23.11.1943
Sameinað þing: 34. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 186 í D-deild Alþingistíðinda. (2961)
8. mál, kaup á hlutabréfum Útvegsbanka Íslands h/f
Jóhann Jósefsson:
Herra forseti. Ég er fyrir hönd okkar flm. þessa máls þakklátur þeim, er skipa fyrri minni hl. fjvn., fyrir þær till., sem þeir hafa gert í málinu, eins og ég hef áður lýst, og þeim hinum öðrum hv. þm., er hafa stutt þá hugmynd, að ríkið leysti nú til sín þessi bréf. Og í raun og veru hefði verið alveg óþarfi fyrir mig að tala meira um þetta mál eftir þá greinagóðu ræðu, sem hv. þm. V.-Ísf. (ÁÁ) hélt hér, þegar málið var hér síðast til umr. En síðan hafa tveir andmælendur málsins tekið sig til — og að vísu einn meðmælandi þess, sem hefur gert nokkrar athugasemdir við mína skrifl. brtt. Athugasemd hans var nú aðallega um það, að fullnusta væri ekki ger með þessari till. En ég geri ráð fyrir, eftir því sem orð hans féllu, það var hv. þm. Barð., að hann muni ekki leggjast á móti því, að þetta spor verði stigið í málinu, þar sem það óneitanlega er allmikil rétting á hlut þeirra, sem hér eiga eftir að telja.
En að því er snertir tímatakmarkið þá heyrði ég það á ýmsum, sem annars voru málinu hlynntir, að þeir töldu rétt, eins og fram kom í ræðu hv. þm. Ísaf., sem er frsm. fyrri minni hl. fjvn., að eitthvert tímatakmark væri sett, sem þessum bréfum þyrfti að vera skilað fyrir til skiptingar fyrir ríkisskuldabréf. Og með því að þáltill. er einungis miðuð við innlenda menn, þá gerði ég ráð fyrir, að árs frestur væri nægilegur. Ef þáltill. verður samþ., verður þetta auglýst rækilega af ríkisstjórninni. Og ég skil ekki annað en að innlendum aðilum nægi árs frestur til þess að athuga, hvort þeir vilji skipta á þessum bréfum eða ekki. Í því sambandi vil ég leggja áherzlu á, að hér er ekki um þvingun að ræða gagnvart hluthöfum, heldur verður, ef till. verður samþ., það boðið fram, að þessi skipti á hlutabréfum fyrir ríkisskuldabréf verði gerð.
Hv. þm. Dal. (ÞÞ) talaði hér nokkuð um þáltill. og var, að mér skildist, mjög velviljaður í garð þeirra hluthafa, sem um er að ræða, og var slíks von af svo mætum manni. Hann er orðinn það kunnugur þessum málum. Það nægir nú minna til þess að hræra hjartastrengi hv. þm. Dal. en þetta mál, þar sem augljóslega kemur fram, að fjölmargir hv. þm. telja nú orðið hið mesta nauðsynjamál að veita því fólki nokkurt liðsinni, sem hér á eftir að telja. Mér virðist hv. þm. Dal., sem skrifaði undir nál., þar sem lagt er til að fella þáltill. og gera ekkert í málinu, vera að komast á þá skoðun, að hér sé allt of skammt gengið, það sé ekki nærri nógu vel gert fyrir það fólk, sem hér á hlut að máli. Ég hefði fagnað því, ef svo mikil heilindi hefðu verið í málfærslu hans, að frv. hefði legið fyrir frá þeim hv. þm., þar sem væri gerð gagnger till. um hærri útborgun og rausnarlegri afgreiðslu málsins. En þeim hv. þm. hefur láðst að bera slíkt frv. fram. Tilfinningar hans hafa hins vegar hlaupið með hann — ja, alls ekki í gönur, heldur á það rausnarskeið, sem hann er nú staddur á í þessu máli. Mér þykir samt fyrir því að verða fyrir mítt leyti að hafna þessum bollaleggingum sem óþörfum á þessu stígi málsins. Ég sætti mig við þær till., sem fyrir liggja frá hv. fyrri minni hl. fjvn., og tel þar gerða svo mikla réttingu þessara mála, að ég tek henni fyrir mitt leyti sem nokkurs konar talsmaður í þessu máli, tek henni vegna þess, að hér hefur oft horft svo á þingi, einmitt þegar rætt hefur verið um þetta mál, að ekki hefur virzt von nokkurra réttinga þessara mála.
