11.12.1943
Efri deild: 64. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 506 í C-deild Alþingistíðinda. (2840)
159. mál, tekjuskattur og eignarskattur
Brynjólfur Bjarnason:
Ég sé litla ástæðu til að fresta umr. um þetta mál. Það hefur legið lengi fyrir þinginu, kom fram áður en því var frestað í vor, og hefur auk þess verið til athugunar í mþn., og liggur álit hennar fyrir þinginu. Frv. þetta, er var samþ. frá Nd. í gær, er öllum þm. jafn kunnugt, þótt það hafi ekki komið fyrir þessa hv. d. fyrr en nú, og hefur hæstv. ráðh. haft jafnlangan tíma til að átta sig á því og þingið. Því meiri ástæða hefði verið til að kynna sér þetta frv., sem búast mátti við, að það næði samþykki. Það hefur líklega verið ólíkt betri tími til að átta sig á þessu frv. en sumum stjfrv., eins og t. d. því, er var til umr. í Nd. í fyrradag, auk þess sem ekki voru í því jafnhreinar línur og þessu frv., svo að þm. eiga bágt með að átta sig á, hvernig það muni verka. Ég álít því alveg ófært að fresta þessu máli, þar sem það er með allra fyrstu málunum, sem fram hafa komið á þessu þingi.