá lögfræðingum deildarinnar viðvíkjandi till. á þskj. 473. Ég er í vafa um, hvaða regla eigi að gilda um formenn niðurjöfnunarnefnda, eftir að búið er að samþ. þessa breyt. á l., en ekki að breyta útsvarsl. Útsvarsl. mæltu svo fyrir, að í Reykjavík skuli skattstj. vera formaður, en annars staðar formenn skattanefnda. En 1942 var þessu breytt þannig, að ákveðið var, að í Reykjavík skyldi formaður niðurjöfnunarn. vera kosinn af bæjarstjórn eins og n. öll. Annars staðar á landinu skyldi formaður skattan. vera formaður niðurjöfnunarn. En ef skattan. verða lagðar niður, hvort eiga þá að koma inn sem formenn niðurjöfnunarnefnda þeir, sem hefðu átt að vera formenn skattanefnda, ef þær hefðu verið til, eða á að hafa það eins og á þeim eina stað, sem hefur skattanefnd, að sveitar- eða bæjarstjórn kjósi alla n.? Ég lít svo á, að eðlilegt sé, að skattstjórar séu formenn niðurjöfnunarnefnda, og vil, að útsvarsl. sé breytt í samræmi við það. Ég veit, að ef till. á þskj. 473 verður samþ., þar sem fram er tekið, að þeir skuli ekki eiga sæti í niðurjöfnunarn., þá er tekinn af allur vafi um, hvorn skilninginn beri að leggja í þetta. Ég tel, að á hverjum stað sé nauðsynlegt að sem nánast samband sé milli þeirra manna, sem endanlega úrskurða skatt og þeirra, sem úrskurða útsvör. Þar, sem það samband er slitið, eins og er sums staðar á landinu, sýnir sig, að í augum manna er ákaflega mikill munur á því, hvað menn eru látnir bera mikinn skatt annars vegar og há útsvör hins vegar og ekkert samræmi í, hvernig þessi tvenns konar gjöld eru lögð á. Þetta bendir til, að aðrir hvorir, sem gjöldin ákváðu, hafi ekki verið málum nógu vel kunnugir og því ekki jafnað gjöldunum nógu réttlátlega niður, og þá er ástæða til að ætla, að það séu fremur þeir, sem jafna niður útsvörunum, en þeir, sem skattinn leggja á. Ég tel því heppilegt, að skattstjórar séu formenn niðurjöfnunarnefnda, og álít ég því, að brtt. á þskj. 473 sé til hins verra. Hins vegar er ég þeirrar skoðunar, að það sé til hins betra, að skattstjórar séu settir í stórum kaupstöðum, og því betra sem þeir eru stærri, en síður ástæða til þess í þeim minni, þar sem menn bera kennsl á að heita má hvern mann, sem þar er. Ég er því þess vegna meðmæltur, að skattstjórar séu settir í kaupstöðum, og tel því, að það ætti að vera búið að því. Það er heimild til þess í núgildandi l., en ríkisstj. hefur fram að þessu ekki notað hana.