11.10.1943
Efri deild: 32. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 607 í C-deild Alþingistíðinda. (3046)
42. mál, dýrtíðarráðstafanir
Hermann Jónasson:
Það er aðeins til að leiðrétta það, sem hv. 1. þm. Reykv. virðist hafa misskilið í ræðu minni. Ég benti á það í ræðu minni, að það væri ekki gerlegt að setja á langar umr. um þetta mál, meðan ekkert lægi fyrir um það, hvort þetta væri efnisleg breyt. á dýrtíðarl. eða hvort hér væri aðeins um form að ræða. Það liggur ekkert fyrir á þessu stigi um það, hvort svo er eða ekki, en ég er alls ekki neitt að deila á Sjálfstfl. fyrir það. Þetta atriði hefur þessi hv. þm. staðfest. Enn fremur sagði þessi hv. þm., að það hefði verið almenn skoðun hér á hv. Alþ., að rannsókn sex manna n. og samningsumleitanir mundu leiða til þess að lækka dýrtíðina. En mér er kunnugt um það, að margir af flokksmönnum mínum samþ. skipun sex manna n. vegna þess, að þeir voru sannfærðir um það, að verðlag á landbúnaðarafurðum hefði verið það réttlátt, að rannsókn mundi leiða í ljós, að bændum væri hagur að þeirri rannsókn, enda hefur það komið í ljós. Þegar ég samþ. þessa rannsókn, þá gerði ég það í þeirri fullu vissu, að það væri þeim hagur, sem hefðu rétt mál að sækja. Þá er þriðja atriðið, sem ég vildi leiðrétta, að ég hafi látið þau orð falla viðvíkjandi 4. gr., að þessi heimild mundi ekki vera til staðar. Ég lét engin ummæli falla um það, hvort þessi heimild mundi vera til staðar eða ekki. Ég orðaði þetta þannig, að það væri verið að takmarka þessa heimild eða fella hana niður, ef til staðar væri. Ég gerði grein fyrir því, hvers vegna það væri vafasamt, að heimildin væri til staðar, þó að orðalagið gæfi tilefni til þess að álíta það. Þessi atriði eru það, sem ég vildi leiðrétta, sérstaklega það, að það hafi verið skoðun þm., að rannsókn á dýrtíðinni mundi lækka verðlagið. Og ég gerði alltaf ráð fyrir því, að rannsóknin mundi verða bændum í hag.