11.12.1943
Efri deild: 64. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 506 í C-deild Alþingistíðinda. (2841)
159. mál, tekjuskattur og eignarskattur
Fjmrh. (Björn Ólafsson):
Ég vil benda hv. 5. þm. Reykv. á, að þótt þetta mál hafi legið fyrir þinginu síðan í byrjun þessa þings, þá hlýtur hann að sjá, að ekki var séð fyrir, í hvaða formi það yrði samþ. Það kom fyrst í ljós í gærkvöldi. Það voru komnar fram flóknar brtt. við það, er gripu hver inn í aðra margar hverjar, svo að illt var að átta sig á. Ég sé ekki, að til mikils sé mælzt, þótt ein nótt sé látin líða enn, þar sem frv. var afgr. í gærkvöldi, svo að ég geti fengið að átta mig vel á þeirri endanlegu afgreiðslu, er það fékk.