19.11.1943
Sameinað þing: 33. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 168 í D-deild Alþingistíðinda. (2829)
95. mál, fjörefnarannsóknir
Frsm. (Pétur Ottesen):
Fjvn. er sammála flm. þessarar till., hv. þm. Hafnf., um, að rannsókn á þessum efnum sé mjög þýðingarmikil og muni hafa mikla fjárhagslega þýðingu fyrir landsmenn. N. mælir með því, að bætt verði skilyrði Atvinnudeildar háskólans til fjörefnarannsókna með því að bera fram við 3. umr. fjárlaganna till. um 50 þús. kr. fjárveitingu í þessu skyni.
N. leggur mikla áherzlu á, að öll aðstoð verði veitt til þess að vinna áfram að þessum þýðingarmiklu rannsóknum og gata málsins verði greidd á allan hátt.