Hv. þm. V.-Húnv. taldi, eins og vænta mátti, samkvæmt núverandi og áður kunnri afstöðu hans til þessa máls, ekki þörf á að gera neitt fyrir þetta fólk, og er hann á móti því, að bréf þessi verði keypt. Og það er alveg skiljanleg afstaða út af fyrir sig. Hins vegar virðist hv. þm. V.-Húnv. hafa lent í þoku eða a. m. k. dalalæðu, þegar hann heldur því fram, að hér sé verið að berjast fyrir hagsmunum útlendinga. Það er algerlega misskilningur hjá honum, og er furðulegt, að jafn skýr maður og sá hv. þm. er, skuli ekki hafa athugað, að það stendur bæði í upprunalegu till. og líka þeirri till., sem fyrri minni hl. fjvn. ber hér fram, að hér er verið að ræða um hlutabréf, sem keypt voru með hlutum af sparisjóðsinnstæðum og innlánsskírteinainneignum í Íslandsbanka. Þessar sparifjáreignir og innlánsskírteinainnstæður voru lagðar fram af íslenzku fólki. Og það er um þær, sem verið er að ræða. Og það þarf ekki nokkurra skulda að stofna til í útlöndum til þess að innleysa þessi hlutabréf, sem keypt hafa verið fyrir þessar innstæður. Og það er yfir höfuð alls ekki verið að stofna til neinna skulda fyrir hönd ríkisins, eins og hv. þm. Ísaf. glögglega færði rök fyrir í fyrradag, heldur er hér verið blátt áfram að skipta á eignum, þannig að ríkið á að eignast hlutabréf í þeirri stofnun, sem allir vita, að stendur föstum fótum, sem betur fer. Og engir leggja nú meiri áherzlu á það, hve þessi stofnun stendur föstum fótum, heldur en þeir, sem vilja nú, eins og hv. þm. Dal., fella þáltill. Og það er ómögulegt að koma því inn í höfuðið á mér, að eign í slíku fyrirtæki, sem greidd er með ríkisskuldabréfum, sé þannig til komin, að í raun og veru sé með þessu verið að stofna til skulda, ef þessi þáltill. verður samþ. og hlutabréfin keypt eftir þessari heimild. Og sérstaklega er það ranglega til fært, að þessi þáltill. fjalli um erlenda menn. Þeir áttu engar sparisjóðsinnstæður. Hitt er vitað, að Íslandsbanki var skuldugur í útlöndum fyrir yfirdrátt hjá Hambro's Bank og fleiri bönkum. Og þessir bankar féllust á það að taka þátt í þessum nýja banka með því móti, að skuldir bankans stæðu. En þar er ekki um neinar sparifjárinnstæður að ræða. Þessi röksemdafærsla hv. þm. V.-Húnv. er því algerlega á sandi byggð, að því er snertir þetta atriði.
Ég vona, að það spor verði nú stigið, að þetta fólk, sem gerði sparifjárinnstæður sínar í Íslandsbanka að hlutafé í Útvegsbankanum, sem er flest gamalt fólk og er hér í landinu, geti nú fengið þá úrbót frá því, sem er, að það eigi þessi hlutabréf, sem bera því engan arð, því að það var samþ. á síðasta aðalfundi bankans, — það er ekki langt síðan hann var haldinn, — og þá var vitað um þann góða hag bankans, að arður skyldi ekki greiddur af þessum bréfum. Og það var fyrir atkvæði ríkisins, sem neitað var að greiða arðinn. Hins vegar voru gefnar talsverðar fjárhæðir í eina eða tvær áttir. En það þótti ekki þess vert að greiða arð af þessum bréfum. En ef þáltill. verður samþ., þá opnast þessu fólki, sem á hlutabréfin, leið til þess að fá skuldabréf ríkisins, sem gefa 4% ársvexti og eru til 10 ára. Og þau hlutabréf er hægt að selja, hvenær sem er nú, fyrir peninga. Ég efast þess vegna ekkert um, að hlutabréfaeigendur munu una miklu betur þeirri lausn málsins, sem fyrri minni hl. fjvn. leggur til, heldur en þeirri hjartnæmu ræðu hv. þm. Dal., sem svo loks leggur til, að allt sé fellt, sem fram hefur komið hér í þessu máli.