08.10.1943
Efri deild: 31. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 594 í C-deild Alþingistíðinda. (3035)

42. mál, dýrtíðarráðstafanir

Haraldur Guðmundsson:

Herra forseti. Þegar Alþfl. svaraði bréfi ríkisstj., þar sem leitað var samþykkis flokkanna til að verja auknum hagnaði af tóbakseinkasölunni til dýrtíðarráðstafana, var svarið á þá leið, að hann gæti ekki fallizt á þær dýrtíðarráðstafanir, sem ríkisstj. hafði í huga, og teldi eðlilegt að leita vilja meiri hl. Alþ. um málið. Það liggur í hlutarins eðli, að Alþfl. samþ. efni þessa frv. og mun greiða því atkv. samkv. nál. Ég skal geta þess til viðbótar, að í bréfi ríkisstj. var jafnframt gerð grein fyrir, hverjar ráðstafanir hún hefði í huga, og virtist samkv. því yfirliti mega gera ráð fyrir, að þær mundu kosta um 10 millj. kr., svo að arður af tóbakseinkasölunni út af fyrir sig mundi ekki nema nema 1/5 hluta af því, sem greiða þurfti. Hins vegar mátti ætla af bréfi ríkisstj., að hún mundi hafa talið, að með breyt. á tekjum tóbakseinkasölunnar væri einnig goldið samþykki við ráðstafanir hennar til dýrtíðarlækkunar. Alþfl. gat ekki á þetta fallizt og taldi það einu réttu leiðina að fá fram vilja meiri hl. Alþ. Tveir flokkar svöruðu á þá lund, að þeir gætu fallizt á þetta fyrst um sinn, en Sjálfstfl. lét það fylgja sínu svari, að hann ætlaðist til, að ríkisstj. leitaði samþykki þ. Við fyrirspurn um þetta mál í Nd. frá form. Sjálfstfl. gaf fjmrh. þau svör, að þar sem hann teldi sig hafa samþykki tveggja stærstu flokkanna til þess fyrst um sinn að greiða verðuppbætur, sæi ríkisstj. ekki ástæðu til að leita frekari heimildar og mundi halda áfram þeim greiðslum, þar til er þ. tæki í taumana.

Ég verð að segja, að eftir þetta svar tel ég eðlilegt, að þetta frv. verði samþ., og að það sé skýrt tekið fram, að sú heimild, sem ríkisstj. telur vera í dýrtíðarl., verði bundin samþykki Alþ. Það er tvímælalaust, að fjárveitingavaldið er hjá Alþ., en það væri ekki nema að nafninu til, ef ríkisstj. gæti haldið áfram til stríðsloka að greiða án þess að leita samþykkis Alþ. Ég tel því rétt, að frv. verði samþ., og geri ráð fyrir því sem sjálfsögðu, að síðan beri ríkisstj. fram till. í einhverju formi um fjárveitingu í þessu skyni og komi þá glögglega fram, hverjir fallast á þær uppbótargreiðslur, sem ríkisstj. hefur upp tekið.

Ég skal ekki fara að ræða um dýrtíðarráðstafanirnar í heild, en vil aðeins benda á, að eftir áætlun ríkisstj. var gert ráð fyrir, að sú vísitöluhækkun, sem mundi verða, ef ekki væru uppbótargreiðslur á kjöt og mjólk, mundi nema 15%. En um þetta leyti skeður það öllum að óvörum, að vísitalan hoppar upp um 15 stig, þó að ríkissjóður þurfi að verja stórfé, vegna kartöfluhækkunarinnar. Þetta voru slysaleg mistök hjá ríkisstj., því að ég álít rangt, að ríkisstj. hafi skort heimild til að halda í verð á kartöflum.

Ég hygg, að ekki þurfi að greina fleira til að skýra, hvað veldur afstöðu Alþfl. til frv. En það liggur líka fyrir brtt. frá hv. 3. þm. Reykv., á þskj. 136, þar sem gert er ráð fyrir, að vísitölun. verði falið að endurskoða grundvöll vísitölu þeirrar, sem hún sjálf hefur út fundið, og ákveða verð samkv. því fyrir 15. ág. ár hvert. Ég get alls ekki fallizt á þessa brtt. Mér finnst það einkennileg aðferð að fela n. sjálfri að endurskoða grundvöll, sem hún hefur sjálf orðið sammála um, og ég vil benda á í því sambandi, að það mundi þykja næsta undarleg aðferð að fela kauplagsn. að endurskoða grundvöllinn undir kauplagsvísitölunni. Sérstakir menn voru til þess nefndir. Og það er ekki nóg með þetta, heldur á n. sjálf að meta, hvort og hvenær ástæða er til að láta endurskoðun fara fram. Svo upplýsir hv. flm., að það sé ekki ætlunin, að þær breyt., sem 5 af 6 nm. telji eðlilegar, gildi, ef einn sé á móti. Þá situr allt við samkomulagið. Nú er því margyfirlýst, bæði af hv. 1. þm. Eyf. og hv. þm. Str., að þeir séu sannfærðir um, að niðurstaða 6 manna n. sé rétt og sanngjörn. Það er alveg fullvíst, að jafnvel þó að 5 nm. kæmust að þeirri niðurstöðu, að grundvöllurinn væri rangur, þá mundi framsóknarmaðurinn í n., sem er ákveðinn flokksmaður, — það þýðir ekki að draga neina fjöður yfir það, — segja nei, og allt væri óbreytt. Ég skil því ekki, hvað hv. flm. hyggst að vinna með samþ. till. Til viðbótar hefur ríkisstj. skipað nýja samkomulagsn. til þess hvorki meira né minna en að ná samkomulagi um niðurfærslu dýrtíðarinnar. Hvort sem ástæða er til að vænta árangurs eða ekki, má gefa sér tóm til að bíða eftir till. hennar. Enn fremur hefur hv. d. fyrir fáum dögum samþ. ályktun og skorað á ríkisstj. að leggja fyrir næsta Alþ. ýtarlega grg. um grundvöll þann, er vísitölun. fann og byggði niðurstöður sínar á. En áður en þessi grg. liggur fyrir, sem þ. er búið að krefjast, ætlast flm. brtt. á þskj. 136 til þess, að d. samþ. að fela vísitölun. sjálfri án ábendingar um það, hvað athuga ber, að endurskoða grundvöllinn eftir því, sem n. sjálf telur ástæðu til. Ég vil ekki fortaka, að eftir að upplýsingar eru fengnar, sem ég vona, að hæstv. ríkisstj. sjái um, að komi sem fyrst, get ég vel hugsað, að ég kunni að óska breyt. og að óskir mínar hnígi þá í sömu átt og hv. flm. En eins og nú er, er ekki ástæða til að samþ. till.