10.11.1943
Neðri deild: 43. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 628 í C-deild Alþingistíðinda. (3083)

42. mál, dýrtíðarráðstafanir

Bjarni Ásgeirsson:

Mér finnst nú ekki alveg samræmi í þeim svörum, sem ég hef fengið við fyrirspurn minni hjá tveimur af hv. flm. brtt. á þskj. 344. Hv. 3. þm. Reykv. (JakM) gaf þá skýringu á nauðsyn þessarar brtt., að landbúnaðarvísitölun. hefði ekki leyst af hendi það verk, sem henni var falið, þ. e. a. s. ekki fundið verðvísitölu, eða m. ö. o., að starf n. væri hálfgerð markleysa og þess vegna væri ástæða til þess að taka málið aftur upp að nýju. Og eftir orðum brtt. get ég vel skilið þessa afstöðu. Aftur á móti vildi hv. þm. A.-Húnv. halda fram, að hér væri ekki um aðrar breyt. að ræða en þær, sem eftir eðli málsins hlytu að koma fram við breytt verðlag og þá líka við breyttar tekjur annarra stétta í þjóðfélaginu. En eins og ég sagði áðan, álít ég, að það sé starf, sem ríkisstj. geti falið ráðuneytinu að framkvæma útreikning á, án þess að sérstakri n. sé ætlað að vera starfandi til að reikna þetta út. Og hv. þm. A.-Húnv. sagði, að ef samkomulag næðist ekki í þessari n. fyrir 15. ágúst, þá stæði verðlagið óbreytt. Ég álít, að þessi skýring út af fyrir sig geti ekki staðizt. Ef það t. d. kæmi fram við athugun á þessu máli af nýju, að allt kaupgjald við landbúnaðarframleiðslu hefði lækkað um helming, þá ætti eftir þessari skýringu einn maður í n. að geta, bara með því að skerast úr leik, komið í veg fyrir, að breyt. fengjust fram á verði landbúnaðarvaranna í samræmi við kaupgjaldið, vegna þess að það þyrfti þá, eftir brtt. og skýringu hv. þm. A.-Húnv., samkomulag allra nm. til þess að taka þessa viðurkenndu reglu til greina, að afurðaverð landbúnaðarins skuli ákveðið í samræmi við framleiðslukostnað og laun annarra stétta í þjóðfélaginu en bænda. Slíkt næði ekki nokkurri átt, því að verðið á þessum vörum á að breytast eftir framleiðslukostnaðinum við þær og breyt. á kaupgjaldi í landinu. En þá gæti líka hugsazt, að fleira en þetta kæmi til greina um það, að ekki væri hægt að taka þessa nýju niðurstöðu til greina. Og ég vil algerlega neita því, sem kom fram hjá hv. 3. þm. Reykv., að landbúnaðarvísitölunefnd hafi algerlega látið undir höfuð leggjast að vinna það, sem fyrir hana var lagt, um að finna verðvísitölu landbúnaðarvara, því að slíka verðvísitölu hefur hún fundið, þó að hún liggi ekki fyrir í einstökum tölum. En hún hefur fundið hana með því að meta og vega, hve mikið hver kostnaðarliður í framleiðslu landbúnaðarafurða vegur. Og með því að athuga á hverjum tíma, hvaða verð er á hverjum þessum kostnaðarlið, þá er hægt samkvæmt því að finna út nauðsynlegar breytingar á verði landbúnaðarvara. Í þessu er fólginn annar þáttur verðvísitölu landbúnaðarafurða. En hinn þáttur þessarar verðvísitölu má segja, að sé hlutfallið milli kaupgjalds og verðlags, og það þarf þá að athuga, hvaða breyt. kaupgjaldið á hverjum tíma tekur, og ákveða verðlag landbúnaðarafurða í samræmi við það ásamt með tilliti til framleiðslukostnaðar. En ég held, að sá skilningur geti alls ekki staðizt, að ef n. kemur sér ekki saman um þær breyt., sem hún vill vera láta á verði landbúnaðarafurða, þá eigi það verð að haldast óbreytt, — jafnvel þó að framleiðslukostnaður hafi t. d. lækkað um helming. Og ég er hins vegar hræddur um, þó að hv. þm. A.-Húnv. hafi ekki ætlazt til þess, þá sé hann með þessari brtt. að búa málinu þá gryfju, sem það geti ekki komizt úr, þannig að ef ekki sé fullt samkomulag í n., þá séu raunverulega, ef brtt. þessi væri samþ., úr gildi fallnar allar þær ákvarðanir um verð landbúnaðarafurða, sem náðst hefur niðurstaða um með starfi 6 manna n., og mundi þá ringulreiðin byrja á ný.

En ég vildi heyra álit hv. þm. Siglf. um þetta atriði, hvernig hann lítur á það, hvaða verð er í gildi, ef brtt. þessi væri samþ., en ekki næðist samkomulag í n., þegar hún færi að ákveða verðið á þessum vörum fyrir 15. sept. n. k., hvort verðið á þá að haldast óbreytt á landbúnaðarafurðum, eins og það þá hefði verið, eða hvort allar ákvarðanir landbúnaðarvísitölun., sem nú gilda, væru þá úr gildi fallnar.