29.11.1943
Neðri deild: 55. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 511 í C-deild Alþingistíðinda. (2889)
168. mál, samkeppni um hugmyndir að mannvirkjum
Flm. (Sigfús Sigurhjartarson):
Herra forseti. Ég skal fyrir mitt leyti verða við þeim tilmælum hæstv. forseta að eyða litlum tíma í framsögu fyrir þessu frv., sem ég flyt á þskj. 453 ásamt hv. 11. landsk. þm. (STh). Ég get að mestu látið nægja að vísa til þeirrar grg., sem frv. fylgir. En það vildi ég þó segja, að ef við lítum yfir land okkar, komumst við fljótlega að raun um það, að við eigum ákaflega fátt gamalla og varanlegra mannvirkja. Varanleg mannvirki hafa að heita má ekki verið reist á landi hér fyrr en á allra síðustu árum. Og það verður ekki komizt hjá að viðurkenna þá staðreynd, að svo virðist, að nokkuð skorti á um, að vel hafi tekizt til um útlit og fyrirkomulag þeirra mannvirkja. Ég hygg, að til þessa liggi eðlilegar orsakir, sem ekki tjái að sakast um, því að sjálfsagt höfum við átt fremur fátt fræðimanna á þessu sviði, verkfræðinga og byggingarmeistara. En á því hefur orðið gerbreyting síðustu árin, þannig að þetta eru nú orðnar fjölmennar og vel menntaðar stéttir. Og ég hygg það ekki ofsagt, að þjóðinni sé þess nokkur nauðsyn, að kraftar þessara manna nýtist sem allra bezt. Og til þess að það geti orðið, er það nauðsynlegt, að þeir fái störf til þess að reyna krafta sína og þá auðvitað fyrst og fremst í sambandi við öll þau meiri háttar opinberu mannvirki, sem reist kunna að verða. Ég hygg, að þetta sé nauðsynlegt, bæði til þess, að við getum vænzt þess að eignast vel þroskaða kunnáttumenn á þessu sviði, og einnig til þess, að þjóðin geti notið þeirra krafta, sem fyrir hendi eru. Þess vegna er lagt til sem meginatriði þessa frv., að um allar meiri háttar opinberar byggingar og mannvirki skuli fram fara hugmyndasamkeppni, þ. e. a. s. samkeppni um það, hversu mannvirkin skuli líta út í höfuðdráttum og hvernig þeim skuli fyrir komið í höfuðdráttum.
Ég skal svo láta máli mínu lokið, en óska þess, að málinu verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr., og mér skilst, að það helzt mundi eiga heima í félmn. En mér er satt að segja ekki fyllilega ljóst enn, hvar mætast starfsvið allshn. og félmn. Og mér virðist, að ekki geti komið til greina nema önnur þessara n. til þess að fjalla um málið. (JakM: Ég legg til, að frv. fari til menntmn.) Ég get á það fallizt, ef hv. þm. vilja það heldur.