26.11.1943
Sameinað þing: 37. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 192 í D-deild Alþingistíðinda. (3029)
13. mál, virkjun Fljótaár
Fjmrh. (Björn Ólafsson) :
Það er rétt, sem hv. flm. gat um, að ríkisstj. sá sér ekki fært að veita ábyrgð fyrir umræddum 6 millj. kr. til þessarar virkjunar, en það hefur þegar verið gefin ábyrgð á þeirri fjárhæð, sem hún taldi sig geta gefið, 3 millj. kr.
Ef þessi till. verður samþ., mun stj. að sjálfsögðu framfylgja þessari ályktun, þar sem hún fer fram á að fela stj. að inna þessa skyldu af hendi. En ég vildi gjarnan í þessu sambandi spyrja hv. flm., hvort það sé nokkuð nýtt í þessu máli, hvort nokkrar nýjar áætlanir muni nú liggja fyrir, sem geti gefið það í skyn, að þessi ábyrgð, sem hér um ræðir, muni ekki verða fullnægjandi fyrir Siglufjarðarkaupstað.