03.11.1943
Neðri deild: 41. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 612 í C-deild Alþingistíðinda. (3069)

42. mál, dýrtíðarráðstafanir

Sveinbjörn Högnason:

Þessi l. voru samþ. á síðasta þ. sem grundvöllur, er gilda skyldi, svo framarlega sem samkomulag næðist í 6 manna n., um hlutfall verðlags og kaupgjalds. Vitanlega hafa nm. miðað við, að þetta væri samningsgrundvöllur, sem skyldi standa, ef þeir kæmust að samkomulagi. Og þegar hv. 3. þm. Reykv. segir, að það sé tvímælalaus réttur Alþ. að breyta þessum l., þá er það bara réttur til að rifta því, sem gert var, þegar þessi l. voru samþ. á þ. af öllum nema ég held tveimur þm. Og ef nú er farið að breyta þessu atriði eða öðru

því, sem í þeim l. stendur, þá liggur það í augum uppi, að Alþ. er að hlaupa frá þeim loforðum, sem það gaf, að vinna að því, að samkomulag næðist um þetta mikilvæga atriði. Og ef nú er samþ. breyt., sem raskar þessu samkomulagi, gegn vilja margra þeirra þm., þá hljóta þeir sem störfuðu í 6 manna n. á grundvelli þessara l., að telja sig svikna af löggjöfum þjóðarinnar. Þess vegna hlýtur maður að telja, að hér sé verið að grafa undan og leysa upp það samkomulag, sem 6 manna n. komst að, því að ef búið er að leysa upp grundvöllinn að samkomulaginu, þá er það ljóst mál, að samkomulagsgrundvöllurinn er ekki lengur fyrir hendi og þá , hlýtur yfirbyggingin að hrynja.

Eg tel það ábyrgðarhluta að skapa á ný deilu um þetta mál með því að kippa burt samkomulagsundirstöðunum, sem meiri hl. Alþ. lagði í þessu máli, sem um mörg ár er búið að vera deiluatriði. Ég tel líka varhugavert af Alþ. að breyta skilyrði, sem það var búið að segja, að gilda skyldi frá þess hendi. Ég tel það samningsrof.

Það er augljóst, að hér er farið fram á það, að það megi breyta ákveðnum atriðum, sem eru í þessum l., þrátt fyrir það að fyrirheit hafi verið gefin um það, að þetta verðlag skuli standa til stríðsloka eða á meðan ófriðarástand helzt í landinu. Með öðrum orðum, þeir þm., sem ætla að breyta verulegum atriðum í þessum l. nú, hafa riftað samkomulaginu, sem var gert á síðasta þ. og talið hefur verið nauðsynlegt, að staðið gæti. Það er sannarlega engin hvatning fyrir þá menn, sem í slíkri n. starfa sem þessari vísitölun., að sjá það, að þegar þeir hafa náð samkomulagi, gerir Alþ. breyt. á því, sem það hefur gert að forsendum fyrir þeim samkomulagsumleitunum. Þetta álít ég, að sé það alvarlegasta í þessu frv., að það stefnir að því að rifta því samkomulagi, sem áður hefur verið gert hér á Alþ., svo framarlega sem sex manna n. kæmist að samsiginlegri niðurstöðu, eins og hún gerði, þannig að það lítur út fyrir, að til þess sé ætlazt með þessu frv., að þessu samkomulagi verði öllu umturnað.