03.11.1943
Neðri deild: 41. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 610 í C-deild Alþingistíðinda. (3065)

42. mál, dýrtíðarráðstafanir

Frsm. minni hl. (Skúli Guðmundsson):

Eins og fram kemur í nál., sem fyrir liggur á þskj. 285, hef ég ekki getað orðið sammála meðnm. mínum í fjhn. um frv.

Ríkisstj. hefur nú samkv. heimild í dýrtíðarl. frá síðasta þ. lagt fram nokkurt fé í því skyni að koma í veg fyrir vöxt dýrtíðarinnar, sem hefði orðið mikill á þessu tímabili, ef þessar ráðstafanir hefðu ekki verið gerðar. Hér er lagt til að breyta heimild stj. í þessu efni, þannig að hún geti ekki, ef frv. þetta nær samþ., lagt fram fé til þessara dýrtíðarráðstafana, nema hún hafi fengið til þess sérstaka heimild Alþ. Afleiðing þess skilst mér hljóti að verða sú, ef ekki eru gerðar nýjar ráðstafanir, að þessi fjárgreiðsla falli niður og vísitalan hækki til stórra muna. Ég tel, að þetta muni hafa slíkar afleiðingar, að ekki sé hægt að fylgja því.

Það liggur í augum uppi, að það er fyrst og fremst á valdi Alþ., hve miklu fé er varið til dýrtíðarráðstafana. Það hlýtur að fara eftir fjárl., hvað mikið fé stj. hefur hverju sinni til að ráðstafa. Þetta hlýtur því að koma til kasta þingsins, þótt ekki sé gert ráð fyrir því í dýrtíðarl.

Þá má minna á, að skipuð hefur verið samningan. um niðurfærslu dýrtíðarinnar eftir öðrum og heppilegri leiðum. Þessi n. er að störfum. Enn liggur ekkert fyrir um árangur af starfi hennar. Þess vegna get ég ekki fallizt á þá breyt. á dýrtíðarl., sem lagt er til, að gerð verði í þessu frv. Leyfi ég mér að mælast til þess, að d. afgreiði málið með rökstuddri dagskrá, sbr. þskj. 285.