24.11.1943
Neðri deild: 53. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 487 í C-deild Alþingistíðinda. (2789)

159. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Frsm. (Áki Jakobsson) :

Út af því, sem hæstv. ráðh. sagði, vil ég taka fram, að það er vitanlega rétt, að stj. hafi heimild til að skipa skattstjóra, Og það breytist ekkert, þó að þetta frv. verði samþ. Ég get vel fallizt á, að rétt sé, að skattstjóri sé í Vestmannaeyjum, og í mþn. kom það beinlínis til orða, að n. gerði till. um það, þó að ekki yrði horfið að því ráði, vegna þess að svo miklu minni skattatekjur eru þar en á hinum stöðunum.

Í sambandi við brtt. hv. 1. þm. Rang. og hv. 2. þm. N.-M. varðandi nm. vil ég taka fram, að fjhn. tók málið til meðferðar og varð ekki samkomulag um neitt atriði nema það, sem fyrir liggur í brtt. á þskj. 478. Þar er gert ráð fyrir 25 kr. og verðlagsuppbót fyrir hvern fullan vinnudag og auk þess, að yfirskattan. fái greiddan ferðakostnað samkv. reikningi. N. sá. ekki ástæðu til að gera greinarmun á kaupi skattanefndarmanna og yfirskattanefndarmanna. Yfirskattanefndarmenn hafa lengi haft tvöfalt hærra kaup, án þess að þeir hefðu meira starf, og býst ég jafnvel við, að skattanefndarmenn hafi sízt minna starf. Töldum við því rétt að samræma þetta, en það þýðir, að a- og b-liður 30. gr. eru færðir saman í einn lið, sem verður a-liður, þar sem þetta er tekið fram. Það hefur fallið niður við þessa till. að koma henni þannig fyrir, að hún geti, þegar þetta frv. hefur hlotið staðfestingu, fallið inn í upphaflegu l. Hef ég gert ráðstafanir til að láta prenta þskj. upp á ný, þar sem þetta yrði leiðrétt.

Þá flytur n. brtt. við síðustu gr. frv. á þskj. 458 um að l. öðlist þegar gildi. Hafði láðst að setja það í frv., og var því nauðsynlegt að lagfæra það.